Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Qupperneq 40

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Qupperneq 40
„Því hinn alrnáttugi miskunnsami Guð hefir tekið til sín sál hennar... “ las herra Brickle. Þar sem ekki lá ljóst fyrir hverjum bæri að kasta rekunum gerði Gill matvörukaupmaður það. Þau heyrðu handfyllina smella á kistu- lokinu. Þá streymdu tárin sem aldrei fyrr úr hreistrugum augunum á Ossie. Út úr myrkrinu. Út úr myrkrinu hafði Daise kallað: Hvað er að sjá, Ossie, gráttu ekki. Ég fékk sinadrátt, svaraði hann. Hann engdist af kvölum. Sinadrátt? sagði hún syfjulega. Eða ímyndarðu þér það? Ef það eru ekki sinadrættirnir, þá er það eitthvað annað. Það mátti vel vera. Hann tæki Daise trúanlega. Hann var ekkert gáfumenni eftir að hann fékk heilahimnubólguna. Heyrðu mig nú, sagði Daise, komdu hingað inn, upp í rúmið hjá mér, ég skal hlýja þér, Os, í hvelli. I myrkrinu hlustaði hann á sjálfan sig sjúga upp í nefið. Oo, Daise, mér mundi ekki, sagði hann, mér mundi ekki rísa, ekki einu sinni þótt þú gæfir mér lukkupottinn, sagði hann. Hún hafði mjög hægt um sig þá. Hann lá og taldi æðaslög myrkursins. Ekki þannig, sagði hún - hún hló ekki að honum eins og hann hafði hálfpartinn búist við - auk þess, sagði hún, gerist það í rauninni aðeins einu sinni á ævinni. Þannig. Og undireins var hann farinn að kljúfa myrkrið, hlunkaðist og skjögraði til hennar. Hann hafði aldrei kynnst annarri eins nær- gætni. Því Daise var ekki hrædd. Hún renndi hendinni gegnum hárið á honum, án afláts eins og seytlandi vatn. Hún sefaði sinadrættina úr fótum hans. Þangað til þau voru farin að anda í takt. Móktu. Svo reið strákurinn Ossie Coogan aftur niður af fjallinu, mélasmellirnir ómuðu um loftin blá og svitalykt lagði undan söðlinum, þar sem hann reið í áttina að fljótinu mikla. Hann vaggaði og flaut með straumhörðu, endalausu fljótinu, dýfði munninum ofan í brúnt og svalt vatnið, það hefði verið þess virði að drukkna. Ossie hafði vaknað einu sinni um nóttina, óttaðist að þau hefðu fjarlægst. En Daise hélt honum enn við brjóst sér. Ef hann hefði nú verið öðruvísi. Það fór kipringur um kverkarnar á Ossie. En þá hefði Daise kannski brugðist öðruvísi við. Svo hann hjúfraði sig upp að hlýju myrkrinu, og aftur var tekið á móti honum. „Ef mann langar nógu mikið til þess, þá getur maður gert hvað sem er," staðhæfði Meg Hogben. 38
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.