Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Page 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Page 45
inn sagði mér frá því þegar hann var á fundi fyrir um fimm árum þar sem stjórnendur túrtappahluta fyr- irtækisins voru að gefa skýrslu og ræða um stefnu fyrir stjórnina. Einn stjórnarmanna tók hann þá til hliðar og spurði hvort þeir væru örugglega ekki með eina konu sem gæti heldur rætt um þetta. Hann skoðaði yfirstjórnina hjá sér og sá að það voru um 80% stjórnenda karlar en 99% viðskiptavinanna voru konur. Hann ákvað að gera eitthvað í málunum og hóf að tala um þetta á öllum fundum hversu mikilvægt það væri að konur fengju framgang innan fyrirtækisins og það skilaði sér í fleiri konum í stjórnendastöðum og betri fjárhag,“ segir Lipman. Vandamálin blasa ekki við þeim „Konur eru alltaf að tala við konur og karlmennirnir vita því ekki hvað klukkan slær,“ segir hún. „Þeir vita ekki hver vandamálin eru. Málin sem blasa við konum eru ekki aug- ljós körlum. Eins og sumt af því sem ég skrifa um í greininni, til dæmis hversu erfitt það er fyrir konur að biðja um stöðuhækkun eða láta hlusta á sig á fundum, þetta sem konur þekkja svo vel, hafði körlunum aldrei dottið í hug áður. Viðurkenning á vandamálinu er fyrsta skrefið. Ómeðvitaðir for- dómar okkar eru stórt vandamál og við verðum að vera meðvituð. Kon- ur eru líka með fordóma gagnvart konum,“ segir Lipman. Eftir greinaskrifin er algengara að Lipman tali fyrir blandaða kynjahópa. „Ég flutti nýlega fyrirlestur í risastórri lögfræðistofu og eftir á rétti maður upp hönd. Hann lýsti reynslu sinni af skýrsluvinnu í fyr- irtækinu þar sem kona hafði borið hitann og þungann af vinnunni en karlmaður í hópnum hefði síðan kynnt skýrsluna og fengið allan heiðurinn. Hann sagðist ekki hafa áttað sig á þessu fyrr, en allar kon- urnar kinkuðu kolli á meðan. En fyrir honum var eins og kveikt hefði verið á ljósaperu.“ Hún segir einhver að stærsti munurinn á Íslandi og Bandaríkj- unum sé fæðingarorlofið. Margar konur í Bandaríkjunum hrökklist af vinnumarkaði og nái aldrei sömu stöðu aftur. „Það má ekki gleyma því að lítil börn vaxa úr grasi. Ég vil hvetja fyrirtæki til þess að muna það. Ég á svo margar vin- konur sem áttu góðan starfsferil en tóku skref til baka þegar börnin voru lítil. Núna er þau orðin eldri og þær hafa svo mikið að gefa en það er enginn til að taka við allri þessari orku.“ Í Bandaríkjunum eru það tækni- fyrirtæki eins og Google og Face- book sem hafa tekið af skarið og bjóða uppá borgað orlof. „Þingið myndi aldrei samþykkja fæðing- arorlofslög, það mun aldrei gerast. Tæknifyrirtækin eru að keppa um bestu konurnar og reyna því að bjóða betri kjör því þau þurfa fleiri konur. Þetta minnir á vopnakapp- hlaup.“ Bók hennar kemur út hjá Willi- am Morrow árið 2017. „Ég held að Ísland verði einn af áhugaverðustu þáttunum í bókinni. Það var mikið skrifað um landið í erlendu pressunni snemma árs 2009 en það hefur lítið sést síðan. Ég held að saga Íslands sé mjög áhugaverð, hvernig þið náðuð þess- um árangri. Ég held að heimurinn geti lært mikið af Íslandi.“ ástæða launamunarins var að færri konur fengu stöðu meðeiganda en karlar af þeim sem komust svona hátt upp. Ennfremur að þeir karl- menn sem fengu ekki þessa æðstu stöðu hótuðu að hætta og fengu í kjölfarið háar bónusgreiðslur en konurnar sem var hafnað hugsuðu með sér að þær væru ekki nógu góðar og ákváðu að leggja harðar að sér. En hefðu hlutirnir farið eins ef konurnar hefðu hótað að hætta? Það er ekki víst, segir Lipman. „Konum er oft refsað fyrir að sýna karlmannlega eiginleika. Sama tækni virkar ekki endilega fyrir konur.“ Hættið að vera í vörn Þetta verður tekið fyrir í væntan- legri bók hennar, sem hún vonast til að verði lesin af karlmönnum. „Eitt af því sem ég vonast til að svara í bókinni sem ég er að skrifa er hvernig við náum karlmönnum í þetta samtal. Hvernig fáum við menn til að skilja að þetta er þeirra mál, þetta er ekki mál kvenna ein- vörðungu heldur allra. Mig langar til að fá þá til að ræða málin og hætta að vera í svona mikilli vörn þegar jafnréttismál ber á góma.“ Sunnudagsblaðið hitti Lipman á nýliðinni kvennaráðstefnu í Hörpu, þar sem hún stjórnaði umræðum. Ráðstefnan var þó ekki eina ástæða þess að Lipman var á land- inu heldur líka það að hún tekur Ísland sérstaklega fyrir í bókinni. „Í bókinni skrifa ég út frá grein- inni og skoða líka fyrirtæki og stofn- anir sem eru að reyna að leiðrétta kynjahallann hjá sér,“ segir Lipman, sem skoðar m.a. Google, Facebook og Harvard Business School. „Ég nota viðtöl og akademískar rann- sóknir í bókinni til stuðnings máli mínu en ég ætla fyrst og fremst að segja sögur, af karlmönnum, fyr- irtækjum og stofnunum.“ Til viðbótar ákvað hún að rann- saka Ísland, landið sem er með minnsta kynjahallann á lista WEF. „Ég fór að skoða Ísland og fannst áhugavert að kreppan var af völdum karlmanna að mestu og eftir kreppu tóku konurnar við, ólíkt því sem gerðist í Bandaríkjunum. Þetta hreyfði við mér og mig langaði að sjá hvernig þetta land liti út.“ Og hvernig lítur það út? „Því miður ekki eins öðruvísi og ég bjóst við. Fólk virðist reyndar tala frjálslegar um kyn en í Banda- ríkjunum og það er kynjuð fjár- lagagerð hjá ríkinu sem er jákvætt. En breytingin virðist ekki hafa fest rætur og nú minna þeir sem eru við völd mjög á þá sem stjórnuðu fyrir hrun,“ segir hún. Karlmenn þurfa að aðlagast konum „Ástæða þess að ég vildi skrifa þetta fyrir karlmenn er að karlar stjórna heiminum og stjórna fyr- irtækjum og konur eru alltaf að passa hvað þær segja og hvernig þær klæða sig því þær eru alltaf að laga sig að heimi karlmanna. Punkturinn hjá mér er að karlmenn þurfa að aðlagast okkur rétt eins og við þeim. Þetta er tvístefna. Það er svo miklu meira sem þeir geta gert og ég reyni að koma þeim að borð- inu svo þeir skilji það og verði með- vitaðir. Og þegar þeir verða meðvit- aðir geta þeir haft svo mikil áhrif,“ segir hún og tekur dæmi frá stóru bandarísku fyrirtæki sem heitir Kimberly-Clark. Fyrirtækið selur ýmsar hreinlætisvörur og m.a. Ko- tex-túrtappa. „Framkvæmdastjór- Joanne Lipman er rithöfundur, blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri. Hún hefur reynslu af viðskiptaheim- inum og vill að fyrirtæki opinberi kynbundinn launamun sinn. Morgunblaðið/Styrmir Kári * Ef kona talar á fundi færhún jafnvel ekki viðbrögð enkarlmaðurinn við hliðina á henni segir sama hlutinn nokkrum mínútum síðar og þá er hlustað. Þetta hefur komið óteljandi sinnum fyrir mig og ég held að allar konur hafi upplifað þetta. 29.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.