Félagsbréf - 01.09.1963, Blaðsíða 26

Félagsbréf - 01.09.1963, Blaðsíða 26
prýðilega, mamma. Mér er bara lieilt. Þetta er heitasti dagur, scm komið hef- ur í Florida, síðan....“ „Af liverju hefurðu ekki liringt. Ég hef verið svo hrædd. . . .“ „Elsku mamma, ekki að hækka þig. Ég heyri prýðilega til þín,“ sagði stúlkan. „Ég hringdi tvisvar til þín í gærkvöldi. 1 annað skiptið rétt eftir. .. .“ „Ég sagSi pabba þínum, að þú myndir sennilega hringja í gærkvöldi. En auðvitað þurfti hann endilega. . . . Er eitthvað að, Muriel? Segðu mér satt.“ „Mér líður ágætlega. Og viltu hætta að spyrja.“ „Hvenær komstu þarna?“ „Það veit ég ekki. Snemma á mið- vikudagsmorguninn.“ „Hver keyrði?“ „Hann keyrði,“ sagði stúlkan. „Og vertu ekki að æsa þig upp. Hann keyrði bara svo vel. Ég var steinhissa.“ „Keyrði hann? Muriel, })ú lofaðir ' it mer. ... „Mamma,“ greip stúlkan fram í „Ég var að enda við að segja þér, að hann keyrði svo vel. Meira að segja innan við fimmtíu alla leiðina.“ „Var liann að reyna nokkuð skrýtið núna með trén?“ „Ég sagSi þér að hann hefði keyrt svo vel, mamma. Gerðu það fyrir mig. Ég bað hann að halda sér nærri hvíta strikinu og allt það og hann skildi, hvað ég átti við og gerði það. Hann var meira að segja að reyna að horfa ekki á trén — ég fann það alveg. Er pabbi annars búinn að láta gera við bílinn?“ „Ekki ennþá. Þeir heimta fjögur hundruð dollara bara fyrir....“ „Mamma, Seymour sagði pabba, að hann ætlaði að borga það. Það er engin ástæða. . . .“ „Jæja, við sjáum til. Hvernig hagaði liann sér — í bílnum og yfirleitt?“ „Hann var ágætur,“ sagði stúlkan. „Kallaði liann þig ennþá þessu hræðilega... . ?“ „Nei. Hann er búinn að finna upp nýtt.“ „Hvað er það?“ „Hverju máli skiptir það, mamma?“ „Muriel, ég vil fá að vita það. „Jæja, þá, allt i lagi. Hann kallar mig ungfrú Andansmellu ársins 1948,“ sagði stúlkan og kreisti kjúkur. „Það er ekkert fyndið, Muriel. Það er alls ekkert fyndið. Það er viðbjóðs- legt. Sorglegt, eiginlega. Þegar ég hugsa um það, hvað. .. .“ „Mamma,“ greip stúlkan fram í, „hlustaðu á mig. Manstu eftir bókinni, sem hann sendi mér frá Þýzkalandi? Þú veizt, þessi þýzku kvæði. Hvað gerði ég við hana? Ég er búin að leggja höfuðið í bleyti....“ „Þú hefur hana.“ „Ertu alveg viss?“ sagði stúlkan. „Já, vitanlega. Það er að segja, ég hef hana. Hún er inni hjá Freddy. Þú skildir hana eftir, og ég kom henni ekki fyrir .... Af hverju? Vill hann fá hana?“ „Nei, en hann spurði mig um hana á leiðinni liingað. Hann vildi fá að vita, hvort ég hefði lesið hana.“ „Hún var á þýzku.“ „Já, elskan, en það skiptir ekki máli,“ sagði stúikan og krosslagði 22 FÉLAGSBRÉl'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.