Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.11. 2015 Ég skal játa að ég verð alltaf hálfbanginn þeg-ar farið er að tala um græna orku. Þettakann að hljóma undarlega frá þingmanni „græns framboðs“. Þess vegna er líka skýringar þörf. Ég er því fylgjandi að virkja orkulindir sem eru ekki mengandi og sem ekki eru eyðileggjandi fyrir umhverfið. En iðulega er síðara skilyrðinu sleppt og aðeins horft til mengunar. Samkvæmt þessari skilgreiningu er nánast öll innlend orkuframleiðsla græn. Og grænastur af öllum væri virkjaður Gullfoss eða Dettifoss. Goðafoss væri einnig álitlegur eða háhitasvæðið við Landmannalaugar. Þarna mætti fá mikla „græna“ orku. Íslendingar sýna gjarnan útlendingum stoltir orkuverin sín. Sjáið hve umhverfisvæn og græn við erum, þið getið lært af okkur! Vandinn er sá að Gullfoss og Dettifoss eru ekki á hverju strái. Ekki heldur Landmannalaugar. Hvorki sem orkulindir né sem náttúruperlur. Með vaxandi ferðamannastraum eru Íslendingar að átta sig á efnahagslegu mikilvægi náttúrudjásna og þar með óspilltrar náttúru, óbeislaðra náttúruafla. Ég hlustaði á ágætt viðtal við forstjóra Lands- virkjunar í útvarpi í vikunni. Hann var upprifinn yf- ir heimsókn Camerons, forsætisráðherra Breta, sem hafði lýst áhuga á sæstreng til að flytja raforku frá Íslandi til Bretlands. Aldrei hafði það gerst, svo forstjórinn vissi, að forsætisráðherra stórþjóðar hefði sýnt tiltekinni vöru svona mikinn áhuga. „Varan“ var rafmagnið en kennitalan óljós. Við vitum nefnilega ekki hvaðan ætlunin er að sækja „vöruna“. Án efa í einhvern mjög grænan valkost. Ég hefði áhyggjur héti ég Goðafoss. Sæstrengur gæti nýtt betur umframorku innan- lands, var okkur sagt. Slík umframorka gæti numið 30% af heildarsölunni. En 70% sem eftir stæðu? Við þyrftum að virkja fyrir þeim, upplýsti forstjóri Landsvirkjunar. Hann upplýsti jafnframt að nú hefðum við rammaáætlun. Hún gerði kleift að taka ákvörðun um virkjanir á „faglegum“ forsendum. Hugsunin með rammaáætlun um raforkufram- leiðslu er vissulega góð. Það er bara einn hængur á. Hann er sá að tilgangur framleiðslunnar er aldrei skilgreindur. Guðfaðir rammaáætlunar, Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrverandi þingmaður, hefur bent á takmörk þessa afkvæmis síns. Segir það til lítils nýtt, láti menn undir höfuð leggjast að spyrja til hvers eigi að virkja og hversu mikið. Og skal þá vikið aftur að verslunaráhuga Came- rons, forsætisráðherrans breska. Vilji hann kaupa „vöruna“ á góðum prís, jafnvel í miklu magni, vær- um við þá til í að grípa til grænu kostanna sem við eigum svo mikið af? Allt til að svara eftirspurn eftir vöru? Áhugaverð vara? *Með vaxandi ferða-mannastraum eru Íslendingar að átta sig á efnahagslegu mikilvægi náttúrudjásna og þar með óspilltrar náttúru, óbeislaðra náttúruafla. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Fjölmiðlamaðurinn Gísli Mar- teinn Baldursson vakti nokkra reiði úti á landsbyggðinni þegar hann tísti vegna fréttar í Mogganum um áætlaðan kostnað við snjó- flóðavarnargarða og skildu margir orð hans sem hann vildi frekar að fólk flytti í bæinn en að pen- ingum væri eytt í þetta. Gísli Mar- teinn baðst afsökunar á þessum ummælum og skrifaði svo á Twitter síðar í vikunni: „Ætla að taka myndband af íbúðinni minni til að sýna fólki að hér er ekkert lands- byggðarhatur. Bara ást eins og hjá konunum á Seltjarnarnesi.“ Og Stefán Máni Sigþórs- son rithöfundur kom með tillögu um hvernig hægt væri að laga þetta enn betur: „Sáttartillaga dauðans: Gísli Marteinn flytur til Eyja og Ell- iði Vignis flytur í Vesturbæinn.“ Og Nanna Rögnvaldardóttir matargúrú deildi skemmtilegri sögu á Facebook: „Þegar ég var að horfa á fréttina um aldraða rak- arann á Akranesi áðan datt mér hann Alan heitinn vinur minn í hug. Einhvern tíma þegar ég var gestur þeirra hjóna í London fór hann til rakara og það barst í tal að það gerði hann alltaf hálfsmánaðarlega (sem var ekki augljóst þegar maður sá hárið á honum) og hefði gert frá því hann var að vinna í breska utan- ríkisráðuneytinu skömmu eftir stríð; alltaf á sömu stofuna, til sama karlsins – alltaf nema þegar hann var að störfum erlendis, sendi- herra í Laos og svoleiðis. Rakarinn var reyndar hættur störfum en kom enn sérstaklega á stofuna hálfsmánaðarlega bara til að klippa Alan. Hann var með einn annan fastan viðskiptavin sem hann hafði klippt álíka lengi en sá kom aldrei á stofuna, rakarinn fór ævinlega heim til hans og gerði enn þegar þetta var; það var Filippus prins.“ AF NETINU Gramsað í gömlu á Boston Hægt er að fata sig upp á umhverf- isvænan hátt á Boston í dag. Morgunblaðið/Kristinn Ungir umhverfissinnar halda sinn fyrsta fata- markað á Boston um helgina, laugardaginn 14. nóvember, en markaðurinn hefst klukkan 12 og stendur til kl. 17. Ungir umhverfissinnar eru samtök sem voru stofnuð í hittifyrra og eitt af þeirra helstu markmiðum er endurnýt- ing svo að fatamarkaðurinn rímar þar vel við félagsskapinn þar sem fötin eru öll notuð. Þess má geta að félagsskapurinn er þver- pólitískur og er öllu ungu umhverfis- áhugafólki opinn, frá aldrinum 15-35 ára, og til að skrá sig er hægt að senda póst á um- hverfissinnar@gmail.com. Plötusnúðurinn Þorsteinn Eyfjörð mun þar að auki spila tón- list meðan fólk gramsar í gömlu dóti, eða frá klukkan þrjú. Vettvangur Tímaritið Wallpaper fer lof- samlegum orðum um Loks- ins bar í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar á ferðasíðum sínum og segir að þótt tími glæstra ferðalaga og flug- stöðva sé að mestu liðinn finnist enn staðir eins og Loksins bar. Einkum er þar fjallað um rýmið sjálft og andrúms- loftið en það eru þau Karítas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson sem eiga heiðurinn af hönnun Loksins og er sagt frá því hvernig þau hafi horft til íslenskra timb- urhúsa við hönnun staðarins. Þar að auki er farið ítarlega yfir húsgögnin sem eru öll ann- aðhvort hönnuð eða framleidd á Íslandi og eru úr náttúrulegum efnum, meðal annars úr eik, tekki og leðri. Í greininni er þess getið að umhverfið minni alls ekki á sterílt umhverfi flugstöðva og ferðamenn geti auðveldlega gleymt því hvaðan þeir eru að koma og hvert þeir eru að fara. Blaðamaður tímaritsins Wallpaper segir Loksins bar frábærlega heppnaðan stað og minna lítt á annars einsleitt umhverfi flugstöðva. Wallpaper lofar Loksins bar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.