Félagsbréf - 01.09.1963, Page 39

Félagsbréf - 01.09.1963, Page 39
inga. I umræddri sögu er ekki eitt ein- asta atriði frá mínu eigin persónulega lífi og varla lield ég, að ólíkari menn geti verið til en höfundur sögunnar og aðalpersóna hennar. En sagan er minningasaga á þann hátt, að hún fjallar um tímabil, sem höfundurinn og jafnaldrar hans lifðu. Saga milli- stríðsáranna og til dagsins í dag er mikil og merkileg saga á íslandi, en hún er ekki alveg eins og við vildum hafa hana og héldum, að hún yrði. — Efni þeirrar sögu hafði lengi sótt á mig. Síðan skrifaði ég sögu þessa tíma- bils. Vitanlega ekki nema nokkra þætti hennar og af þeim sjónarhól, sem við stöndum á í dag. Þessvegna vísar hún til nútíðar víða, þó að hún gerist í for- tíð. — Við lifum á erfiðum tímum, sagði skáldið. Þær hugsjónir, sem við áttum og héldum fagrar, höfum við ýmist svikið lítilmannlega eða þá að þær hafa svikið okkur og verið blekk- ing tóm. Ég rökstyð þetta ekki núna, en tvær seinni bækur Vegarins að brúnni gerast raunverulega í þeim heimi, sem við lifum í í dag. Sagan gerist á vettvangi félagslegra svika pólitískra spekúlanta og auðvirðilegra hégómamála almennings. Á þeim vett- vangi verður ekki séð þjóðernisleg ein- ing um nokkurt mál. Helzt sér and- lega reisn almennings í gamalli, alþýð- legri hjátrú og nýmóðins hindurvitn- um. Þú segir söguna sanna þjóölífsmynd, en bæta litlu við það, sem áður var vitað. Hver hefur látið þá vitneskju uppi í skáldsögu, Jökull? En hvað um það. Mistökin í sögunni eru Snorri Pétursson. Öllu heldur, þau eru ólíkur skilningur okkar á þeim pilti. Senni- lega ætlast ég til of mikils af lesend- um og treysti um of á einlægni þeirra við sjálfa sig. Ég átti um óteljandi leið- ir að velja þangað, sem ég vildi fara, hugsandi margar lengi, en*fór þá, sem sagan sýnir. Ég er að skrifa þér bréf, en allt, sem ég segi við þig og um þig, má gjarnan vera til fleiri sagt. Það er eng- in glansmynd gerð af Snorra Péturssyni í sögunni. Svo óþyrmilega er fariö með hann, að nakinn stendur hann eftir. Mér hefur tekizt að láta þig mis- skilja hann, vegna þessarar ómjúklegu meðferðar. Dæmi um það: Þér finnst maðurinn leiðinlegur, en mig grunar, að þér detti ekki í hug að sjá sjálfan þig í honum. Hann er smámunasamur, satt er það, nízkur, öfundsjúkur, hé- gómlegur, ímyndunargjarn, sjálfselsk- ur og berst við margskonar veikleika. Sértu hreinskilinn við sjálfan þig, verð- ur þú var sömu eiginleika hjá þér. Þú berð það niður og lætur það ekki vitn- ast. Hann er gegnumlýstur. Það ergir þig, að í það er látið skína, að Snorri sé laglegur og hve mikla kvenhylli hann hefur. Þetta læt ég þig ekki misskilja, þú gerir það ótilkvadd- ur. Líklega hefur vakað fyrir mér, að Snorri væri fremur laglegur, en það er rangt hjá þér, að úr því sé mikiÖ gert. Þeir minna hann stundum á fríð- leik hans, sem vilja stappa í hann stáli. Sjálfur reynir hann stundum að hugga sig með fríðleik sínum, þegar honum þykir verst horfa. Þannig er þetta ó- beint sagt og kemur af sjálfu sér. Þér finnst svona maður enga kvenhylli verðskulda. En konur hafa undarlegan FÉLAGSBRÉF 35

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.