Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 30
urna. Hogben og Last höfðu byggt upp héraðið. Les hafði reist húsið
hans Horrie. Lasthjónin höfðu selt Hogbenhjónunum húsið sitt. Ef
einhverjir komu þeim kvitti á kreik að Last og Hogben bæru ábyrgð á
því að Græna beltið minnkaði, bar það vott urn sveigjanleik að þeir
hinir sömu skyldu hafa gert sér grein fyrir hugtakinu.
„Hvað sagðirðu þeim?" spurði frú Last.
„Sagðist ætla að mæta/' sagði maður hennar og hrærði í myntinni í
vasa sínum.
Hann var lágvaxinn maður, stóð gjarnan gleiður.
Georgina Last dró við sig svarið. Vaxtarlag hennar vakti áhuga,
það var engu líkara en hún hefði verið búin til úr nokkrum skonsum
sem voru festar saman í bakstrinum.
„Daise Morrow," sagði Horrie Last, „var ekki svo afleit."
Frú Last svaraði ekki.
Hann hrærði því enn ákafar í myntinni í vasanum, ef til vill í þeirri
von að hún bráðnaði saman. Konan hans ergði hann ekki, vel að
merkja - hún hafði fært honum eitt stykki fasteign, ásamt innsýn í
fasteignasölu - en oft hafði það hvarflað að honum að þeysa svolítið
með Daise Morrow líka. Þorði að veðja að Les gamli Hogben hafði
fiktað við mágkonu sína. Hjálpaði henni að komast yfir húsið, var
sagt. Alltaf ljós hjá Daise eftir myrkur. Bréfberinn lagði póstinn á ver-
öndina hjá henni í stað þess að stinga honum í póstkassann. Á
sumrin, þegar karlarnir gengu hús úr húsi til að lesa af mælum, bauð
hún þeim inn og setti fyrir þá bjórglas. Daise var lagið að verða sér úti
um þjónustu.
Georgina Last ræskti sig.
„Jarðarfarir eru ekki fyrir konur," staðhæfði hún, og tók upp
jakkapeysu sem hún var að prjóna handa frænku sinni.
„Þú varst ekki búin að pússa skóna þína!" þusaði frú Hogben.
„Víst," sagði Meg. „Það er bara svo mikið ryk. Veit ekki af hverju
við erum að bursta skóna alltaf hreint. Þeir verða alltaf skítugir aftur."
Þarna stóð hún og var ömurleg í þessum skólabúningi. Kinnarnar
voru innfallnar af tómri örvæntingu sýndist henni.
„Maður verður að virða sínar lífsreglur," sagði frú Hogben, og
bætti við: „Pabbi er að sækja bílinn. Hvar er hatturinn þinn, elskan?
Við förum eftir tvær mínútur."
28