Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 6
Kauptu miða á www.das.is eða í síma 561 7757
„Við þökkum þér fyrir að taka þátt í Happdrætti DAS
og gera með því líf okkar hér á Hrafnistu betra.“
51.000 VINNINGAR DREGNIR ÚT Á ÁRINU!
Fylgstu með okkur á Facebook
DýravernD Matvælastofnun neitar
að afhenda Fréttablaðinu upplýsing-
ar um aðfinnslur héraðsdýralækna
stofnunarinnar varðandi aðbúnað og
umhirðu dýra á lögbýli á Vesturlandi.
Neitun Matvælastofnunar barst
Fréttablaðinu sama dag og forstjóri
stofnunarinnar lofaði bót og betrun
og ríkari upplýsingagjöf til almenn-
ings í Kastljósviðtali. MAST mun ekki
veita upplýsingar um dýravelferð hjá
íslenskum bændum.
„Þar sem beiðnin lýtur að einstakl-
ingum sem stunda búskap á heimili
sínu telur Matvælastofnun, með vísan
í 9. gr upplýsingalaga, að óheimilt
sé að veita aðgang að umbeðnum
gögnum,“ segir í svarbréfi Matvæla-
stofnunar.
Jón Gíslason, forstjóri Matvæla-
stofnunarinnar, segist áfram um það
að auka upplýsingagjöf til neytenda
um dýravelferð en kveðst ekki geta
veitt upplýsingar um bændur, þó að
þeir beri ábyrgð á meginþorra þeirra
dýra sem eru til í landinu.
„Við áttum gott spjall við atvinnu-
vegaráðuneytið um þessi mál fyrr í
vikunni. Þar bentum við á að í mat-
vælalögum og í lögum um fóður
eru ákvæði um upplýsingagjöf. En í
lögum um dýravelferð eru engin slík
ákvæði,“ segir Jón.
„Við mæltumst til þess að fjallað
yrði um heimildir og skyldur um
upplýsingagjöf vegna dýravelferðar.
Ráðuneytið verður svo að skoða þau
mál,“ bætir Jón við.
Mál Brúneggja hefur vakið verð-
skuldaða athygli og hefur Matvæla-
stofnun fengið á sig mikla og háværa
gagnrýni í kjölfarið. Í yfirlýsingu
Matvælastofnunar segir að nú þurfi
að læra af reynslunni og auka á upp-
lýsingagjöf.
„Af þessu hefur stofnunin dregið
lærdóm og bætti upplýsingagjöf
snemma á árinu. Frekari skref til að
auka upplýsingagjöf til neytenda eru
í farvatninu,“ segir í yfirlýsingu MAST.
Hallgerður Hauksdóttir, formaður
Dýraverndarsambands Íslands, segir
mikilvægt að upplýsingum sé ekki
haldið leyndum.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli
að gögn um illa meðferð búfjár séu
opinber almenningi, svo neytendur
geti valið og hafnað,“ segir Hallgerður.
„Mér sýnist miðað við þessa neitun að
Matvælastofnun ætli sér ekki að bæta
ráð sitt varðandi upplýsingagjöf til
almennings.“ sveinn@frettabladid.is
Ekki upplýst um aðbúnað hjá bændum
Þrátt fyrir orð forstjóra MAST um bót og betrun hvað varðar upplýsingagjöf um dýravelferð mun stofnunin ekki veita upplýsingar um
íslenska bændur. Formaður Dýraverndarsambands Íslands gagnrýnir þetta og segir gríðarmikilvægt að upplýsa um illa meðferð búfjár.
Matvælastofnun mun tryggja að upp-
lýsingar um dýravelferð hjá bændum
fari ekki til almennings.
Þakklætisvottur til minningar um dóttur
Hjónin Gunnar Lúðvík Gunnarsson bóndi og Rebekka Ingadóttir hjúkrunarfræðingur afhentu í gær Landhelgisgæslunni ómtæki að gjöf til minn-
ingar um litlu dóttur sína, Jenný Lilju Gunnarsdóttur, sem lést af slysförum á Einiholti í Biskupstungum í október 2015, aðeins þriggja ára. Tækið
gerir þyrluáhöfnum kleift að greina mun betur en áður ástand sjúklinga, ekki síst barna. Fréttablaðið/SteFán
LögregLumáL Grunur leikur á að
kveikt hafi verið í athafnasvæði
Hringrásar við Klettagarða í Reykja-
vík á þriðjudagskvöld. Bruninn er sá
sjöundi á tuttugu árum á svæðinu.
Kristján Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Hringrásar, segir að íkveikjan
hafi verið kærð til lögreglu en gefur
ekki upp hvort einhver liggi undir
grun.
Starfsemi Hringrásar var stöðvuð
af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur í
kjölfar brunans er í ljós kom að
fyrirtækið braut gegn starfsleyfi
með því að geyma of mikið efni á
vinnusvæði sínu.
Í tilkynningu frá Hringrás segir
að öryggisgæsla hafi verið aukin og
unnið sé að því að uppfylla skilyrði
starfsleyfisins. – þh
Kærðu íkveikju
til lögreglunnar
Hringrás segist nú uppfylla kröfur.
Fréttablaðið/anton brink
Mér sýnist miðað
við þessa neitun að
Matvælastofnun ætli sér ekki
að bæta ráð sitt varðandi
upplýsingagjöf til almenn-
ings.
Hallgerður Hauks-
dóttir, formaður
Dýraverndarsam-
bands Íslands
3 . D e s e m b e r 2 0 1 6 L a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
B
-7
C
D
C
1
B
8
B
-7
B
A
0
1
B
8
B
-7
A
6
4
1
B
8
B
-7
9
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K