Víkurfréttir - 18.12.1986, Page 45
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
-En þér tekst samt að
skipuleggja tímann?
„Eg veit það nú ekki,
auðvitað rekst þetta á. T.d.
í haust þá komst ég í smöl-
unina, en ekki réttirnar.
Flaug ég hér yfir um morg-
uninn á leið út. Slíkt hefur
gerst fyrr, en það er ekki við
öllu séð.“
Pólitíkin
-Hefur þú látið pólitík-
ina vera?
„Nú í seinni tíð, sem bet-
ur fer. Var að vasast í henni
áður. Sat t.d. í 12áríbæjar-
stjórn, en hætti fyrir
stjórn, en hætti fyrir rúm-
um fjórum árum, enda er
það alveg nóg að vera í
þessu í þrjú kjörtímabil,
fyrir flesta.
Það gerði nú kannski
endahnútinn þegar komm-
unum fjölgaði úr engum í
tvo. Hefur það sennilega
riðið mér að fullu í pólitík-
inni, en þeir duttu nú báðir
út eftir fyrsta kjörtímabil-
ið“.
Rammur
Grindvíkingur
-Ertu kominn frá útgerð-
ar- eða sveitaheimili?
„Eg er kominn frá
blönduðu heimili, pabbi
var skipstjóri og útgerðar-
maður og átti rollur, svo ég
ólst upp við það.“
-Hvað átti hann margar
rollur?
„Þær losuðu eitt hundr-
að, árið sem skorið var nið-
ur sem var 1950 eða 1951.
Nú, þetta rakst auðvitað
mjög á hjá pabba að vera
með fé með sjósókninni og
því lenti það mest á mér að
hugsa um þetta síðustu ár-
in. Eg taldi það nú reyndar
ekki eftir mér, ég hafði
mjög gaman af rollum. Svo
þegar féð var skorið niður
vegna mæðuveikinnar, tók
hann ekki fé aftur.
Var ég ekkert viðloðandi
kindur í þó nokkur ár, en
gerðist svo kaupamaður
uppi í hrepp 1955. Þá
komst ég aðeins meira í
snertingu við þetta aftur og
síðan fór maður að eignast
svona eina og eina og þá
svona hér í Víkursamfélag-
inu sem við kölluðum. En
það var nú meira svona til
að sýnast, en maður hefur
gaman af þessu.“
-Þú hefur þá alltaf haft
neistann í þér?
„Já, ég hef alltaf verið
meira fyrir rollur en hesta."
-Hefur þá ekki sumum
fundist nóg um, hve mikla
alúð þú hefur sýnt við sauð-
burðinn?
„Jú, konan mín hefur
gjarnan sagt að ég hefði
meiri áhyggjur af því er
rollurnar væru að bera, en
þegar hún væri að eiga
krakkana. Það getur verið
eitthvað til í því. Eg hafði
aldrei neinar áhyggjur af
því þegar hún var að eiga
krakka og í sjálfu sér ekki
áhyggjur af rollunum held-
ur. Mér finnst þetta bara
allt eðlilegt.
Hún var svolítið svekkt
einu sinni þegar hún átti
barn. Þá fór ég með hana
inneftir, allt var á síðasta
snúning en þetta var á
föstudaginn langa. Nú ljós-
móðirin var með okkur í
bílnum og við ókum beint
inn á Landsspítala og þar
fór hún beint inn, en ég sat
fram á bekk. Það hafði ekki
liðið nema korter eða hálf-
tími þar til hún var búin að
fæða og kom þá konan
fram til að láta mig vita, en
þá var ég víst steinsofnað-
ur. Það fannst hennigróft.“
-Ert þú sjálfur fæddur
hér í Grindavík?
„Já, ég er rammur
Grindvíkingur, þó ég sé
Vestmannaeyingur að
hálfu, mamma var þaðan.“
Staða útgerð-
arinnar í dag
-Ef við snúum okkur nú
að alvörunni, hver finnst
þér þá vera staða útgerðar-
innar í dag?
„Að mörgu leyti er hún
nokkuð góð. Ég er nú ekki
orðaður við sérstaka bjart-
sýni, þykir frekar svartsýn-
ismaður, en ég kalla það að
vera raunsæismaður. Ef
maður lítur i kringum sig,
þá held ég að fyrir íslend-
inga almennt, sé nokkuð
bjart yfir þessum málum.
Við horfum fram á aukna
fiskneyslu í heiminum og
þ.a.l. aukna eftirspurn.
Víða er talað um mengun
og annað sem er að hrjá
fólk, en við verðum von-
andi lausir við það áfram,
svo ég held að við eigum
ýmsa möguleika. Þá dreg
ég enda dul á og hef sagt i
mörg ár, að við getum auð-
vitað gert mikið betur, ef
við göngum um þessa fiski-
stofna eins og merin. Við
eigum að veiða a.m.k. 100-
150 þúsund tonnum meira
af þorski, en til þess verð-
um við að leyfa honum að
alast upp. Þó sé ég enga
breytingu framundan í
þeim efnum.“
Kvótamaður
-Ert þú kvótamaður?
„Já, ég er orðinn það.“
-Finnst þér þá að staðið
hafi verið skynsamlega að
þessu?
/ tilefni af 70 ára afmæli
Brunabótafélags íslands
bjóðum við viðskiptavinum
og velunnurum félagsins að
Ifta inn til okkar, mánudaginn
5. janúar n.k.,
og þiggja hjá okkur kaffisopa.
©
Viö óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
naniBánrtiiGlnHnps
Umboðsskrifstofa - Hafnargötu 58 - Keflavík