Þjóðmál - 01.12.2012, Síða 95
94 Þjóðmál VETUR 2012
reynd irnar séu þvert á boðun Marx: Það
er verkamaðurinn, sem auðgast á því að
kaupsýslumenn þrói ný verkfæri, aðferðir,
nýtt skipulag og nýjar afurðir, sem auka
framleiðni verkamannsins og þannig laun
hans . Það er verkamaðurinn, sem græðir á
því að iðnjöfurinn geti lagt honum til verk-
færi, vélar og verksmiðjur, sem auka fram-
leiðni hans og laun . Það er hugvitssemin að
baki gufuvélinni og rafmagninu, bílnum og
flugvélinni, tölvunni, örflögunni og inter-
netinu, í viðbót við kapítalíska fjölda fram-
leiðslu á öllu þessu, sem var hin afgerandi
breyting í lífi fólks; ekki hve margar vinnu-
stundir það vann á viku .
Enn þann dag í dag á verðmætasköpun
sér stað vegna þróunar hugmynda . Vísinda-
menn og uppfinningamenn, iðnjöfrar og
kaupsýslumenn útfæra hugmyndir og breyta
þannig lífsskilyrðum fólks . Í þeim post-
hrun heimi sem við búum í, er þó vissulega
auðvelt að tortryggja alla kaupsýslumenn
sem glæpamenn, sem ekki er búið að koma
upp um ennþá .
Ayn er þó að skrifa þetta 51 ári fyrir hrun
og segja: Alvörukaupsýslumaður er skap-
andi hetja . Kjarni hetjuskapar er fram-
leiðsla verðmæta . Heimur viðskiptanna er
göfug ur, þar sem enginn kemst til lengdar
upp með að blekkja eða snuða viðskiptavini
sína . Það er brautryðjendum að þakka að
fólk í hinum auðuga hluta heimsins í dag
nýtur lífskjara sem engar kynslóðir á undan
okkur létu sig dreyma um . Og allt hefur
þetta gerst á tvö hundruð árum .
Í gegnum alla bókina eru okkur sýnd dæmi
um hvað gerist þegar menn taka ábyrgð og
beita skynsemi og hvað gerist þegar menn
gera það ekki — og fljóta sofandi . Áður en
Atlas tekur sig til og hristir heiminn, blasir
við samfélagskerfi sem gengur ekki upp —
reglur sem útiloka allt framtak; fólk, sem ber
af sér alla ábyrgð á eigin lífi, sjúkrahús sem
skila fólki veikara en það var við innlögn
og stéttarfélög sem þjóna ekki hagsmunum
verkafólksins, heldur sínum eigin . Eftir
syndafallið kemur í ljós að sá veruleiki sem
við nú ergjum okkur á, var óhjákvæmilegur
og hugsanlega eina mögulega niðurstaðan
að forsendunum gefnum . Vegna þess
að Ayn hafði sjálf lifað tímana tvenna,
fyrst í heimalandinu Rússlandi og síðan í
Bandaríkjunum, sá hún fyrir þær afleiðingar
sem samtími hennar myndi hafa í för með
sér — og fram í tímann, til vorra daga .
Góður maður hlægilegur
Rétt eins og Snæfríði Íslandssól þykir
Dagnýju góður maður hlægilegur . Dagný
hefur semsé þekkt ágætan mann, sem
reyndar er í einu af aðalhlutverkum bókar-
innar .
Í upphafi sögunnar gefur hún sér lítinn
tíma til að njóta þess að vera kona, hún er
of upptekin við að bjarga fyrirtæki sínu frá
glötun og gjaldþroti, sem er yfirvofandi
vegna ástandsins í Bandaríkjunum; ástands
ekki ósvipað Grikklandi í dag, eða Þýska-
landi um 1930; ástands sem fer síversn andi
dag frá degi .
Kveikt var á götuljósunum sem héngu eins
og litlir gulir hnettir yfir auðum götum
Marshville . Hún sá ljós í gluggum ódýrra
húsa sem á nokkrum árum voru orðin eins
og hrófatildur í fátækrahverfum; þetta
voru heimili fólksins sem ekki hafði flust
burt, fólksins sem aldrei hugsaði lengra en
viku fram í tímann . Hún sá að kveikt var á
stórum nýjum sjónvarpstækjum í stofum í
húsum með veggjum að molna og þökum
að hrynja . Hún velti fyrir sér hversu
lengi fólkið vænti þess að raforkuverin í
Colorado yrðu starfrækt . Við aðalgötuna
í Marshville var röð af svörtum gluggum
verslana sem búið var að loka . Allar
verslanir sem seldu munaðarvöru voru