Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Fimm norrænir nútímatónlistarhópar leika á
jafnmörgum tónleikum í Norðurljósum
Hörpu í dag, laugardag, en hverjir tónleikar
eru um 50 mínútur að lengd.
„Verkefnavalinu er ætlað að sýna hvern
hóp í sínu besta ljósi, en leikin verða glæný
sem og eldri nútímaverk,“ segir í tilkynningu
frá skipuleggjendum, en þar kemur fram að
hóparnir fimm séu úr fremstu röð.
Caput frá Íslandi ríður á vaðið kl. 13 og
leikur verk eftir m.a. Hjálmar Ragnarsson og
Huga Guðmundsson. Norbotten NEO frá
Svíþjóð leikur kl. 15 verk eftir m.a. Kaija Sa-
ariaho og Per Mårtensson. Cikada frá Noregi
leikur kl. 17 verk eftir m.a. Jon Øivind Ness.
Esbjerg Ensemble frá Danmörk leikur kl. 19
verk eftir m.a. Hans Abrahamsen og
defunensemble frá Finnlandi rekur lestina kl.
21 og leikur verk eftir m.a. Hikari Kiyama.
NÚTÍMATÓNLISTARHÓPAR
NORÐURLJÓS
Tónlistarhópurinn Caput leikur kl. 13 í dag.
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnandi tónleikanna í Langholtskirkju í dag,
laugardag, er Gunnsteinn Ólafsson.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Há-
skólakórinn flytja Finlandiu eftir Jean Sibelius
í Langholtskirkju í dag, laugardag. kl. 17.
„Verkið er eitt vinsælasta verk tónskáldsins
og óopinber þjóðsöngur Finna, enda var
hann óspart leikinn í sjálfstæðisbaráttu
finnsku þjóðarinnar á fyrstu áratugum 20.
aldar,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sólveig Steinþórsdóttir leikur einleik í
fiðlukonsert Sibeliusar, en Sólveig stundar nú
framhaldsnám í fiðluleik við Listaháskólann í
Berlín. „Þá leikur hljómsveitin 1. sinfóníu Si-
beliusar, eitt magnaðasta hljómsveitarverk
sem samið var í Evrópu um aldamótin 1900.“
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af 150 ára af-
mæli Sibeliusar.
UNGFÓNIA OG HÁSKÓLAKÓR
FINLANDIA
Heimildamynd Páls Stein-
grímssonar og Lárusar
Ýmis Óskarssonar um
kirkjutónlist á Íslandi
verður sýnd í Kamesinu á
5. hæð í menningarhúsinu
Grófinni á morgun,
sunnudag, kl. 15.
Í myndinni er stiklað á
stóru í íslenskri kirkju-
tónlistarsögu. „Fjölmörg
dæmi eru tekin um kirkjusöng og kirkju-
tónlist svo langt sem skráðar heimildir geta.
Eins eru valdir kaflar úr klassískri kirkju-
tónlist sem hér hefur verið flutt og helgi-
tónlist íslenskra tónskálda,“ segir í tilkynn-
ingu. Þulur í myndinni er Kristinn
Sigmundsson söngvari. Myndin tekur 53 mín-
útur í sýningu
ÍSLENSK KIRKJUTÓNLIST
HEIMILDAMYND
Páll Stein-
grímsson
Menning
Á
rið 1932 flutti ungur listaverka-
safnari að nafni Emanuel Hoff-
mann hikandi tölu við opnun
sýningar á verkum samtíma-
listamannsins Hans Arp í lista-
safninu í Basel í Sviss. Hoffmann og Maja
eiginkona hans tóku ung að safna samtímalist,
áttu á þessum tíma um 120 málverk og skúlp-
túra, og Hoffmann sagðist hika við að tjá sig
um verk Arp sem hann leit á sem „glímu við
að túlka kjarnann“. Og það er einmitt það
sem skapandi listamenn á hverjum tíma fást
við, þeir glíma við að fanga kjarna tilverunnar
og hafa frelsið, víðsýnina og sköpunarkraftinn
til að geta það. Í og með þess vegna ber sið-
uðuðum samfélögum að gera öllum kleift að
hafa aðgang að verkum bestu og áhugaverð-
ustu listamannanna, sama í hvaða miðil þeir
vinna, að fræða um og miðla þeim, merking-
unni, átökunum og tilganginum; því listin
speglar og endurskapar í hinum fjölbreytileg-
ustu myndum lífið sem við lifum.
Hoffmann hjónin tilheyrðu einni helstu
lyfjasamsteypu vesturlanda, þá og nú, Hof-
mann – La Roche, sem setur óneitanlega
mikinn svip á Basel samtímans þar sem
„húsarkitektar“ fyrirtækisins, Herzog & de
Meuron, hafa hannað margar svipmiklar en
umdeildar byggingar þess og þar á meðal
skrifstofubyggingu sem rís nú hátt yfir Basel-
borg. En þau hjónin voru líka meðvituð um
ábyrgð safnara og efnaðra fyrirtækja; að
þeim bæri ásamt hinu opinbera að mennta
samborgarana og auðga líf þeirra með góðu
aðgengi að skapandi samtímalist í hinum
ýmsu miðlum. Og þegar Emanuel Hoffmann
lést sviplega í bílslysi þetta ár, 1932, aðeins 36
ára gamall, stofnaði ekkjan stofnunina Em-
anuel Hoffmann Stiftung, í minningu eigin-
mannins „og þjónustu hans við samtímalistir“.
Hún gaf sem „útsæði“ sjö myndverk, þar á
meðal eitt eftir Max Erst sem eiginmaðurinn
hafði haldið mikið upp á. Og skyldu öll verk
sem stofnunin keypti ætíð vera aðgengileg al-
menningi í safni borgarinar.
Hin samfélagslega ábyrgð
Tíminn hefur liðið, ekkjan er löngu látin en
nú stýrir dótturdóttir hennar og nafna Em-
anuel Hoffmann Stiftung sem hefur haldið
áfram að kaupa samtímalistaverk í meira en
áttatíu ár. Og stór hluti verkanna hefur verið
til sýnis í listasafni borgarinnar, eins og Maja
Hoffmann ætlaðist til, en ekki bara þar. Árið
1980 var annað safn opnað, Museum für
Gegenwartskunst, og til sýnis voru verk úr
eigu stofnunarinnar sem átti þá 230 myndlist-
arverk af ýmsu tagi, eftir marga nafntog-
uðustu listamenn aldarinnar. Og konurnar
héldu áfram að kaupa verk fyrir samfélagið;
risastórum útiskúlptúr eftir Richard Serra
(sem skapaði Áfanga í Viðey) var komið fyrir
í almenningsgarði og 1989 keypti stofnunin
hina frægu innsetningu Dieters Roth, Sjálfs-
turn; Ljónaturn, sem listamaðurinn vann að á
árunum 1969-1998. Innsetningin er í húsi
gegnt Museum für Gegenwartskunst; rekkar
með ótal sjálfsmyndum listamannsins úr
súkkulaði og sykri sem eru að gefa eftir undir
fargi tímans.
Við að skoða þetta furðulega og heillandi
verk kemst íslenskur gesturinn ekki hjá því
að hugsa hvað ef í Reykjavíkurborg væri líka
til áhrifamikil innsetning eftir Dieter Roth,
eða hægt væri að ganga að verkum hans í
safni hér hvenær ársins sem er. En sú er alls
ekki raunin; þótt hann hafi búið og starfað í
báðum þessum borgum, Basel og Reykjavík,
þá hafa aðeins stjórnvöld eða íbúar annarrar
borgarinnar haft vit eða ráð á að eignast slík
verk eftir þennan lykilmann í samtímalistinni
á seinni hluta 20. aldar.
Og íbúar Basel hafa notið þess menningar-
auka og samfélagslegu ábyrgðar sem birtist í
stuðningi efnaðra einstaklinga og fyrirtækja
við listalífið sem sjá má um alla borgina, og
ekki bara í framlagi Emanuel Hoffmann-
sjóðsins. Á Íslandi hefur slíkt fólk verið til,
má nefna Ragnar í Smára sem gaf Listasafni
alþýðu stóran hluta sinna verka til að Íslend-
ingar hefðu aðgang að þeim fjársjóðum – sem
því miður er þó hvergi að sjá á einum stað
allan ársins hring. Og undantekningarnar eru
fleiri, má nefna stuðning Listasjóðs Dungal
við unga myndlistarmenn og markvissan
stuðning GAMMA við listir; fyrirtækið styður
starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
kaupir talsvert af myndverkum. Og hefur eins
keypt verk af rithöfundi til að gefa út og
leyfðu margir sér af sérkennilegri þröngsýni
að mótmæla samstarfi höfundarins við fyr-
irtækið, þótt erfitt sé að sjá mun á því hvort
höfundur skrifi texta fyrir fyrirtæki, það
kaupi ljósmyndaverk eða panti tónverk af
tónskáldi, sem gerist þó stundum.
Hitt er þó því miður algengara hér í ver-
stöðinni Íslandi að einstaklingar og fyrirtæki
átti sig ekki á mikilvægi samfélagslegrar
ábyrgðar, eins og hún birtist í stuðningi við
listirnar. Í höfuðstöðvum samtaka útvegs-
manna hafði ég til að mynda fyrir löngu séð
tilkomikil málverk eftir Gunnlaug Scheving af
sjómönnum, sem forsvarsmenn þeirra höfðu
af framsýni keypt og prýða húsakynni þeirra.
Þegar ég sá síðan á sýningu á Kjarvals-
stöðum langt og tilkomumikið málverk af ís-
lenskum fiskum á sýningu Helga Þorgils
Friðjónssonar, eins af mikilvægustu lista-
mönnum þjóðarinnar, hafði ég samband við
TILKOMUMIKIL LISTAVERKAEIGN EMANUEL HOFFMANN STIFTUNG SÝND Í BASEL
Styðja listamenn í
glímu við kjarnann
Í LISTASÖFNUM BASEL-BORGAR Í SVISS GETUR AÐ LÍTA FJÖLBREYTILEG SAMTÍMAVERK SEM EINKASTOFNUN
HEFUR Í RÚM ÁTTATÍU ÁR SAFNAÐ OG AFHENT SÖFNUNUM, ÞAR Á MEÐAL HINU EINSTAKA SCHAULAGER.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Emanuel Hoffmann-Stiftung á eitt viðamesta úrval verka eftir Bruce Nauman sem sjá má á einum
stað. Hér má einnig sjá myndverk eftir John Baldessari og Joseph Beuys á sýningunni í Schaulager.
Ljósmynd/Tom Bisig
Verkið Das Meer, 1. Teil, eftir Dieter Roth frá
1968, er á veggspjaldi sem kynnir sýninguna.
Ljósmynd/Martin P. Bühler
Á neðri hæðum Schaulager eru settar upp
hefðbundnar sýningar en á eftri hæðunum eru
„geymslur“ fyrir umfangsmiklar innsetningar.
Ljósmynd/Adrian Fritschi
Ljósmynd/Ruedi Walti
„Listaverkageymslan“ Schaulager var opnuð 2003
og er verk arkitektanna Herzog & de Meuron.