Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 2015 Fyrsti hluti nýrrar íslenskrar leikinnar jólamyndar fyrir alla fjölskylduna er sýndur nú um helgina, sunnudaginn 13. desember kl. 18, en myndin, Klukkur um jól, er í þremur hlutum. Annar hluti er á dagskrá 20. desember og þriðji og síðasti hluti er sýndur á sjálfan jóladag. Myndin fjallar um krakka í íslenskum samtíma þar sem meðal annars er tekist á við einelti og fordóma og hvernig vinátta og sannur jólaandi geta gert tilveruna betri. Það er Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, sem er höf- undur sögunnar en Bragi Þór Hinriksson leikstýrir. Í aðalhlutverkum eru ungir og upprennandi krakkar auk þess sem reyndir leikarar svo sem Þröstur Leó Gunn- arsson og Ingibjörg Reynisdóttir leika fullorðna fólkið. Agnes Lína Harðardóttir og Helga Xochitl Ingólfsdóttir leika aðalhlutverkin í Klukkur um jól. JÓLAMYND Í ÞREMUR HLUTUM Fjölskyldumynd í þremur hlutum Á þessari mynd, sem birtist í Morgunblaðinu fyrir réttri öld, mánudaginn 13. desember 1915, sjást tveir örmagna serbneskir hermenn, er hafa tekið sér hvíld undir bæjarveggjum einhvers staðar í landi sínu. „Ef þið athugið myndina vel,“ segir í myndartexta, „munuð þið sjá það, að hermennirnir eru á sauðskinnsskóm, eins og flestir ís- lenzkir sveitamenn. Þessi plögg eru þar betri en gljástígvél og gangsólar, þar sem yfir fjöll og firnindi er að fara.“ Meira var hermt af hernaði í blaðinu þennan dag. Á sömu síðu, sem var önnur af fjórum, segir: „Hermálaráðherrann í Kanada heitir Hugher. Samkvæmt sím- fregnum frá Toronto, hefir hann ákveðið að ganga í herinn og hefir hann beðið leyfis til þess að mega stjórna herdeild kanadiskra her- manna á orustuvellinum í Frakk- landi. „Það er áform mitt, að ganga í herinn og leiða Kan- adamenn til Berlínar. Þangað skulum vér komast. Og það verður lagt fyr á stað en flesta mun óra fyrir.“ GAMLA FRÉTTIN Hermenn á sauðskinnsskóm Serbnesku hermennirnir hvíla lúin bein fyrir hundrað árum. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Michael Imperioli kvikmyndaleik- ari. Jóhann Jónsson, eigandi Ostabúð- arinnar á Skólavörðustíg. Eiríkur Stephensen, skólastjóri og söngvari í Hundur í óskilum.Skeifunni 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is RITSENHOFF sparibaukar Grís verð 5.500,- Bangsi verð 4.900,- URBANIA hús Verð frá 4.490,- OMAGGIO jólakúlur gull eða silfur 3 í pakka 7.890,- NOBILI jólakúlur 3 stk í pakka af sama lit 8.690,- AVVENTO kertastjakar Verð frá 2.580,- OMAGGIO skál í gulli 4.990,- KAY BOJESEN tréfígúrur Verð frá 6.990,- stk. IITTALA Alvar Aalto vasar 16 cm Verð frá 19.600,- FREEMOVER kertastjakar Verð frá 5.490,- stk. ARCHITECTMADE Strit 11.990,- POMME PIDOU sparibaukar Verð frá 3.390,- ROSENDAHL Kertastjakar 1.300,- stk. Falleg og eiguleg hönnu n NOBILI jólatré 18cm 5.190,- 24,5cm 6.890,- RITSENHOFF Vínglös 3.200,- stk. OMAGGIO Kertastjakar Verð frá 3.890,- IITTALA Kastehelmi Verð frá 2.400,- IITTALAMaribowl 12 cm verð frá 4.680.- OMAGGIO vasar silfur 12,5cm 4.990,- 20cm 8.990,- GLERUPS inniskór Á börn og fullorna KARTELL Abbracciaio 28.900,- stk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.