Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Side 12
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
* Í heild sinni fær maður dálítið á tilfinningunaað þetta sé áætlun um að gera áætlunGuðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, um
sóknaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.
UM ALLT LAND
EGILSSTAÐIR
Skipulagslýsing fyrir Egilsstaðaflugvöll
vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagiAKUREYRI
.
berggrunnskort
jarðvarma, grunnvatns og
kolefna í jörðu. ÍSOR gefur nú
framhaldsskólum og háskólum sem
sinna náttúrufræðikennslu kortið
í tilefni þess að nú eru 70 ár síðan
skipulegar jarðhitarannsóknir
hófust hér á landi. Kortið er unnið
í samræmi við nýjar alþjóðlegar
skilgreiningar
á skiptingu
jarðsöguskeiða
sem gengu í
gildi 2012.
AKRANES
á Degi
Einnig lýsti bæjarstjóri
yfir ánægju með
samstarfið við Stefnu
en fyrirtækið hannaði
vefinn í samstarfi við
Akraneskaupstað.
VESTMANNAEYJAR
Öllum nemendum í
Vestmannaeyjum,
boðið
frá og
Að sjá barn fæðast er alltafævintýri. Mér finnst þaðforréttindi að starfa við
deildina hér því verkefni ljósmæðra
hér á bæ eru mjög fjölbreytt og
spanna alla flóruna. Starfssystur
okkar á stóru sjúkrahúsunum eru
hver á sinni deild og með ákveðin
verkefni. Á lítilli stofnun þurfum
við hins vegar allar að sinna öllu
sem er ánægjulegt og gefur starf-
inu hér mikið gildi,“ segir Sigrún
Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir á
fæðingardeild Heilbrigðisstofunar
Suðurlands á Selfossi.
Nýlega voru gerðar miklar
breytingar á húsakynnum fæðing-
ardeildarinnar á sjúkrahúsinu á
Selfossi. Var þeim áfanga fagnað
með viðhöfn nú á dögum.
Löngu tímabært
„Þetta voru löngu tímabærar lag-
færingar,“ segir Sigrún. „Setustof-
an var stækkuð og lagfærð, vinnu-
aðstaða ljósmæðra bætt, útbúin var
góð fjölskylduaðstaða á her-
bergjum og svona gæti ég haldið
áfram. Í þessu öllu fengum við frá-
bæran stuðning frá þeim traustu
bakhjörlum sem kvenfélögin hér á
Suðurlandi eru. Þau hafa alltaf
staðið þétt við bakið á okkur og
gáfu okkur rúm, sófa og fleiri hús-
gögn. Þá styrktu ýmis fyrirtæki
hér á svæðinu okkur, bæði með
gjöfum og peningastyrkjum, svo
þetta gekk allt mjög vel hjá okkur
og við erum þakklát.“
Árlegur fjöldi fæðinga á sjúkra-
húsinu á Selfossi rokkar á bilinu
60-90. „Nú eru fæðingar ársins
orðnar 60, en við náum ekki meti
síðasta árs þegar börnin urðu alls
82. Árið 2013 voru þau 58 svo það
er talsverð sveifla í þessu eins og
þú heyrir,“ segir Sigrún.
Aðeins hálf sagan
Árið 2010 var sú breyting gerð á
Selfossi að sólarhringsvakt , sem
veitt gat aðstoð á fæðingardeild,
var lögð af. Fyrir vikið fæða konur,
segir Sigrún, á Selfossi aðeins ef
ljóst má vera að allt gangi eðlilega
fyrir sig. Í öðrum tilvikum eru kon-
urnar sendar á Landspítala há-
skólasjúkrahús í Reykjavík þar
sem aðstaða er hin besta. „Fjöldi
fæðinga segir aðeins hálfa söguna
um starfsemi okkar. Göngudeild-
arþjónusta á Selfossi og á heilsu-
gæslustöðvum í Þorlákshöfn,
Hveragerði og Laugarási er stór
þáttur í starfi okkar. Konurnar
sem við veitum þjónustu á ári eru á
þriðja hundraðið myndi ég halda,“
segir Sigrún Kristjánsdóttir sem á
að baki fimmtán ára ljósmóðurferil.
Um 300 ljósubörn
„Ljósubörnin mín, eru einhvers
staðar á bilinu 200 til 300,“ segir
Sigrún. „Ég hef reyndar ekki hald-
ið þessu mjög nákvæmlega saman
og eftir að ég fór í stjórnunarstarf
hér á sjúkrahúsinu hafa þau verk-
efni tekið annað yfir. Fæðingunum
sem ég sinni fer fækkandi þó að
þær séu einn skemmtilegasti hluti
starfsins finnst mér.“
SELFOSS
Öll flóran
á fæðingar-
deildinni
BREYTINGAR VORU NÝLEGA GERÐAR Á HÚSAKYNNUM
FÆÐINGARDEILDAR HEILBRIGÐISSTOFNUNAR SUÐUR-
LANDS. ALLT AÐ 90 KONUR Á ÁRI FÆÐA ÞAR, HJÁ SIG-
RÚNU KRISTJÁNSDÓTTIR OG SAMSTARFSKONUM HENNAR.
Sigrún Kristjánsdóttir yfirljósmóðir með Bjarkason sem kom í heiminn á fæðingardeildinni á Selfossi síðastliðinn þriðju-
dag, hinn 23. nóvember. Foreldrar hans eru Gyða Björgvinsdóttir og Bjarki Oddsson sem búa á Hvolsvelli.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Setustofan á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er afar vel búin.