Félagsbréf - 01.12.1961, Side 18
16
FÉLAGSBRÉF
nafnið Lönd og þjóSir. Allar bækur
þessa flokks verða upphaflega gerð-
ar á vegum ameríska tímaritsins
Life, og eru þær, sem þegar eru
komnar út, mjög vandaðar. Samsvar-
ar lesmál hverrar hókar um 160 bls.
í Skírnisbroti, en hátt á annað hundr-
að valinna mynda er í hverri bók,
litmyndir, og svart-hvítar myndir.
14 útgáfufyrirtæki í Evrópu hafa
með sér samvinnu um útgáfu þess-
ara bóka hér í álfu. — Létu flest
gera bækurnar að öllu leyti á einum
og sama stað. M.a. vegna strangra
laga um innflutning íslenzks lesmáls
gat AB aðeins tekið þátt í samvinnu
um myndaprentun, en sú samvinna
hefur þau áhrif, að bækurnar verða
mjög ódýrar, af myndabókum að
vera. Kostar Frakkland félagsmenn
aðeins 185 kr.
Bókin Frakkland fjallar um sögu
Frakklands, landshætti, atvinnuvegi
og menningu þjóðarinnar, listir,
skemmtanir og hugsunarhátt o.fl.
Er lögð áherzla á, að lesandinn öðl-
ist skilning á þjóðinni, sérkennum
hennar, hugsunarhætti og gerðum.
Er þetta sérlega vönduð bók, bæði
að efni og myndum, stendur að því
leyti í engu að baki öðrum slíkum
bókum frá tímaritinu Life, og nægir
að minna á Heiminn okkar því til
sönnunar. Myndir bókarinnar eru
prentaðar suður í Verona á Italíu,
en bókin unnin að öðru leyti hér
heima. Þýðandi er Gísli Ólafsson,
ritstjóri.
Desemberbókin í ár er Hannes
Ilafstein, œvisaga, eftir Kristján
Albertsson, fyrra bindi. Kom þessi
bók út 4. desember, en þá voru liðin
100 ár frá fæðingu hins merka
skálds og stjórnmálaskörungs. Þetta
fyrra bindi greinir frá bernsku
Hannesar Hafsteins, foreldrum hans
og æskuheimili, skólaárum í Reykja-
vík og Höfn og embættis- og stjórn-
málastörfum í Reykjavík og á Isa-
firði til þess tíma, er Hannes Haf-
stein varð ráðherra árið 1904.
En þetta er ekki aðeins persónu-
saga Hannesar Hafsteins, heldur
líka stjórnmálasaga. Gerir höfund-
ur í þessu fyrra hindi glögglega
grein fyrir sjálfstæðisbaráttu Is-
lendinga frá láti Jóns Sigurðssonar
og til heimastjórnar, og þó einkum
Valtýskunni, en um hana hefur lít-
ið verið skrifað til þessa. í bókinni
eru um 50 myndir, einkum af sam-
tíðarmönnum Hannesar Hafsteins,
þeim sem koma við sögu hans. Er
þessi bók, bæði vegna efnis og þess,
hve vel hún er rituð, vafalaust í hópi
merkustu ævisagna á íslenzku.
Gjafabókin er að þessu sinni
Sögur Þórlialls biskups í útgáfu
Tómasar Guðmundssonar, skálds,
en myndir í bókina hefur Jóhann
Briem gert. Eru þetta fyrirburða-
sögur, frásagnir um þekkta menn