Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 32

Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 32
M ín áhugamál tengjast hand­verki að mestu, enda er ég alin upp við hand­verk. Pabbi var bólstrari og mamma eina íslenska konan sem lauk námi í körfu­ mublusmíði. Einn vetur var ég í Noregi í skóla og stúderaði mynd­ vefnað, fór mikið á sýningar og í kirkjur og einhverra hluta vegna fékk ég áhuga á altarisdúkum enda hafði ég lengi safnað textíl og sýslað með munstur. Ég hafði sam­ band við vinkonu mína, Oddnýju E. Magnúsdóttur á Húsavík, sem er þjóðfræðingur og spurði hvort hún væri ekki til í að koma með mér í íslenskar kirkjur að skoða altaris­ dúka og hún var það. Þannig fór snjóbolti af stað.“ Þetta segir Jenný Karlsdóttir, fyrrverandi kennari, sem vinnur að því að mynda og skrá altarisdúka í öllum kirkjum landsins. „Við Oddný erum búnar að kemba Norður­ landið, Borgarfjörð, Árnessýslu og Fljótsdalshérað og fara þar í hátt í 200 kirkjur. Ég gæti trúað að dúk­ arnir væru orðnir um 300 því sumar kirkjur eiga gamla dúka, aflagða og okkur finnst mikill fengur í að fá að skoða þá og mynda. Sumir eru líka komnir á söfn í sínum heimahér­ uðum og hefur jafnvel verið bjargað úr ruslapokum,“ segir Jenný og tekur fram að þær Oddný séu fyrst og fremst að rannsaka munstrin, verk­ efnið komi trúmálum ekkert við. Jenný segir aðallega þrjár hann­ yrðaaðferðir notaðar við gerð alt­ arisdúka, hekl, harðangurssaum og feneyjasaum. Einnig séu dúkar handofnir og gerðir með fleiri aðferðum. „Dúkar með feneyja­ saumi eru yfirleitt gamlir. Þeir elstu sem við höfum rekist á eru um það bil aldargamlir og nokkrir  enn í notkun. Það er erfitt að nálgast munstur á slíkum dúkum nú orðið.“ Þær Jenný og Oddný sækjast eftir að skrá aldur og vinnslusögu dúk­ anna og af hvaða tilefni  þeir hafa komist í eigu viðkomandi kirkna. Þar styðjast þær einkum við upp­ lýsingar heimafólks sem þær hitta á ferðum sínum en ýmislegt er líka skráð í kirkjubækur. „Oft tengjast kærleikur og  virðing gerð altaris­ dúka, í mörgum tilfellum eru þeir minningargjafir. Við vitum dæmi um að fleiri en einn ættliður hefur sameinast um að gera dúk, jafnvel heilt kvenfélag þannig að dúkur hafi gengið á milli kvenna þar til saumaskap var lokið. Til er líka að kona hafi séð fyrir sér rúmlegu eða rólegheit í einhvern tíma og þá notað tímann í að gera altarisdúk. Svo hafa nokkrar konur gert marga altarisdúka. Ein þeirra var Anna frá Moldnúpi undir Eyjafjöllum, við höfum víða rekist á dúka eftir hana.“ Altarisdúkarnir eru eftir konur í langflestum tilfellum, að sögn Jenn­ ýjar. „Á öllu Norðurlandi vitum við bara um einn dúk sem karlmaður tók þátt í að gera með því að teikna munstur fyrir konu sína. Á sumum Oft tengist kærleikur gerð altarisdúka Jenný Karlsdóttir, fyrrverandi kennari, rannsakar altarisdúka í eigu íslenskra kirkna ásamt vinkonu sinni, Oddnýju E. Magnús- dóttur þjóðfræðingi. Þær hafa þegar heim- sótt um 200 kirkjur í landinu og eiga álíka fjölda eftir. Í ferðunum safna þær myndum og sögum af þeim gersemum sem margir handunnir altarisdúkar eru. Jenný hefur viðað að sér þekkingu á handverki í tæp 70 ár. Á síðustu árum hefur hún tekið myndir af um 300 íslenskum altaris- dúkum og er hvergi nærri hætt. Mynd/Auðunn níelsson Harðangursdúkur, sérhannaður fyrir laufáskirkju í eyjafirði, eftir Ingu Gústafsdóttur. Mynd/Jenný Anna frá Moldnúpi heklaði þessa blúndu þegar hún var í síld á Raufarhöfn og gaf kirkjunni þar dúkinn. Mynd/Jenný Gamall dúkur með feneyjasaumi í eigu Garðskirkju í Kelduhverfi. „Þetta munstur er ekki algengt en þó höfum við fundið það á nokkrum stöðum,“ segir Jenný. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Snyrtistofan Ha lik Við sérhæfum okkur í Háræðaslitsmeðferðum Góður árangur – Gott verð Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com Bjóðum einnig árangursríka húðslípimeðferð Fyrir Eftir Fyrir Eftir 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r32 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 8 B -5 A 4 C 1 B 8 B -5 9 1 0 1 B 8 B -5 7 D 4 1 B 8 B -5 6 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.