Víkurfréttir - 18.12.1986, Síða 9
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Þeir voru önnum kafnir við unsirbúning flugeldasölunnar, en gáfu sér þó tíma til að líta upp, rétt sem
snöggvast. A myndinni eru frá vinstri: Frímann Grímsson, formaður Stakks, Aðalsteinn Olafsson,
Höskuldur Björnsson og Ólafur Bjarnason, formaður flugeldanefndar.
Nú getur fðlk skotið
„sínum mönnum upp“
- Stakksmenn verða eð venju með sína árlegu flugeldasölu
Björgunarsveitin Stakk-
ur heldur að venju hina ár-
legu flugeldasölu og hefst
hún að þessu sinni laugar-
daginn 27. desember kl. 13,
og verða sölustaðirnir þrír.
Fyrst er að nefna Stakks-
húsið að Iðavöllum 3d, þar
sem viðskiptavinum og
öðrum áhugamönnum
gefst kostur á að skoða tæki
sveitarinnar. Hinir stað-
irnir verða Víkurbæjar-
húsið við Hafnargötu og
við Fiskiðjuna á mótum
Keflavíkur og Njarðvíkur.
Boðið verður upp á heitt
kaffi á öllum stöðunum.
Að sögn þeirra björgun-
arsveitarmanna verðurfjöl-
breytt úrval af flugeldum
og blysum á boðstólum
núna - en þeir hafa keypt
inn frá þremur aðilum að
þessu sinni. A einni gerð
flugelda verða myndir af
helstu forystumönnum í
bænum og nokkrum sem
komið hafa við sögu á
árinu, og geta viðskiptavin-
ir því skotið „sínum mönn-
um upp“, hvort sem um
andstæðing eða samherja er
að ræða.
Mikil- vinna liggur að
baki flugeldasölu sem þess-
ari, sem er ein helsta tekju-
öflun björgunarsveitarinn-
ar tii tækjakaupa, og kváð-
ust þeir Stakksmenn von-
ast til að Suðurnesjamenn
beindu viðskiptum sínum
til þeirra eins og á undan-
förnum árum. Þá vildu þeir
koma því á framfæri við fé-
laga í björgunarsveitinni,
að þessu sinni yrði unnið
eftir tímatöflu við ílugelda-
söluna. - bb.
Keflavík - Sími 2300
Panasonic
VIDEOTÆKI
FERÐATÆKI (10 teg.)
RYKSUGUR
ÖRBYGLJUOFNAR
HLJÓMTÆKI
Hágæða hljóm-
tækjasamstæður
SJÓNVÖRP
FERÐATÆKI
HLJÓMTÆKI
VIDEOTÆKI
£
WJAPIS hf. iKeflavík