Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Page 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Kjötkrókur. Hann gefur flottustu gjafirnar.
Sesar Örn Harðarson
Hurðarskellir, af því að hann er svo skemmti-
lega aggressívur.
Heimir Hákonarson
Hurðaskellir, af því ég lék hann í jólaleikriti í
grunnskóla.
Ása Lind Birgisdóttir
Kertasníkir, af því að þá fæ ég alltaf stærstu
gjöfina.
Ragnheiður Björk Harðardóttir.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVER ER UPPÁHALDS JÓLASVEINNINN ÞINN?
Auður Jónsdóttir
sækir í eigin reynslu í
nýrri bók sinni Stóri
skjálfti. Sjálfsuppgötv-
anir urðu kveikja
ákveðinna þátta sem
leiddu hana áfram í
skrifunum en hún segir
þessu sögu sína þó vera
skáldskap. Bækur 48
Í BLAÐINU
Ertu komin í jólaskap … eða ertu kannski
týpan sem er í jólaskapi allt árið?
Neinei … ekki er það nú allt árið … það er Eurovision og
Airwaves inn á milli. Ég er að detta í jólaskap í þessum
töluðum orðum enda ekki annað hægt í þessu veðri og
birtunni sem fylgir þessari árstíð. Fékk vinkonu mína
Chiöru Siracusa í fangið í morgun frá Möltu og hún er
að sjá snjó í fyrsta skipti á ævinni og er eins og barn í
þessu öllu saman, strýkur öllum snjó sem hún sér og
elskar þetta í botn … þannig að nú er að gefa henni jóla-
glögg og piparköku og sýna „the icelandic way“.
Hvenær finnst þér jólin vera komin?
Þegar hangikjöts- og rauðkálsilmurinn fyllir heimilið,
undirbúningurinn er í hámarki og lesnar kveðjur í út-
varpinu … þá eru jólin komin. Og jólabókin fullkomnar
þetta svo auðvitað ásamt náttfötum, laufabrauði og
malt&app í glasi.
Áttu þér uppáhaldsjólalög?
Endalaust mörg uppáhalds. Aðfangadagskvöld með
Helgu Möller er yndi; Þrjú á palli hafa alltaf einhver tök
á mér; Dansaðu vindur með Eivöru minni; ALLT með
Hauki Morthens; Baggalútur; Mahalia; Sissel; Nat King
Cole …
Þú ert með jólatónleika í Grafarvogskirkju
á laugardagskvöld. Hvernig undirbýrðu þig
fyrir svona stóra tónleika?
Mesti undirbúningurinn felst í því að undirbúa sig andlega,
fara í gegnum tónleikana í huganum, fara yfir texta, æfa
með hljómsveit og söngvurum og auðvitað skipuleggja her-
legheitin frá a til ö. En stærsti hlutinn er sá andlegi í morguns-
árið og auðvitað staðgóður morgunverður og góður hlátur við og við.
Áttu einhver góð ráð fyrir jólin til að forðast að verða
stressinu alræmda að bráð?
Voða gott að anda inn og út og einbeita sér að því sem skiptir máli. Ég er farin
að venja mig á það að stoppa áður en ég hleyp, hendi einhverju í körfuna eða
upp í mig og hugsa: „Skiptir þetta máli í stóru myndinni?“ Ef svarið er nei, þá
er bara að sleppa þessu – auðvelt og einfalt. Svo er annað gott ráð að taka at-
hyglina alveg yfir á umheiminn og horfa á hann af einbeitingu, fókusera á þá
sem eru brosandi og í rólegu hamingjukasti, hugsa um þennan stóra heim sem
við búum í og þakka fyrir það sem við eigum hér á Íslandi … sem er ALLT.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HERA BJÖRK
SITUR FYRIR SVÖRUM
Jólabókin
fullkomnar
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Fjölbreytilega
jólamarkaði má
finna um allar
trissur á aðvent-
unni þar sem hægt
er að kaupa jóla-
gjafir, skraut, góð-
gæti og fleira til.
Fjölskyldan 30
Fæðuofnæmi hrjáir um 5% fólks og getur verið lífs-
hættulegt. Allt að 30% fólks telja sig vera með fæðu-
ofnæmi, samkvæmt bandarískri rannsókn og fer það
fólk á mis við góðan mat og næringu. Heilsa 14
Gunnar Theodór
Eggertsson hefur
haft dálæti á hryll-
ingssögum frá því
hann var krakki.
Hann langar að
hræða nýjar kynslóðir
með nýjustu bók
sinni sem ber nafnið
Drauga-Dísa
Bækur 51
Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir syngur á tvennum tónleikum í Grafarvogs-
kirkju á laugardag en tónleikana heldur hún ásamt umboðsmanni sínum Valgeiri
Magnússyni. Meðal annarra sem koma fram á tónleikunum eru Eiríkur Hauksson,
Aron Brink og Kristinn Sigmundsson auk maltnesku söngkonunnar Chiara Siracusa.
Hera Björk verður gestur á fleiri uppákomum í desember, m.a. á Jólatónleikum Kórs
Lindakirkju, Hátíð í bæ á Selfossi og á Jólatónleikum Karlakórs Kjalnesinga.