Félagsbréf - 01.09.1963, Blaðsíða 50
Hitt er ekki óeðlilegt, að enn er höf-
undur nokkuð mótsagnakenndur og
ekki alltaf sjálfum sér samkvæmur, og
ber ritgerðasafn hans þess nokkur
merki.
Arnór Hannibalsson á sér sína
útópíu — sitt sæluríki friðar, jafn-
réttis og bræðralags. Hann fann það
ekki í Rússlandi. I stað sæluríkis fann
hann skurðgoðadýrkun og lögreglu-
ríki. í lokaorðum bókarinnar segir
hann, að hið austræna þjóðfélag stefni
að „Sohornost“, frelsun mannanna í
heild, en til þess verði flokkur og ríki
að deyja út. Bitur reynsla höfundar
gefur ekki fyrirheit um ferðalok.
J. D. Salinger er yfirleitt talinn fæddur í
New York árið 1919, en sjálfur kannast
hann ekki viS þær fréttir og verst gersam-
lega allra frásagna um hagi sína eSa upp-
runa. Salinger er meS kunnustu höfundum
bandariskum um þessar mundir, en mesta
frægS gat hann sér fyrir skáldsögu sina
The Catcher in the Rye sem út kom 1951.
Saga sú er afbragSsverk og hefur veriS þýdd
út um allar jarSir þótt enn sé hún ókomin
á íslenzku. — Salinger er snjall smásagna-
höfundur, og hirtast sögur hans löngum
fyrst í hinu kunna tímariti The New Yorker.
Hann hefur um árabil unniS aS sagnaflokki
um Glass-fjölskylduna og gefiS út tvær bæk-
ur sem heyra honum til. Sagan sem hér
birtist mun vera elzta Glass-sagan, og Sey-
mour Glass sá sem frásagnarverSastur er í
fjölskyldunni. Sagan er sótt í smásagnasafn
Salingers Nine Stories sem út kom 1948.
Baldur Ragnarsson er kennari aS starfi,
og hefur hann skrifað og birt margt á
esperantó, þar á meðal eina Ijóðahók. Ein
ljóðabók hefur birzt eftir hann á íslenzku,
Undir veggjum veSra, 1962, og Ijóð og
greinar í tímaritum. Ljóð eftir Baldur Ragn-
arsson birtust í Félagsbréfum 17, 1960.
Stefán Jónsson rithöfundur birti fyrstu skáld-
sögu sína „fyrir fullorðna” 1960, Sendibréf
frá Sandströnd. HaustiÖ 1962 kom svo stór-
virkið Vegurinn aS brúnni, en um þá hók
birti Jökull Jakobsson grein í síðasta hefti
Félagsbréfa.
Heimir Hannesson lögfræðingur starfar í
Seðlabankanum. Heimir er formaður Varð-
bergs, félags ungra áhugamanna um vest-
ræna samvinnu, og annar ritstjóri hins nýja
landkynningartímarits, Iceland Review.
46 FÉLAGSBRÉF