Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2015, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2015
Jólaskreytingar
Fólk sér rautt
LIFANDI BLÓM, KERTASKREYTINGAR OG KRANSAR TILHEYRA AÐVENTUNNI. BLÓM OG
ILMANDI JÓLASKREYTINGAR LÍFGA UPP Á SKAMMDEGIÐ OG SETJA HÁTÍÐLEGAN BLÆ
Á HEIMILIÐ. NÁTTÚRULEG EFNI OG KOPAR EIGA UPP Á PALLBORÐIÐ FYRIR ÞESSI JÓL
EN RAUÐI LITURINN TEKUR SÍÐAN ALLTAF YFIR ÞEGAR LÍÐUR AÐ JÓLUM. SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ HEIMSÓTTI TVÆR BLÓMABÚÐIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU TIL AÐ ANDA
AÐ SÉR JÓLAILMINUM OG FRÆÐAST UM STRAUMA OG STEFNUR Í SKREYTINGUM.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Helga Marta Helgadóttir er eigandi og blóma-skreytir í Árbæjarblómum við Hraunbæ. „Éger búin að vera hérna í níu ár. Blómabúðin varð
25 ára í nóvember og er með eldri fyrirtækjum hérna í
Árbænum,“ segir hún en blómabúðin setur svip sinn á
hverfið í þjónustukjarna með Skalla, Þorsteini Berg-
mann og fleiri verslunum og þjónustu. Hún segir góða
stemningu í hverfinu og fólk versli í heimabyggð.
„Aðventan byrjar með aðventukrönsunum, kertum og
öllu sem þarf í þá. Jólastjarnan og Amaryllis-laukarnir
eru mjög að sækja í sig veðrið. Fólk er að kaupa þetta í
byrjun aðventunnar,“ segir hún en hýasinturnar koma
síðar.
„Annasamasti tíminn í þeim er 10-14 dögum fyrir jól
svo þær verði fínar um jólin.“
Jólablómvöndum fjölgar
Helga segir mikið um að fólk kaupi jólablómvendi, ekki
síst til að gefa eldra fólki. „Blómasalan eykst eftir því
sem líður að jólum.“
Fólk er líka mikið að kaupa handa sjálfu sér en fal-
legir hurðakransar taka vel á móti gestum. „Það er orðið
töluvert stór kúnnahópur hjá okkur sem kemur með úti-
kransana ár eftir ár og lætur laga þá, skipta um greni og
setja aftur á þá. Það nýtir sama dótið, það sem það á og
bætir kannski við. Það er miklu meiri nýtni núorðið.
Fólk hendir ekki heldur lætur laga. Hugarfarið er
breytt,“ segir hún en þessara áhrifa gætir ekki síst eftir
hrun.
Það eru mörg fyrirtæki í Árbænum sem versla við Ár-
bæjarblóm en þau koma snemma á aðventunni til að
punta hjá sér. Fólk byrjar aðeins seinna að setja heim-
ilið í jólabúning og skreytingum til gjafa fjölgar eftir því
sem líður á, útskýrir Helga.
Hvernig er tískan í aðventukrönsunum í ár?
„Það er ákveðinn hópur sem vill alltaf hafa krans,
sama hvernig hann lítur út, hvort sem hann er greni eða
könglar. Það var mikið um kertabakka síðustu þrjú árin
en mér finnst það aðeins hafa minnkað. Við höfum farið
til baka í þessu.“
En hvernig eru straumarnir í jólaskreytingunum al-
mennt?
„Allt þetta náttúrulega, rómantíska og hlýja finnst
mér vera mikið núna. Hvítt og stílhreint líka og kop-
arinn er að koma sterkur inn. En því nær sem dregur
jólum því meira fer af rauðu hjá okkur. Við erum alltaf
dálítið rauð um jólin.“
Hún segir að koparinn hafi verið vinsæll í byrjun að-
ventunnar og fólki finnist hann fallegur en það segi að
hann passi ekki með því sem það eigi.
„Fólk er ekkert að svissa. Þú setur ekkert svo auð-
veldlega koparinn með öllu silfurdótinu þínu. Ég veit
ekki hvort hann nær einhverjum hæðum hérna en hann
er rosalega fallegur eins og með könglum og þessum
brúnu tónum. Þegar nær dregur jólum kemur alltaf jóla-
barnið upp í okkur og við förum aftur í þetta gamla.
Jólahefðirnar eru fastar í okkur. Jólin eru sá tími sem
við erum hvað föstust fyrir í einhverju og barnið kemur
upp í okkur.“
Gefandi tími
Jólin byrja snemma hjá Helgu og starfsfólki hennar.
„Við erum byrjaðar í ágúst, september að hugsa jólin.
Við skoðum blöðin og tökum stefnuna og pöntum inn.
Þetta er langt ferli.“
Helga segir þetta annasaman en skemmtilegan tíma í
blómabúðum. „Það gefur manni mikið að fá að skapa,“
segir Helga.
„Það er starfsfólk sem er hætt hérna en hringir til að
koma aðeins inn á þessum tíma. Þetta er svo stór partur
af undirbúningi jólanna hjá okkur sem erum í þessu. Það
verður viss söknuður og tómleiki þegar þessu er lokið.“
Náttúrulegt og rómantískt
Helga Marta Helgadóttir
er eigandi og blómaskreytir
í Árbæjarblómum
við Hraunbæ.
Koparinn fer vel
með könglum og
brúnum tónum en
rauði liturinn tekur
yfir þegar nær
dregur jólum.ÁRBÆJARBLÓM