Skólavarðan - 01.12.2015, Side 6
6 DESEMBER 2015
BESTA TÓNLISTARMYNDBANDIÐ
OG HVATNINGARVERÐLAUN Á DEGI
LEIKSKÓLANS
Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda
leikskóla vinna nú að undirbúningi Dags
leikskólans 2016. Félögin hafa þegar kynnt
skemmtilega samkeppni um besta tónlist-
armyndbandið og eru leikskólakennarar,
leikskólastjórar og starfsfólk leikskólanna
hvatt til að virkja börnin í gerð tónlistar-
myndbands. Markmið keppninnar er að
varpa ljósi á mikilvægi náms og starfs í
leikskólum en um leið að halda skemmtana-
gildinu vel á lofti.
Bestu tónlistarmyndböndin verða sýnd
í Bíó Paradís á Degi leikskólans, sem verður
haldinn hátíðlegur 5. febrúar 2016 – þar
sem 6. febrúar ber upp á laugardag. Þrjú
bestu tónlistarmyndböndin fá verðlaun og í
dómnefndinni sitja valinkunnir listamenn,
Snæbjörn Ragnarsson (Bibbi í Skálmöld),
Saga Garðarsdóttir leikkona og Salka Sól
Eyfeld tónlistarkona. Myndbandakeppnin
er samvinnuverkefni FL, FSL, menntamála-
ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Heimilis og skóla. Skilafrestur á
myndböndum er til 15. janúar 2016.
Þá er vert að minna á hvatningarverð-
launin Orðsporið 2016 sem veitt verða í Bíó
Paradís á Degi leikskólans. Ákveðið hefur
verið að Orðsporið 2016 verði veitt þeim
sem hafa lagt sitt af mörkum og sýnt vilja og
metnað til að jafna kynjahlutföll í hópi leik-
skólakennara. Valnefnd, skipuð fulltrúum
Samstarfshóps um Dag leikskólans, fer yfir
tilnefningarnar og velur verðlaunahafann.
Opnað verður fyrir tilnefningar til 5.
desember nk. og er skilafrestur til 15. janúar
2016.
NÓTAN HALDIN Í
SJÖUNDA SINN
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótan,
verður haldin í sjöunda sinn á næsta ári.
Markmið Nótunnar er að styrkja ungt
tónlistarfólk til listsköpunar en um leið efla
vitund í samfélaginu um mikilvægi tónlistar-
skóla á sviði menntunar, lista og menningar.
Sú nýjung verður á Nótunni 2016 að við
bætist viðurkenningarflokkurinn „konsert-
ar“ þar sem nemendur flytja kafla úr konsert
eða sambærileg verk.
Þá mun Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna bjóða nokkrum framúrskarandi
atriðum að koma fram á tónleikum sveitar-
innar í nóvember á næsta ári.
Svæðistónleikar Nótunnar fara fram
á fjórum stöðum á landinu í byrjun mars
en sjálf lokahátíðin fer fram í Eldborgarsal
Hörpu 10. apríl 2016.
Nótan er samvinnuverkefni Félags
kennara og stjórnenda í tónlistarskól-
um, Samtaka tónlistarskólastjóra,
Tónastöðvarinnar, Töfrahurðar og Tónlist-
arsafns Íslands.
Nánari upplýsingar um allt sem
viðkemur Nótunni 2016 er að finna á vef
Kennarasambandsins, www.ki.is/notan.
Degi leikskólans 2015 var fagnað í Björnslundi, leikskólans Rauðhóls í Norðingaholti. Orðsporið kom í
hlut Kópavogsbæjar og sveitarfélagsins Ölfuss.