Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 55

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 55
Wicknell fann ónýtta orkulind og hljóp að einu kameldýranna. Hann rótaði í farangurshólfinu og kom til baka með lúkurnar fullar af salti. Wargoton og Lorrest héldu karlkvölinni meðan Wicknell tróð saltinu upp í skeggjaðan munninn. Það var eins og hann áttaði sig á fyrirætlunum þeirra, því hann barðist ekki um. Þeir slepptu honum. Hann lá á hliðinni í mótmæla- skyni meðan saltið beit sig í hálsinn. Hann kúgaðist, svo ákaflega að hann dróst í keng. Lorrest steig fram, sparkaði í hann og benti til sólar: „Vatn, og það strax," sagði hann rámur. Wicknell miðaði rifflin- um á svertingjann. Munda staulaðist á fætur og hélt um hálsinn. Svo lagði þessi óvenjulega hersing af stað. Hvítu mennirnir þrír renndu niður síðasta vatnsdreitlinum. Þeir vissu að svertinginn var þeirra eina lífsvon. Fórnarlamb þeirra var nú ein tvö hundruð fet á undan þeim. Þeir létu hann fara fyrir. Einu sinni þegar hann jók bilið hægði Wicknell á honum með því að skjóta upp í loftið. Þeir komu að leirkvos sem var á að giska mílufjórðungur í þver- mál. Svertinginn skjögraði af stað yfir hana með mennina enn á eftir sér. Við hinn enda kvosarinnar sveigði svertinginn skyndilega af leið. Hann nam staðar, benti síðan til vinstri, að ávölum sandöldum sem umkringdu leirkvosina. Wargoton rumdi sigri hrósandi: „Við unnum, við unnum. Það er vatn framundan." Þeir hlupu ákafir síðasta spölinn. Þeir sáu svert- ingjann hlaupa í var undir sandöldinni. Wicknell nam staðar og hóf riffilinn á loft. Wargoton kallaði á hlaupum: „Láttu hann eiga sig, við höfðum okkar fram." Mennirnir þrír fleygðu sér niður við lindina og svolgruðu í sig moðvolgt vatnið og skvettu því framan í sig. Þeir lágu á hliðinni og leyfðu kameldýrunum tveimur að slökkva þorstann. Það var Wargoton sem fyrstur fann sverðsstungu sársaukans. Síðan lagðist kvölin á Lorrest og því næst á Wicknell. Wargoton leit í þrútin augu félaga sinna. Hann stundi: „Liles, þessi bannsetti Liles hefur verið hérna á undan okkur. Hann er alltaf að reyna að útrýma svertingjunum, það er búið að eitra lindina." Munda horfði hlutlausum augum á atburðinn fyrir neðan sig. Konan hans kom gangandi eftir sandhryggnum og bar vatnsker á 53

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.