Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2015 Sú saga gengur nú fjöllunum hærra að einni hatrömmustu og lengstu deilu rokksögunnar sé að ljúka: Guns N’ Roses séu að koma aftur saman í upprunalegri mynd. Tónlistarvefsíðan Dish Nation var fyrst með fréttina og hefur hana eftir áreiðanlegum heimildum. Upp úr sauð milli söngvarans W. Axl Rose og gítarleikarans Slash árið 1996 og sá síðarnefndi gekk úr sveitinni. Síðan hafa þeir varla talað saman en Dish Nation hefur heimildir fyrir því að vopnahléi hafi nýlega verið komið á með fyrrgreindum árangri. Gangi allt að óskum ættu langþyrstir aðdáendur Guns N’ Roses að geta séð þá saman á sviði á næsta ári. Guns N’ Roses er ein vinsælasta rokksveit sögunnar og hefur selt meira en 100 milljónir platna. Rose hefur um langt árabil verið eini upprunalegi meðlimur hljómsveitarinnar. Slash á tónleikum í Laug- ardalshöllinni á síðasta ári. Morgunblaðið/Eggert STÓRTÍÐINDI ÚR ROKKHEIMUM Slash og Rose saman á ný Hinn sérlundaði W. Axl Rose. Reuters Fræðsluráð Reykjavíkurborgar samþykkti um miðjan nóvember 1980 að leyfa Alþýðuleikhúsinu að sýna nýtt leikrit, Pæld-í-ðí, í grunnskólum borgarinnar en við- fangsefni leikritsins var eldfimt, kynfræðsla. Fræðsluráð taldi hins vegar, að þær sýningar ættu að fara fram utan venjulegs kennslu- tíma skólans og vera alfarið á veg- um leikhússins. Fimm fulltrúar samþykktu bókunina, einn var á móti og einn sat hjá. Fulltrúinn sem var á móti, Bragi Jósepsson, sagði það hafa verið vegna kafla í leikritinu sem fjallaði um „kynvillu“. „Mér finnst, með hliðsjón af því sem er að gerast hér hjá okkur og annars staðar í heim- inum, að allt í sambandi við kyn- villu sé það viðkvæmt að nauðsyn- legt sé að taka það fastari tökum en gert er í þessu leikriti. Mér finnst það vera meðhöndlað nokk- uð léttilega fyrir utan það að þarna eru augljósar rangfærslur sem ég bendi á í bókuninni, t.d. það að kynvilla sé ekkert vandamál, að- eins eðlilegur hlutur. Fjölmargar niðurstöður hafa bent til þess að sjálfsmorðstíðni er há meðal kyn- villtra einstaklinga. Vissulega er það einnig rétt að inn í þetta blandast árekstrar við samfélagið í heild.“ GAMLA FRÉTTIN Enga kynvillu Atriði úr umdeildu leikriti Alþýðuleikhússins, „Pæld-í-ðí“, fyrir 35 árum. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaleikstjóri Marteinn Lúther prestur og siðbótarmaður Dóri DNA fjöllistamaður J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Í fullkomnu flæði Sous Vide er matreiðsluaðferð sem felst í því að sjóða í lofttæmi við lágan og jafnan hita. Með því að elda við fullkomið hitastig – ekki of lengi og ekki of stutt – er hægt að hámarka bragðgæði matarins. Með Sous Vide-amboðinu frá Sansaire geta áhuga- menn jafnt sem atvinnumenn náð fullkomnu valdi á hitastiginu og „súvídað“ í hvaða íláti sem er. Maður þarf ekki einu sinni að eiga pott. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.