Fréttablaðið - 03.12.2016, Síða 12

Fréttablaðið - 03.12.2016, Síða 12
Ert þú að rannsaka orku og umhverfi? Náttúrulegir orkugjafar, ný nálgun og hugvitsamlegar lausnir móta orkuvinnslu framtíðarinnar. Við óskum eftir umsókn um til Orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar sem veitir styrki til náms og rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála. Til úthlutunar úr sjóðnum árið 2017 eru 58 milljónir króna. Kynntu þér málið á landsvirkjun.is. Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2017. dómsmál „Ég gat ekki séð að þetta færi öðruvísi,“ segir Baldur Björns- son, framkvæmdastjóri Múrbúðar- innar, um dóm Hæstaréttar sem sakfelldi átta starfsmenn BYKO og Húsasmiðjunnar fyrir verðsamráð og samkeppnislagabrot. Upphafið má rekja til þess að starfsmaður Baldurs, sem sá um gróf- vörudeildina, fékk símtal frá keppi- nautunum sem báðu hann um að skiptast á verðupplýsingum. Hann neitaði og hringdi í Baldur sem kom og hlustaði næst þegar símtal barst. „Ég er varla kominn inn til hans þegar síminn hringir frá Húsasmiðj- unni sem hann leyfði mér að hlusta á. Þetta símtal var borðleggjandi um hvað var í gangi og ég keyrði strax niður til Samkeppniseftirlits og sagði frá.“ Alls voru tólf ákærðir. Steingrímur Birkir Björnsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fagsölusviðs BYKO, fékk þyngsta dóminn eða 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna. Stefán Árni Einarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri vörustýringar- sviðs Húsasmiðjunnar, og Júlíus Þór Sigurþórsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri vörustýringarsviðs Húsasmiðjunnar, fengu níu mánaða skilorðsbundið fangelsi. Verðsamráðið sem dæmt var fyrir stóð yfir í sex mánuði, frá september 2010 til mars 2011. „Sektin og málaferlin taka bara til þessara sex mánaða. Hvað var þetta búið að vera í gangi lengi á einn eða annan hátt?“ spyr Baldur. Samkeppniseftirlitið sektaði BYKO um 650 milljónir króna vegna brota gegn samkeppnislögum og EES- samningnum vegna samráðsins við Húsasmiðjuna í fyrra. Málið hófst 2010 er Múrbúðin ætlaði að hefja sölu á grófvöru. Sam- keppniseftirlitið gerði 416 blaðsíðna skýrslu um málið árið 2013. Baldur segir að eftir að hafa lesið þá skýrslu hafi honum runnið kalt vatn milli skinns og hörunds. „Þetta var eins og í lygasögu. Ásetningurinn var svo mikill. Og þegar héraðsdómur dæmdi þá svo saklausa og taldi þetta venjuleg viðskipti, veistu … Það eru bara fífl í þessum héraðsdómi. Ég gat aldrei séð að þetta færi neitt öðruvísi.“ Baldri gremst að stjórnendur og aðrir í fyrirtækjunum gangi hreinir og beinir frá þessu máli . Hann finnur ekki fyrir gleði yfir að áttmenning- arnir hafi fengið dóm. Dapurlegt sé hversu málið hafi tekið langan tíma fyrir sakborningana. „En stjórnendur og efstu lögin í fyrirtækjunum eru að labba frá þessu. Fyrir mig er þetta búið að vera rosalegt. Í fyrravor þegar sektin var lækkuð fór alls konar fólk að skíta út mitt nafn og Múrbúðina. En nú eru öll kurl komin til grafar. Nú er æðsti dómstóll landsins búinn að segja sitt síðasta orð.“ benediktboas@365.is Eitt lítið símtal felldi byggingarisana tvo Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar, segist ekki fagna því að menn fái dóma en fagnar niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í verðsamráðsmáli BYKO og Húsasmiðjunnar. Hæstiréttur sneri við dómi héraðsdóms. Baldur segir að það séu bara fífl í héraðsdómi. Símtöl og póstar úr verðsamráðsmálinu Meðal gagna í málinu voru tölvu­ póstsamskipti milli starfsmanna BYKO og Húsasmiðjunnar árið 2010 og fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Þar kennir ýmissa grasa. „Hvert er verðið á steinullinni frá Múrbúðinni?“ „Þeir gefa mér ekki upp verð. Ég er að fá verktaka til að fá verð í þetta fyrir mig.“ „Guðmundur L er að gera verð­ kannanir fyrir ykkur þar sem miðast er við að þið fáið þær mánaðarlega … Allur mismunur sem er á milli vörunúmera í samanburði við BYKO skal jafna (ef undan­ tekningar eiga sér stað látið mig þá vita).“ „Samkvæmt verðkönnun Ragnars þá erum við aðeins hærri í 4 teg. spónaplatna. Eigum við ekki að lækka okkur undir þá?“ Einnig voru lagðar fram hljóð­ upptökur. Þar er eftirfarandi samtal Steingríms og Júlíusar Þórs: „Veistu, ég hringdi. Ég hef nú aldrei gert þetta áður en ég held að ... og ég er núna ... ég stjórna tilboðsmál­ unum hjá okkur, allavega varðandi grófu vöruna ... Og þetta er komið bara í algjört bull ... Þetta eru orðin hjaðningavíg ef þetta heldur svona áfram.“ Júlíus Þór: „Já. Þetta verður bara hjaðningavíg.“ Steingrímur Birkir: „Ég skal bara segja þér það og ég er búinn að tala við BF hjá mér ... og ég mun núna, í allri tilboðsgerð, frá og með bara sko morgundeg­ inum ... Þá mun ég ýta öllu upp. Öllu. Alveg sama hvað það er og það verður ... Ég mun handstýra allri tilboðsgerð núna í heilan mánuð.“ Júlíus Þór: „Þetta eru hjaðningavíg ... við erum að blæða báðir tveir.“ Stein­ grímur Birkir: „Algjör ... ég veit nú að við erum báðir jafn ósáttir við það.“ Júlíus Þór: „Við erum bara að drepa hvern annan.“ Steingrímur Birkir: „En við viljum hafa fagleg vinnubrögð og allt það og ... ekkert eitthvað húmbúkk, en þetta gengur ekki.“ Júlíus Þór: „Nei, veistu það, við erum bara að drepa hvern annan. Menn leka tilboðunum á milli okkar.“ Steingrímur Birkir: „Alveg miskunnarlaust.“ Rétt á eftir sagði Júlíus Þór: „Við lifum þetta ekki af ef við ætlum að halda þessu áfram.“ Steingrímur Birkir: „Nei, ég ætla mér sem sagt að hækka núna, bara handvirkt, tilboð. Alveg sama hvað er …“ Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar. FréttaBlaðið/Valli 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 l A U G A r d A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 8 B -7 7 E C 1 B 8 B -7 6 B 0 1 B 8 B -7 5 7 4 1 B 8 B -7 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.