Morgunblaðið - 27.11.2015, Síða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
ÍMARK hefur valið Andra Þór Guð-
mundsson, forstjóra Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar, sem markaðs-
mann ársins 2015. Verðlaunin eru
veitt þeim einstaklingi, sem þykir
hafa sýnt framúrskarandi árangur í
markaðsstarfi á árinu.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, afhenti Andra Þór verðlaun-
in við athöfn í Ásmundarsafni.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, var kjörin Markaðs-
maður ársins í fyrra og var í ár for-
maður dómnefndar. Í rökstuðningi
dómnefndar kemur fram að Andri
Þór hafi náð miklum árangri með
vörumerki Ölgerðar Egils Skalla-
grímssonar, sem flest hver hafi verið
að auka hlutdeild á markaði þar sem
samkeppni sé hörð og framboð
mikið. Einnig segir að Andri Þór sé
sannur leiðtogi í fyrirtæki sem
þróar, framleiðir og flytur inn vörur
sem snerta alla mögulega markhópa
í þjóðfélaginu. Í tilkynningu er haft
eftir Andra Þór að viðurkenningin sé
Ölgerðinni og honum mikils virði.
„Hún er staðfesting á því faglega og
öfluga markaðs- og sölustarfi sem
unnið hefur verið á undanförnum ár-
um sem hefur skilað okkur mikilli
hlutdeildaraukningu og bættri arð-
semi í rekstrinum.“
Forstjóri Ölgerðarinnar
er markaðsmaður ársins
ÍMARK Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Ásmundarsal.
Vísitala neysluverðs lækkaði um
0,35% í nóvember samkvæmt mæl-
ingum Hagstofunnar. Það er tölu-
vert meiri lækkun en spár greining-
ardeilda höfðu gert ráð fyrir, en
þær spáðu frá 0,2% lækkun til
óbreyttrar vísitölu. Samkvæmt
þessu mælist ársverðbólga nú 2,0%.
Húsnæðisliðurinn var nánast eini
liður neysluvísitölunnar sem hafði
veruleg hækkunaráhrif í nóvem-
ber. Sé litið til ársins í heild er verð-
bólga án húsnæðis einungis 0,3%.
Mest áhrif til lækkunar vísitöl-
unnar hafði ferðaliðurinn, sem
lækkaði vísitöluna um 0,19%, og
matarkarfan sem lækkaði vísitöl-
una um 0,10%. Í Morgunkorni Ís-
landsbanka kemur fram að flugfar-
gjöld til útlanda hafi nú lækkað um
tæp 40% frá júlí og hjálpist þar að
árstíðarsveifla, lækkun eldsneytis-
verðs og styrking krónunnar,
ásamt hugsanlegum áhrifum af
aukinni samkeppni.
Ósammála Seðlabankanum
Í Markaðspunktum Arion banka er
bent á að í mánuðinum hækkaði
Seðlabankinn stýrivexti um 0,25%
og boðaði áframhaldandi vaxta-
hækkunarferli á næstu mánuðum
og misserum vegna aukins verð-
bólguþrýstings.
Þrátt fyrir þennan verðbólgu-
þrýsting bóli enn ekkert á verð-
bólgunni, en hún sé nú 50 punktum
undir markmiði. Það verði því að
teljast líklegt að peningastefnu-
nefnd muni halda stýrivöxtum
óbreyttum á næsta vaxtaákvörð-
unardegi, sem er 9. desember næst-
komandi.
Íslandsbanki segist í Morgun-
korni sínu gera ráð fyrir að verð-
bólga verði töluvert minni næsta
kastið en spáð var af Seðlabank-
anum fyrr í þessum mánuði. Raun-
ar væntir Íslandsbanki þess að
verðbólga verði undir 2,5% mark-
miði Seðlabankans fram yfir mitt
næsta ár, þótt Seðlabankinn hafi í
spá sinni gert ráð fyrir að verð-
bólga færi yfir markmið fyrir árs-
lok.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðbólga Matarkarfan lækkaði í
verði í nóvember frá fyrri mánuði.
Verðbólgan
undir spám
Ársverðbólga 2,0%