Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Qupperneq 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Qupperneq 11
nokkra launalækkun til að koma hingað en þau miklu lífsgæði sem felast í því að búa í samfélagi eins og hérna er ekki hægt að mæla í peningum.“ Sigurður er 42 ára. „Margir jafn- aldrar mínir hér eru orðnir afar en ég á bara eina eins árs dóttur! Er því orðinn dálítið langt á eftir með það allt saman.“ Dóttir hans og Gretu heitir Elín Rannveig Líndal, í höfuðið á móður Sigurðar. Hann flutti á borgarhornið 16 ára, 1989, og settist á framhalds- skólabekk. „Eftir það var ég meira og minna fyrir sunnan þar til ég fór í leiklistarnám til London 1995 og ílentist þar. Þaðan kem ég svo heim núna, 20 árum seinna.“ Eftir leiklistarnám lék hann víða ytra en sást þó á sviði hér heima líka. Tók þátt í uppfærslu Leik- félags Akureyrar á Hamlet árið 2002. „Ég byrjaði snemma að leik- stýra úti, bæði atvinnuhópum og í leiklistarskólum og kenndi í viður- kenndum skólum í 12 ár. Ég var svo aðstoðarleikhússtjóri í þrjú og hálft ár í litlu leikhúsi sem var mikill vettvangur fyrir ungt lista- fólk til að prófa ýmislegt.“ Stjórnun og klósettþrif „Það var mjög skemmtilegt að taka þátt í því. Leikhússtjórnin ákveður til dæmis hvað á að sýna en svo ég sé ekki að fegra þetta neitt þá þurftum við líka að þrífa klósettin! Þetta var þannig rekstur að enginn annar var til þess.“ Sigurður er alsæll að vera fluttur heim í Húnaþing. „Já, ekkert smá ánægður og konan mín líka. Við fórum alla leið strax og keyptum okkur hús á Hvammstanga. Greta er reyndar að vinna í London núna, hún hefur svo mikið að gera í augnablikinu að ekki er víst hvað hún getur verið mikið hér.“ Selasetur Íslands er í gömlu hús- næði í eigu Kaupfélags Vestur- Húnvetninga. „Þegar ég var strák- ur voru hér í þessu rými, þar sem skrifstofan mín er, háir staflar af söltuðum gærum,“ segir Sigurður og bætir við hlæjandi: „Fyrir 20 ár- um fór ég til útlanda í leit að frægð og frama en enda svo í kompu hér í gærukjallaranum!“ Tvær tegundir sela kæpa við Ísland, landselur og útselur. Fjórar tegundir í viðbót eru þekktar hér við land sem flækingar, en þær hafa ekki kæpt hér svo vitað sé. Það eru vöðuselur, kampselur – sem er á myndinni – blöðruselur og hringanóri. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson 15.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Hjónin Árný Birna Vatnsdal og Gísli Arnar Gíslason keyptu á dögunum húseignina Hafnarbyggð 17 á Vopna- firði, þar sem þau hafa rekið Hótel Tanga síðustu misseri. Húsið hafði lengi verið í eigu sveitarfélagsins. „Við ákváðum að nýta okkur kaup- réttinn, sem var hugmyndin strax í upphafi þegar við hófum reksturinn. Í því ferli höfum við átt indælis sam- skipti við hreppinn,“ sagði Gísli Arn- ar við blaðamann. Hótelið var opnað á nýjan leik í sumarbyrjun 2014, eftir að það hafði verið lokað um tíma, og segir Gísli að reksturinn hafi verið skv. væntingum, jafnvel ívið betri ef eitthvað er. Húsið er 530 fermetrar. Á hótelinu eru 17 herbergi með 33 rúmum. Að auki er í húsinu veitingasalur og bar. „Sumarið í ár var miklu betra en í fyrra, þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið gott. Hingað kom mjög mikið af útlendingum en sáralítið af Íslend- ingum; þeir elta veðrið.“ Þrjú ár eru síðan hjónin ákváðu „að fara út fyrir þægindahringinn,“ eins og Gísli orðar það; hættu í fyrri störf- um og keyptu sjoppuna í bænum. Í framhaldi af því tóku þau að sér að reka hótelið. Segja má að kaupin á húsnæðinu við Hafnarbyggð nú séu söguleg: „Við tókum nefnilega í fyrsta skipti bankalán í okkar rekstri núna, þegar við keyptum húsið,“ sagði Gísli Arnar Gíslason. VOPNAFJÖRÐUR Árný Birna Vatnsdal og Gísli Arnar Gíslason eiga Hótel Tanga á Vopnafirði. Morgunblaðið/Skapti Keyptu hótelhúsnæðið Selasetur Íslands var formlega stofnað 2005 með það að mark- miði að efla náttúrutengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu sela- skoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland. Vatnsnesið er eitt besta sela- skoðunarsvæði landsins. „Fólki sem kemur í selaskoðun fjölgar stöðugt og nú þegar hafa komið til okkar meira en 27.000 gestir í ár,“ segir Sigurður Líndal Þór- isson, nýr framkvæmdastjóri setursins. Nefna má, til saman- burðar, að árið 2012 komu alls 10.754 við á Selasetrinu. Skv. tölum Ferðamálastofu komu 48,5% fleiri ferðamenn til landsins í nýliðnum október miðað við sama tíma í fyrra en samsvarandi tala var 110% hjá þeim Sigurði á Hvammstanga. Rannsóknarstarfsemi Selaset- ursins er líklega sá þáttur sem almenningur verður minnst var við en er þó einn sá mikilvægasti að sögn Sigurðar. Á ferðamálarannsóknarsviði vinnur Leah Burns, sérfræðingur í náttúrutengdri ferðaþjónustu og starfsmaður Háskólans á Hólum. Á sviði sem kennt er við líffræðirannsóknir starfar hins vegar Sandra Magdalene Gran- quist, dýraatferlisfræðingur og doktorsnemi frá Svíþjóð, starfs- maður Veiðimálastofnunar. Báð- ar hafa aðsetur hjá Selasetrinu. „Granquist er sú eina sem stundar selarannsóknir á Íslandi að staðaldri. Ýmislegt sem þær hafa gert hefur vakið athygli, bæði hér heima og erlendis og þær eru báðar á heims- mælikvarða.“ Leah snýr senn til síns heima, í Ástralíu, en í stað- inn hefur verið ráðin bandarísk kona sem flytur til Hvamms- tanga með eiginmanni og barni. „Stærsti óvissuþátturinn í rannsóknum hér er að langt er síðan síðast var gerð heild- artalning á selastofnum við land- ið,“ segir Sigurður en unnið er að því að fá fjármagn til þess. „Það er dálítið dýrt vegna þess að fljúga þarf yfir alla strand- lengjuna. Okkur finnst mikilvægt að fara í þetta verkefni vegna þess að samkvæmt hlutataln- ingum sem við höfum gert virð- ist vera að fækka í selastofn- inum.“ Vatnsnesið eitt besta selaskoðunarsvæðið Selasetrið á Hvammstanga. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lóðir fyrir sjö einbýlishús og tvö parhús eru lausar til umsóknar á Grímsstaðareitnum í hjarta Hvera- gerðisbæjar. Í auglýsingu er athygli vakin á því að veittur er 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum í ár. Lausar lóðir í Hveragerði Akureyrarbær hefur auglýst eftir verkefnastjóra til eins árs, til að undirbúa og hafa umsjón með móttöku hóps sýrlensks flóttafólks sem von er á til bæjarins. Starfið verður 100% starf fyrri hluta ársins en 50% seinni hluta. Taka á móti Sýrlendingum HEFUROPNAÐSTOFU Í KLÍNÍKINNIÁRMÚLA 9 Halla Fróðadóttir, sérfræðingur í lýtalækningum Sérgrein: almennar lýtalækningar, fegrunaraðgerðir, fylliefni og botox Tímapantanir í síma: 519 7000 Klíníkin Ármúla · Ármúla 9 · 108 Reykjavík · Iceland · www.klinikin.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.