Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 16

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 16
gamalt sárið, þar vex ekki hár. Hann óttast ekkert á yfirborði jarðar eða undir því. Hann ræðst á uxa jafnt sem flær. Honum er uppsigað við aðra hunda - nema kengúruhunda - og leggur sérstaka fæð á vini og ættingja fjölskyldunnar. Þeir koma þó sjaldan í heimsókn. Stöku sinnum vingast hann við ókunnuga. Honum er í nöp við snáka og hefur drepið þá marga, en einhvern tíma verður hann bitinn og drepst; flestir snákahundar enda þannig. Öðru hverju leggur óbyggðakonan frá sér prjónana og horfir, og hlustar, og hugsar. Hún hugsar um eitt og annað sem á daga hennar hefur drifið, það er fátt annað að hugsa um. Regnið kemur grasinu til, og þá minnist hún þess þegar hún barðist við sléttuelda í fjarveru manns síns. Grasið var vel sprottið, og skraufþurrt, og eldurinn virtist ætla að brenna ofan af henni. Hún fór í gamlar buxur af manni sínum og barði niður logana með grænni grein, þangað til stórir dropar af sótsvörtum svita spruttu fram á enni hennar og láku í taumum niður skítuga handleggina. Tommy, sem sjálfur barðist hetjulega við hlið móður sinnar, þótti fyndið að sjá hana í buxum, en skelfingu lostið ungbarnið öskraði af öllum mætti á mömmu sína. Eldurinn hefði haft betur ef fjóra kappsama óbyggða- menn hefði ekki borið að á elleftu stundu. Það ríkti algjör ringulreið - þegar hún tók upp barnið lét það öllum illum látum, hélt að hún væri „svartur maður", og Krókódíll, sem tók meira mark á barninu en sjálfum sér, réðst til atlögu, og (þar sem hann var kominn af léttasta skeiði og orðinn heyrnarsljór) var svo æstur að hann bar ekki kennsl á rödd eiganda síns fyrst í stað, heldur hékk í molskinnsfötunum þangað til Tommy brá söðulól um kverkarnar á honum. Leiði hunds- ins yfir mistökunum, og þörf hans fyrir að láta hann í ljós, endur- speglaðist á afgerandi hátt í rytjulegri rófunni og tólf tomma glotti. Þetta var dýrðardagur fyrir strákana; dagur sem lengi yrði í minnum hafðum og sögur færu af. Henni verður hugsað til þess þegar hún barðist við flóð ein síns liðs. Hún stóð tímunum saman í steypiregninu, og gróf yfirfallsrás til að bjarga stíflunni hinum megin lækjar. En varð að lúta í lægra haldi. Sumt er óbyggðakonunni um megn. Morguninn eftir var stíflan brost- in, og hjarta hennar brast næstum því líka, því henni varð hugsað hvernig manni hennar yrði innanbrjósts þegar hann kæmi heim og 14

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.