Víkurfréttir - 18.12.1986, Page 10
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Hjálparsveit
skáta
Njarðvík
vill minna Suðurnesjamenn á flug-
eldasölu hjálparsveitarinnar.
Verslunarstarf
Óskum að ráða starfskraft í afgreiðslu
Getur byrjað strax. Framtíðarstarf.
Upplýsingar á staðnum, ekki í síma.
HLJÖMVAL
Hafnargötu 28 - Keflavík
Flugeldasala Hjálparsveitar skáta
Bækur
eru sígildar
jólagjafir.
Þú færð
allar nýjustu
jólabækurnar
hjá okkur.
Hún er loksins komin aftur
Silver-Reed EB skólaritvélin.
Gleðileg jól, farsælt komandi ár. - Þökkum viðskiptin á árinu.
ENGIN JÓL ÁN SPILA
Mikið úrval af skemmtilegum spilum.
Jólaspilið í ár, „Space Attack“, og
mörg fleiri, m.a. Rally-spilin vinsælu.
Tölvur - stórar og smáar
Hljómborð - Verð frá kr. 2.700
Fyrir tónlistarfólkið: - Nótnabækur,
nótnastandar og taktmælar.
Margt fleira sniðugt til jólagjafa, s.s.:
gjafasett á skrifborð, pennasett, og
allar jólabækurnar, auðvitað.
® til jólagjafa
Hjálparsveit skáta Njarð-
vík verður með flugelda-
sölu srax eftir jól eins og
undanfarin 17 ár. Þetta er
helsta tekjulind Hjálpar-
sveitarinnar og þörfnumst
við aðstoðar þinnar nú sem
fyrr. Hagnað af flugelda-
sölunni notar sveitin til að
fjármagna starfsemi sína.
Sveitin hefur staðið í stór-
ræðum undanfarin 2 ár og
stendur í raunar enn. Við
höfum flutt inn í nýja húsið
okkar að Holtsgötu 51
Njarðvík og gjörbreytir það
allri aðstöðu sveitarmeð-
lima. En mikið verk er eftir
enn og einnig þarf sveitin
nauðsynlega að endurnýja
og auka við búnað sinn. Við
stefnum að því að senda
fleiri meðlimi í Björgunar-
skóla L.H.S. og hefur það
aukinn kostnað í för með
sér, en mun skila sér aftur í
betri og hæfari björgunar-
mönnum.
Flugeldasalan hefst eins
og áður sagði strax eftir jól
og sem fyrr bjóðum við upp
á góða og vandaða vöru.
Við viljum vekja athygli á
einni nýjung hjá okkur, þ.e.
mini sýningarbombur, sem
skotið er úr járnhólk, sem
við höfum látið framleiða
sérstaklega fyrir okkur, til
að selja almenningi. Bomb-
urnar sjálfar eru mjög
vandaðar. Þeim er pakkað
af ÖRFA, vernduðum
vinnustað fatlaðra. Þæreru
mjög auðveldar í meðferð
og vegna mikils áhuga
síðustu ára á þessari vöru
höfum við pantað mikið
magn af þeim og vonumst
við til að fólk sýni enn
sama áhugann. Einnig
minnum við á gömlu stjórn-
málaflugeldana.
Að lokum vill Hjálpar-
sveit skáta Njarðvík þakka
Suðurnesjamönnum veitt-
an stuðning á liðnum árum
og óskar ykkur gleðilegra
jóla og farsæls komandi
árs. Einnig hvetjum viðalla
til að fara gætilega með eld
yfir hátíðirnar, sérstaklega í
meðferð flugelda.
(Fréttatilkynning)