Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 58
S yndarinn heitir skáldsaga efir Ólaf Gunnarsson og segir frá mál- urunum Illuga Arinbjarnar og Davíð Gunnarssyni sem eiga sér ólík örlög; í upphafi bókarinnar er Davíð á leið í fangelsi eftir voðaverk, en Illugi stefnir til New York að halda sýningu í helsta listasafni Bandaríkjanna. Á kápu Syndarans segir að bókin sé sjálf- stætt framhald Málarans, en ekki þarf lengi að lesa til að sá sem þekkir Málarann átti sig á að hún er eiginlega beint framhald, hluti af stærra verki. Í samtali okkar notar Ólafur einnig orðalagið fyrra bindið og seinna bindið þegar hann talar um bækurnar. „Ég sá það alltaf fyrir mér að þetta yrði eitt verk, en þegar ég hafði skrifað einhvern spöl inn í seinna bindið áttaði ég mig á að það hentaði að skipta verkinu í tvennt og stöðva fyrri hluta þar sem Málaranum lýkur. Ég vona að báðir hlutarnir komist milli tveggja spjalda þegar fram líða stundir, en hlutirnir gerast oft hægt í þessum bransa.“. - Þér hefur ekki flogið í hug að láta þar við sitja, að þú værir búinn að segja nóg af sög- unni til að halda ekki áfram? „Nei, mér fannst svo ekki, mér fannst eins og sagan krefðist þess að við fengjum að vita hvað yrði um söguhetjuna Davíð Þorvaldsson og þess vegna hélt ég áfram með verkið. Svo er gríðarleg tenging milli bókanna um mynd- list Illuga. Í fyrra bindinu, Málaranum, málar hann rétttrúnaðarseríu af fyrri heimsstyrjöld- inni sem síðan kúvendist eftir að hann kynnist manni sem kemur á sýningu hans í New York í Syndaranum og sá maður hefur heldur betur aðra sögu að segja. Illugi heldur þá í aðra átt og þar sem hann gerir ekkert nema standa heilshugar að verki þá fer hann fram á ystu nöf, eins og hann reyndar gerir sér grein fyrir sjálfur á drykkjubúllu rétt áður en sýningin opnar. Þá rennur upp fyrir Illuga að hann er kominn í sálarháska og hann verulegan.“ Eins og verkum Illuga er lýst í bókinni málar hann í gamalli hefð, málar að hætti Rembrandt og Caravaggio, en mynd eftir þann síðarnefnda skreytir einmitt kápu bók- arinnar; Illugi málar í stíl afhjúpandi raunsæ- is. Við Ólafur ræðum þetta um stund og hann segir svo: „Tenging okkar við raunveruleikann hefur alltaf verið dálítið fyrirferðarmikið mál hér á Íslandi, Matthías Johannessen sagði einu sinni við mig: Við Íslendingar erum ekki skapandi bókmenntaþjóð, við erum miklu fremur sagnaþjóð, og það er þess vegna,“ heldur Ólafur áfram, „sem menn segja: þetta hús sem þú segir að hafi staðið þarna á Hverfisgötu 56, það var nú á allt öðrum stað í bænum, á Vesturgötu 21, hvaða rugl er þetta. En ég hef svarað og sagt, menn eiga ekki að láta slíkt smáræði skipta sig máli í skáldverk- um. Gott dæmi: Ég skrifaði skáldsögu fyrir nokkrum árum sem heitir Höfuðlausn og segir frá rithöfundi sem brýst í gegn á svipaðan hátt og Hamsun á sinni tíð. Þá sögðu menn: hvað er hér á ferðinni, það var enginn svona höfundur til hér á landi. Auðvitað var enginn svona höfundur, reyndi ég að malda í móinn. Þetta er skáldverk!“ - Að þessu sögðu þá fannst mér ég þekkja hluti úr þekktum málurum í bókinni. „Ekkert verður til úr engu,“ segir Ólafur, „en málarar sem ég hef umgengist hafa ef- laust haft áhrif á mig. Ég hef kunnað betur við mig í félagsskap málara heldur en kollega minna. Listmálarar eru ekki eins skelfilega af- brýðisamir og rithöfundur. Sennilega vegna þess að málverkin blasa við á veggjum en margt er dulið í bókum. Minn hugur stóð til þess að verða listmál- ari. Það byrjaði þegar ég kom inn á sýningu Erró í Listamannaskálnum 1965. Ég var þá að vinna í timbrinu í Völundi og gráminn og rigningin í Reykjavík og steinhúsin og ryðgað bárujárnið var eins niðursallandi og ein nið- ursöllun getur orðið. Af einhverjum ástæðum rambaði ég inn á þessa sýningu Errós og á einni svipstundu er ég umvafinn litum og ljósi og myndefni sem ég hafði aldrei séð neitt í liking við áður og hafði gífurleg áhrif á mig. Meira að segja keypti ég mynd fjölskyldu minni til mikillar undunar. Að sautján ára strákur eyddi Völundarpeningunum sínum í mynd eftir Erró, það taldist til tíðinda. En við að skoða þessa sýningu fékk ég löngun til þess að verða málari og byrjaði að gera klippimyndir og reyna að teikna, en það var alveg glatað hjá mér, ég var snauður hæfi- leikum,“ segir Ólafur og glottir. „Áhuginn hef- ur þó aldrei dvínað og ég fer oft með lista- verkabók í rúmið og les úttekt á einhverjum klassískum meistaraverkum rétt fyrir svefn- inn. Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn í gamla daga skoðaði ég söfn þegar menn fóru á landsleiki í handbolta.“ - Svo við komum aftur að hinu sjálfstæða framhaldi, þá þarf ekki endilega að lesa Mál- arann til að geta notið Syndarans, en það bætir óneitanlega talsverðu við. „Já, það má segja að maður þurfi ekki endi- lega að hafa lesið Málarann, en það skiptir samt miklu að glugga í þá bók. Menn sjá þá hvernig heildarverkið er hugsað. Þarna eru þessir tveir menn, Davíð og Illugi og þeir eru að mörgu leyti mjög líkir. Þeir eru báðir rammir af afli og vaskir til verka og ekki svo ósvipaðar persónur, munurinn er sá að Davíð hefur fullkomlega selt sitt talent, fjöreggið sitt, en Illugi hefur aldrei gert málamiðlun og gerir aldrei. Sá síðarnefndi er bölvaldur hins fyrrnefnda, en svo snýst það við í framvindu verksins og niðurlagi.“ Í lokin spyr ég Ólaf hvort hann sé með frekari verk í smíðum sem stendur og hann svarar því til að hann sé að velta fyrir sér endurminningabók, „einskonar Veislu í far- angrinum, að segja frá kynnum mínum af mönnum eins og Steinari Sigurjónssnyi, Al- freð Flóka, Degi Sigurðarsyni, Jóni Gunnari Árnasyni, Tryggva Ólafssyni, Sigurði Örlygs- syni og Einari Kárasyni og síðast en ekki síst, samskiptunum og vináttunni við útgefandann Jóhann Pál. Brot úr þessu endurminn- ingaverki birtist í næsta Tímariti Máls og menningar. Ég er þó ekki búinn að afráða hvort ég klári þetta verk. Alfreð Flóki sagði einu sinni við mig; „Elsku vinur, þú verður að lofa mér einu. Að skrifa aldrei um mig.“ Þetta er reyndar ágætis byrjun á bók og nú er bara að bíða og sjá hvort ég stend við loforðið eða svík það.“ MÁLARINN OG SYNDARINN Sagan krafðist framhalds Rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson ætlaði sér að verða málari. Morgunblaðið/RAX Í NÝRRI SKÁLDSÖGU SINNI, SYNDARANUM, REKUR ÓLAFUR GUNNARSSON ÞÁ ÖRLAGAÞRÆÐI SEM HNÝTA SAMAN TVO LISTMÁLARA SEM EIGA SÉR ÓLÍK ÖRLÖG EN ERU ÞÓ ÁÞEKKIR AÐ MÖRGU LEYTI Árni Matthíasson arnim@mbl.is * Við að skoða þessasýningu fékk ég löng-un til þess að verða mál- ari og byrjaði að gera klippimyndir og reyna að teikna. 58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015 Bækur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.