Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Síða 17

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Síða 17
sæi afrakstur margra ára strits farinn veg allrar veraldar. Þá beygði hún af. Hún barðist líka við lungna- og brjósthimnubólguna - gaf þeim fáu nautgripum sem eftir voru lyfin og lét þeim blæða, og beygði af á ný þegar tvær bestu kýrnar drápust. Hún barðist einnig við óðan tarf sem sat um húsið heilan dag. Hún bjó til kúlur og skaut á hann úr gamalli byssu út um rifur í veggnum. Hann var dauður morguninn eftir. Hún fló hann og seldi skinnið. Hún berst líka við krákurnar og ernina sem sitja um kjúklingana hennar. Hún beitir afar frumlegu herbragði. Börnin kalla „Krákur, mamma!" og þá þýtur hún út og miðar kústskafti á fuglana eins og riffli, og segir „Bang!" Krákurnar hafa sig á brott hið snarasta; þær eru kænar, en kona er kænni. Fyrir kemur að útúrdrukkinn óbyggðamaður eða glæpamanns- legur flækingur birtist og hræðir hálfpartinn úr henni líftóruna. Vana- lega segir hún þessum grunsamlegu aðkomumönnum að maðurinn hennar og tveir synir séu við vinnu fyrir neðan stífluna, eða í garð- inum, því þeir spyrja alltaf lævíslega eftir húsráðanda. Það er ekki lengra síðan en í síðustu viku að flækingur með gálga- fés fleygði hafurtaski sínu á veröndina og heimtaði mat eftir að hafa fullvissað sig um að ekki væru neinir karlmenn á bænum. Hún gaf honum að éta; þá kvaðst hann mundu vera um nóttina. Það var um sólsetursbil. Hún náði sér í fjöl úr sófanum, leysti hundinn, og tók sér stöðu fyrir framan kauða, hélt á fjölinni í annarri hendi og um háls- band hundsins með hinni. „Nú ferð þú!" sagði hún. Hann leit á hana og á hundinn, sagði: „Gott og vel, frú," eins og undirlægja og hypjaði sig. Hún var ábúðarmikil kona, og gulu augun í Krókódíl skutu gneistum - auk þess líktist gin hundsins mjög skriðdýrinu sem hann hét eftir. Það er fárra ánægjustunda að minnast þar sem hún situr ein við eldinn, á verði gegn snáki. Dagar hennar eru hver öðrum líkir; en á sunnudögum klæðir hún sig upp, snyrtir krakkana og puntar ung- barnið, og heldur í einmanalega gönguferð eftir óbyggðaslóðinni, ýtir gömlum vagni á undan sér. Þetta gerir hún á hverjum sunnudegi. Hún er eins áfram um að hafa börnin vel til fara og væri hún að fara í gönguferð eftir strætum borgar. Það er hins vegar ekkert að sjá, og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.