Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 88
L jósmyndatæknin kom fram í Frakklandi á þriðja áratug nítjándu aldar og fyrstu áratug-ina voru Frakkar í farar-broddi í þróun hennar.
Áhugi almennings á ljósmyndum
var mikill og gátu slyngustu ljós-
myndarar öðlast mikla frægð. Fáir
urðu þó jafn þekktir og Parísar-
búinn Nadar.
Nadar hét réttu nafni Gaspard-
Félix Tournachon og var vinsæll
skopmyndateiknari og rithöfundur
áður en hin nýja tækni vakti athygli
hans. Hann var vel tengdur í menn-
ingar- og næturlífi Parísarborgar,
þekkti frægðarfólk og gat fyrir vikið
tekið myndir af fjölda heimskunnra
stjórnmálamanna, rithöfunda og
listafólks sem vandi komur sínar til
stórborgarinnar. Fyrir vikið er erf-
itt að blaða í yfirlitsritum um sögu
nítjándu aldar án þess að rekast á
myndir úr smiðju Nadars.
En auk þess að vera slyngur
myndasmiður hafði Nadar ástríðu
fyrir flugi. Hann iðkaði loftbelgja-
flug af kappi, tók fyrstu loftmyndir
sögunnar og lét árið 1863 útbúa
risaloftbelg, sextíu metra háan.
Þegar nýja loftbelgnum hlekktist
illa á í öðru flugi sínu komst Nadar
á þá skoðun að framtíð flugsins
fælist í smíði farartækja sem væru
þyngri en andrúmsloftið. Þannig
varð hann einn allra fyrsti hvata-
maður þess að þróa flugvélar.
Loftbelgjaævintýri Nadars varð
ungum landa hans og upprennandi
rithöfundi innblástur. Fyrsta skáld-
saga Jules Verne nefndist „Fimm
vikur í loftbelg“, kom út árið 1863
og fjallaði um ævintýralega ferð í
risaloftbelg um lítt þekkt héruð í
Afríku. Sagan sló í gegn og markaði
upphafið á glæstum höfundarferli.
Áður hefur verið fjallað um Jules
Verne í þessum pistlum og þá sér-
staklega sögu hans um Leyndar-
dóma Snæfellsjökuls. Líkt og í
flestum bóka höfundarins er þar
fléttað saman spennandi ævintýri
og vísindaskáldskap, sem innifelur
bæði nýlegar vísindauppgötvanir
og -kenningar og vangaveltur um
mögulega tækni framtíðarinnar.
Furðu oft hefur Verne reynst sann-
spár á tækni- og vísindasviðinu og
í öðrum tilvikum hafa sögur hans
orðið vísindamönnum innblástur
og kveikja hugmynda.
Heimsins stærsta byssa
Skemmtileg dæmi um þetta má
finna í þríleik Vernes um Balti-
more-byssuklúbbinn sem út kom
á árunum 1865-89. Tvær fyrri bæk-
urnar í sagnaflokknum ættu flestir
lesendur að þekkja sem „Ferðina til
Tunglsins“ en fáir hafa heyrt þeirrar
þriðju getið. Hún hefur þó öðlast
nýtt líf á liðnum árum í tengslum
við umræðuna um hlýnun Jarðar.
Fyrsta bókin í þríleiknum kom
út sama ár og bandaríska borg-
arastríðinu lauk og segir frá hópi
byssuáhugamanna í Baltimore
sem þegar eru farnir að leita sér
að nýjum viðfangsefnum. Byssur
eru þeirra líf og yndi og fær einn
í hópnum þá flugu í höfuðið að
útbúa heimsins stærsta byssuhlaup
og skjóta risavaxinni byssukúlu til
Tunglsins.
Klúbbfélagar ákveða að láta slag
standa og grafa nærri 300 metra
djúpa og átján metra breiða holu
á Flórídaskaga til að koma byssu-
hlaupinu fyrir í. Fer svo drjúgur
hluti bókarinnar í að lýsa verk-
fræðilegri tilhögun byssugerðar-
innar, ræða fjármögnun verkefnis-
Skotist til Tunglsins og
jöklarnir bræddir
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um vísindaskáldskap
ins og svara því hversu hratt yrði að
skjóta kúlunni til að hún næði að
losna undan aðdráttarafli Jarðar.
Franskur fullhugi, sem augljós-
lega var byggður á fyrrnefndum
Nadar, kemur að máli við skipu-
leggjendur og sannfærir þá um að
hafa geimskotið mannað. Byssu-
kúlunni er breytt í geimfar og sá
franski sest um borð ásamt tveimur
erkióvinum úr byssuklúbbnum.
Sögunni um ferðina til Tunglsins
lýkur þegar búið er að hleypa af og
byssukúlan/geimfarið hendist í átt
að mánanum.
Fimm ár liðu uns forvitnir les-
endur fengu að fregna um afdrif
þremenninganna í bókinni
„Umhverfis Tunglið“. Þar rekur
höfundurinn samviskusamlega
gang geimferðarinnar. Synd væri að
segja að það sé allt skemmtilesning,
því í stað þess að gefa ímyndunar-
aflinu lausan tauminn og skapa
furðuveröld með geimverum á
mánanum, þylur Verne samvisku-
samlega helstu kenningar þess tíma
um hvernig þar væri um að litast.
Ævintýramennirnir þrír höfðu
búist við að lenda á Tunglinu í hálf-
gerðri sjálfsmorðsför, en áætluð
braut geimfarsins sveigist til eftir að
hafa óvænt farið nærri torkennileg-
um smáhnetti. Fyrir vikið svífa þeir
hring umhverfis Tunglið og falla
því næst aftur til Jarðar, þar sem
bandarískt herskip kemur þeim
til bjargar. Jafnvel þetta litla atriði,
smáhnötturinn milli Jarðar og
Tungls, byggðist á nýjum vísindatil-
gátum því nokkrum árum fyrr hafði
franskur stjörnufræðingur, Frédéric
Petit, sagst hafa uppgötvað fylgi-
tungl sem gengi umhverfis Jörðina
eftir sporöskjulaga braut.
Í dag líta flestir á þessar tvær
bækur sem eina samhangandi sögu.
Öðru máli gegnir um þriðju bók rit-
raðarinnar, sem kom út aldarfjórð-
ungi síðar og var í talsvert öðrum
dúr. „Kaupin á Norðurpólnum“
segir að nokkru leyti frá sömu per-
sónum og stórvirkar byssur koma
við sögu, en þar lýkur samanburð-
inum.
Bókin var samin árið 1889 og
látin gerast í nálægri framtíð.
Alþjóðasamfélagið ákveður
að efna til uppboðs á norður-
pólnum. Norðurlandabúar, Rússar
og Hollendingar bjóða í svæðið
en að lokum stendur slagurinn á
milli bresku ríkisstjórnarinnar og
dularfulls bandarísks huldufélags.
Bandaríkjamennirnir bjóða hæst
og greiða svimandi fjárhæð fyrir
ógnarstórt landsvæði á heimskauts-
svæðinu.
Kaupin vekja furðu margra, enda
óljóst eftir hverju sé að slægjast á
þessum slóðum öðru en snjó og
ís. Jarðvísindamenn benda á að
líklega sé mikið af kolum að finna
í jörðu undir Norðurpólnum (á
ritunartíma sögunnar var talið lík-
legt að fast land væri undir stórum
hluta ísbreiðunnar) en vandséð var
hvernig þær mætti nýta, enda nær
vonlaust að komast á svæðið, hvað
þá að grafa sig í gegnum þykkan
jökulinn.
Árstíðunum útrýmt
Í ljós kemur að hinir leynilegu
kaupendur eru félagarnir úr Balti-
more-byssuklúbbnum. Að þessu
sinni hafa þeir í huga enn stórfeng-
legri byssusmíði en fyrr – í stað þess
að skjóta geimfari í átt frá Jörðu,
hyggjast þeir snúa byssuhlaupinu
í hina áttina, að iðrum Jarðar. Hug-
myndin er sú að framkalla slíkan
hvell að hann dugi til að rétta af
möndulhalla Jarðar, sem fyrir vikið
yrði með hornréttan möndulsnún-
ing líkt og reikistjarnan Júpíter.
Að mati hinna byssuglöðu
Bandaríkjamanna hafði þessi rót-
tæka hugmynd gríðarlega kosti í för
með sér fyrir mannkynið. Með því
móti yrðu dagur og nótt nákvæm-
lega jafn löng allan ársins hring.
Þar með myndu árstíðir hverfa úr
sögunni og veðráttan yrði ætíð sú
sama. Hver maður gæti því valið sér
það loftslag sem honum hentaði
best og flutt á þá breiddargráðu.
Kvefpestir myndu heyra sögunni til.
Landbúnaðarframleiðsla hlyti að
margfaldast þar sem rækta mætti
óháð árstímum og svo mætti lengi
telja. Aðstandendurnir myndu
svo hagnast gríðarlega, því eftir
umskiptin myndi ísinn á Norður-
pólnum hverfa á fáeinum árum
og hinar auðugu kolanámur verða
auðvinnanlegar.
Ekki leið þó á löngu uns tvær
grímur fóru að renna á ýmsa vegna
möndulhallabreytingarinnar.
Ljóst væri að sprengingin mikla
hefði veruleg áhrif um heim allan.
Heilu landsvæðin gætu sokkið í sæ
en önnur myndu rísa úr hafi. Stór-
borgir á borð við Lundúnir yrðu ef
til vill á fjallstindum og hafnarborg-
ir inni í miðju landi. Byssuklúbbs-
menn létu þó slíkar úrtöluraddir
sem vind um eyru þjóta. Á laun
tókst þeim að útbúa ógnarstóra
byssu á Kilimanjaro-fjalli í Afríku
og sönkuðu að sér óhemjumagni
af sprengiefni.
Stóri dagurinn rann upp og fjár-
festarnir ábyrgðarlausu létu til
skarar skríða. Sprengingin varð
geigvænleg og eyðileggingin í
námunda við sprengjustæðið mikil,
en Jörðin bifaðist ekki eitt hænufet.
Talnameistari verkefnisins lagðist
á ný yfir útreikninga sína og upp-
götvaði skelfilega villu. Snemma í
ferlinu hafði hann í ógáti máð þrjú
núll aftan af tölu, sem aftur vatt
upp á sig. Eðlisfræðin á bak við til-
raunina var kórrétt, en allar tölur
hefðu þurft að vera trilljón sinnum
stærri til að ná tilætluðum árangri.
Stærðfræðingurinn verður að
athlægi, þótt alþýða manna fagni
raunar reikniskekkju hans eftir að
fólki verður betur ljóst hversu alvar-
legar afleiðingar verkefnið hefði
haft í för með sér. Sá tölvísi getur
þó huggað sig við að þótt orðstír-
inn sé farinn, tekst honum að finna
ástina – í vellríku ekkjunni sem fjár-
magnað hafði verkefnið að mestu.
Kaupin á Norðurpólnum er
óhefðbundin vísindaskáldsaga og
að sumu leyti frekar hugartilraun
en eiginlegur vísindaskáldskapur
– því í bókarlok er lesandanum
kippt niður á jörðina með því að
útskýra að öll áformin hafi í raun
verið loftkastalar. Jafnframt felur
verkið í sér beinskeytta gagnrýni á
framferði ófyrirleitinna kaupsýslu-
manna sem hika ekki við að stofna
afkomu milljóna manna í hættu til
að tryggja eigin hag.
Þótt sagan sé um margt frumleg
verður hún seint talin til öndvegis-
verka Jules Verne og er það sér-
viskuleg að henni er nánast alltaf
sleppt þegar tunglferðarsögurnar
eru endurútgefnar. Á síðustu árum
hefur hún þó vakið áhuga á nýjan
leik enda auðvelt að finna sam-
svaranir við samtímann í bók sem
fjallar um menn sem hika ekki við
að bræða ís heimskautanna til að
komast í meira kolefnaeldsneyti
og finnst lítið mál að breyta lofts-
lagi Jarðar með varanlegum hætti.
Alltaf skal Jules Verne takast að spá
rétt um framtíðina.
ALÞJÓÐASAMFÉLAGIÐ
ÁKVEÐUR AÐ EFNA TIL
UPPBOÐS Á NORÐUR-
PÓLNUM.
3 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
B
-9
F
6
C
1
B
8
B
-9
E
3
0
1
B
8
B
-9
C
F
4
1
B
8
B
-9
B
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K