Víkurfréttir - 18.12.1986, Side 22
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Zoo í Sandgerði
Föstudagskvöld eitt í síð-
asta mánuði heimsótti
blaðamaður Víkur-frétta
unglingaskemmtistaðinn
ZOO í Sandgerði, en þessi
skemmtistaður er í sam-
komuhúsinu þar í bæ.
Blaðamaður tók nokkra
hressa krakka tali og birt-
ist árangurinn af því hér á
eftir.
í Sandgerði hefur verið
stofnuð hljómsveit undir
nafninu ,,MAXIUM“
þannig að það virðist vera
mikil gróska í hljómsveita-
starfsemi á Suðurnesjum
um þessar mundir. Við
munum gera „MAXIUM“
góð skil í Smástund eftir
áramót.
Ef einhverjar fleiri
hljómsveitir eru starfandi á
Suðurnesjum þá eru með-
limir þeirra hvattir til að
skrifa þættinum bréf.
Við skulum ekki hafa
þetta mikið lengra, heldur
skulum við skella okkur út í
spjallið við krakkana úr
Sandgerði.
1. Guðmundur Skúlason, 13
ára.
-Er gaman á diskótekum
hérna í Sandgerði?
„Já, já, það er ágætt.“
-Finnst þér vera gert
nógu mikið fyrir ungling-
ana hérna í Sandgerði í fél-
agsmálum?
„Já, ég held að það sé
bara gott félagslíf hérna.“
-Hvað gerir þú í þínum
tómstundum?
frístundum?
„Það er svo margt. Eg er í
hljómsveit sem heitir Max-
ium og ég er oftast að æfa
fyrir hana.“
-Ert þú í einhverjum
klúbb hérna í Sandgerði?
„Nei.“
-Hvernig er að búa í
Sandgerði?
„Bara gott.“
JÓLABLAÐ VÍKUR-FRÉTTA 5000 EINTÖK
Jóla- og nýárskveðju
sendi ég nemendum mínum, með
ósk um að þeim gangi áuallt sem
best á uegum og strœtum þeirrar
umferðar sem bíður þeirra.
Magnús Þór, ökukennari
Vinsæla dömu- og herra-
línan er komin.
Gleðileg jól
SNYRTISTOFAN
Hafnargötu 49 - Keflavík
Hæ, hæ, hæ. Þá er þátturinn byrjaður aftur og er núna í
miklu jólaskapi, þó efnið sé ekkert jólalegt, enda öllu því
efni sem átti að vera í þættinum skilað inn fyrir I. desem-
ber. En við munum reyna að hafa þetta eins fjölbreytt og
hægt er.
Frá upphafi þáttarins (fyrsti þátturinn var 13. mars
1986) hefur honum borsit tvö bréf og er þetta mikið afrek
hjá lesendum Smástundar. Annað bréfið var bara röfl og
rugl frá fyrrverandi skólastjóra Gerðaskóla, en hitt bréfið
kom frá frístundaáhugamanni úr Vogunum, þannig að
þetta er mikið afrek hjá lesendum , eins og áður sagði.
Það hefur verið komið víða við frá upphafi, þó að ekki
hafi öllum sveitarfélögunum verið gerð skil, en betra er
seint en aldrei. Eg ætla að leyfa mér að telja upp það sem
SMASTUNDIN hefur boðið lesendum sínum upp á:
Flippótek í Gerðaskóla, viðtal við Vogamann, sagt frá árs-
hátíðum í Keflavík og Njarðvík, viðtöl við þrjá útskriftar-
nema úr Holtaskóla í Keflavík, viðtal við íþróttamann úr
Garðinum og núna verður viðtal við hljómsveitina FIKT
úr Keflavík, spjallað við krakka í Zoo í Sandgerði og
margt fleira.
Við hittumst vonandi hress á næsta ári, það er að segja ef
ég fæ ekki uppsagnarbréf um áramótin.
Að lokum, takk fyrir móttökurnar og reynið nú að slá
bréfametið sem þið settuð í ár.
Bless, bless,
ykkar vinur - Hilmar.
2. Jón Sveinn Björgvinsson,
13 ára.
-Er gaman hér í kvöld?
„Já, já, það er ágætt.“
-Finnst þér vera gert
nógu mikið fyrir unglinga
hérna í Sandgerði?
„Það er gert alveg nógu
mikið, finnst mér.“
-Hvað gerir þú í þínum
frístundum?
„Það er svo misjafnt.“
-Hvernig er að búa í
Sandgerði?
„Það er mjög gott.“
3. Linda Björk Ársælsdóttir,
13 ára.
-Finnst þér vera gaman
hér í kvöld?
„Það er alveg æðislega
gaman.“
-Finnst þér vera gert
nógu mikið fyrir unglinga
hérna í Sandgerði?
„Já, já, þetta er fint, eins
og það er.“
-Hvað gerir þú í frístund-
um þínum?
„Eg spila handbolta og
er í frjálsum íþróttum. Svo
er ég bara að leika mér.“
-Ert þú í einhverjum
klúbb hérna í Sandgerði?
„Já, ég er í kjaftaklúbb
og saumaklúbb. Við erum
5-6 í kjaftaklúbbnum.“
-Finnst þér gaman að
búa í Sandgerði?
„Já, mjög gaman.“
4. Gyða Björk Guðjónsdótt-
ir, 14 ára.
-Er gaman?
„Já, já, og tónlistin er
góð.“
-Finnst þér vera gert
nógu mikið fyrir unglinga
hérna í Sandgerði?
„Það mætti vera mikið
meira um opin hús og svo-
leiðis lagað.“
-Hver eru aðal áhuga-
mál þín?
„Þau eru handbolti, fót-
bolti og svo hef ég líka mik-
inn áhuga á dýrurn."
-Ert þú í klúbb hérna í
Sandgerði?
„Já, ég er í kjaftaklúbb.“
SMÁSTUND
UMSJÓN:
Hilmar B. Bárðarson