Víkurfréttir - 15.12.1983, Side 28
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
BARNASAGA:
Sagan af Ella ómögulega
I. KAFLI
Matartími
Elli, Elli, komdu inn að
borða, var kallað.
Oooo, alltaf að koma inn
að borða, heyrðist tautað á
bak við bílskúrinn. Það er
eins og fullorðið fólk sé
með matartima á heilanum.
Ætli það sé með graut i
staðinn fyrir heila? Þessar
hugsanir og aðrar álíka uitu
um i kollinum á honum Ella,
þegar hann rölti fyrir hús-
hornið og inn í garðinn.
Sterk lykt af soðnum salt-
fisk og hamsatólg fyllti
ganginn. Oj barasta, manni
verður nú barasta flökurt,
hugsaði Elli um leið og
hann fór úr moldugum
strigaskónum. Það er eins
og saltfiskur sé það eina
sem selt er í matarbúðun-
um. Ég veit barastaekki um
neitt sem er eins vont og
þessi eilífðar saltfiskur. En
ég segi bara, laugardagur
er alltaf saltfiskur og meiri
og meiri saltfiskur.
Jæja, Elli minn. Sestu nú
við matarborðið og fáðu þér
að borða. Nei, heyrðu mig
nú, Elías. Viltu hætta að
toga í hárið á systur þinni.
Já, og láttu hamsatólgina
vera. Já, varaðu þig. Elías,
sjáðu hvað þú hefur gert.
Hellt tólginni yfir allt matar-
borðið. Nú kalla ég á hann
pabba þinn og læt hann
taka þig í gegn fyrir óþekkt-
ina í þér Komdu þér inn í
herbergið þitt og það nú á
stundinni. Ooh, þessi
drengur, hann á eftir að
gera mig gráhærða ein-
hvern daginn, stundi
mamma hans Ella um leið
og hún gerði heiðarlega til-
raun til að hreinsa hamsa-
tólgina upp af matarborð-
inu.
Elli labbaði hljóðlega inn í
herbegið sitt og lokaði
hurðinni hljóðlega á eftir
sér. Þá setti hann upp
ánægjubros. Þarna slapp
ég við að borða saltfiskinn,
hugsaði hann og brosti
síðan ennþá meira.
2. KAFLI
Veiðiferð
Heyrðu, pabbi, má ég fá
lánaða veiðistöngina þína?
Elli stóð við sófann þar sem
pabbi hans lá og fékk sér
síðdegisblundinn. Pabbi,
má ég það? Ha, pabbi,
gerðu það.
Já, já, taktu hana, umlaði
pabbi upp úr svefninum.
Hann tautaði síðan eitthvað
um að það væri aldrei friður
í þessu húsi fyrir gargi og
góli og eilífri heimtufrekju í
krakkaskömmunum. Síðan
bylti hann sér á hina hlið-
ina og sveif inn i drauma-
heiminn á ný.
Elli skaust sem örskot
niður i kjallara og dró fram
veiðistöng. Ætli ég megi fá
þessa? hugsaöi hann. Eða
þessa þarna, og starði upp á
hillu þar sem önnur stöng
lá. Já, auðvitað hlýtur það
að vera hún. Þetta er eld-
gömul veiðistöng sem hann
afi átti. Elli teygði sig upp á
hillu og tók stöngina. Hann
týndi síöan nokkrar veiði-
flugur, sökkur og öngla úr
veiöiboxi pabba síns. Síðan
stakk hann laumulega vasa-
hníf sem lá í veiðiboxinu, í
buxnavasa sinn. Ja, maður
verður að geta skorið niður
beitu, hugsaði Elli ibygginn
Elli tók síðan stefnuna
niður á bryggju. Þegar
þangað var komið, var nú
farið að huga að veiðitækj-
unum. Ætli það sé ekki best
að setja eins og tvær veiði-
flugur og tvo öngla á í einu?
Auðvitað hef ég sökkur á
líka. Nei, ég setallaönglana
á í einu. Þá hlýt ég að fiska
meira. Elli framkvæmdi
þetta með hraði og renndi
síðan færinu í sjóinn. Hann
dorgaði síðan en aldrei beit
neinn fiskur á. Elli ákvað þá
að láta færið síga til botns.
Síðan kippti hann snöggt i.
En hvað var nú að? Allt fast.
Hvurt þó í hoppandi, sagði
Elli. Hann togaði og tosaði,
en ekkert gekk. Nú tek ég
tilhlaup og hleyp upp
bryggjuna, og þá hlýtur
færið að losna. Elli hljóþ af
stað. Veiöistöngin bognaði
meira og meira. Allt í einu
hafði stríkkað svo mikið á
linunni, að stöngin kipptist
úr höndum Ella og sveif í
stórum boga út í sjó. Og það
sem verra var. Hún sökk til
botns. Elli starði vonsvik-
inn niður í sjóinn.
Jæja, þá er þessi veiði-
ferð búin, sagði Elli hnugg-
inn við sjálfan sig. Ég hugsa
bara að það hafi verið risa-
hákarl sem beit á hjá mér.
Þetta var svo rosa þungur
og sterkur fiskur.
Elli rölti heim á leið og
hugsaði mikið um hvað nú
yrði sagt við hann. Hann
yrði nú aldeilis skammaður
núna. Og þó, þetta var
gömul veiðistöng. Gamalt
úrelt drasl. Pabbi má bara
vera ánægður að losna við
drasl úr kjallaranum hjásér.
Enda er hann alltaf að tala
um að fara nú og henda
þessu drasli sem er i kjall-
aranum út í hafsauga. Þetta
var þó alltaf til að hjálpa til.
Þegar Elli hafði komist að
þessari niðurstöðu varð
hann glaður og ánægður.
Þegar hann kom heim hljóp
hann inn í stofu til pabba
síns og vakti hann. Pabbi,
pabbi, ég tók til i kjallaran-
um fyrir þig. Ég tók gömlu
veiðistöngina frá honum
afa og henti henni út í hafs-
auga eins og þú hefur verið
að tala um að gera við
gamla draslið i kjallaranum.
Elli hafði varla lokið við
að buna öllu þessu út úrsér,
þegar hann sá hvernig
pabbi hans roðnaði og föln-
aði og lyftist síðan upp úr
sófanum með ógurlegu
stríðsöskri. Hvað sagðirðu,
Elías? Hentirðu veiðistöng-
inni frá honum afa þínum í
sjóinn? Hver sagði að þú
mættir fá hana lánaða?
Þettá er erfðagripur, algjör
dýrgripur, þessi veiðistöng.
Óóóó, ææææ, nú er hún
horfin. Hypjaðu þig inn í
herbergið þitt og láttu ekki
sjá þig meira í dag.
Elli gekk niðurlútur inn í
herbergið sitt. Þetta full-
orðna fólk. Segir manni að
maður megi fá veiðistöng-
ina lánaða. Og ég sem fékk
hákarl til að bíta á hjá mér.
Annars getur hann pabbi
öskrað alveg ógurlega hátt.
Hann ætti nú barasta að
leika Tarzan apabróður í
bíómynd. Þá mætti ég
kannski leika með honum.
Elli ákvað síðan með
sjálfum sér að hann skyldi
verða leikari og leika með
pabba sínum í Tarzan-
mynd.
3. KAFLI
Leikhúsið í kjallaranum
Nú liðu nokkrir dagar í
rólegheitum. Svo fékk Elli
þá flugu í höfuðið að útbúa
leiksvið í kjallaranum. Elli
hafði ákveðið það, að nú
ætti hann að leika Tarzan
LÍFEYRISSJÓÐUR VERKALÝÐSFÉLAGA
Á SUÐURNESJUM
• STOFNAÐUR 1970
• AÐILDARFÉLÖG: Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis,
Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur, Verkalýðs-
og sjómannafélag Miðneshrepps, Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Gerðahrepps, Iðnsveinafélag Suðurnesja,
Vélstjórafélag Suðurnesja, Bifreiðastjórafélagið Keilir.
• HLUTVERK: Tryggja sjóðfélögum, eftirlátnum mökum þeirra og börn-
um eftirfarandi lífeyrir:
Ellilífeyrir Örorkulífeyrir Makalífeyrir Barnalífeyrir
Sjóðfélagar eiga rétt á verðtryggðum lánum, sem veitt eru
samkvæmt sérstökum lánareglum.
• STJÓRN SJÓÐSINS: Frá stéttarfélögunum,
María G. Jónsdóttir og Halldór Pálsson
Frá atvinnurekendum,
Jón Ægir Ólafsson og Margeir Jónsson, formaður.
• Skrifstofa sjóðsins er að Suðurgötu 7, Kef lavík - Opin frá kl. 9-16 mánudaga
- föstudaga, sími 3803.