Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 56
Það er svo mikill stjörnufans og stjörnudans yfir þessu jólabókaflóði að við liggur að maður viti ekki hvað stendur raunverulega upp úr því. Vonandi veit það á gott. Ég er að ljúka við Stúlku með höfuð eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur. Og þetta höfuð opnast og hleypir lesandanum inn í andlega og reyndar einnig mjög líkamlega eða mun- úðarfulla þroskasögu höfund- arins. Fallega stíluð, heillandi og opinská lesning. Svo bíður Þýska húsið hjá félaga Arnaldi Indr- iðasyni handan við hornið og þar er eflaust sitthvað spenn- andi á seyði. Trúlega les ég fleiri kollega í sakamála- deildinni. Gæti t.d. hugsað mér að lenda í Gildrunni hennar Lilju Sigurð- ardóttur. En svo er margt annað möstið. Árni Þórarinsson Bækur 56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015 Jahá, hér er ekki beðið um lítið. Kannski er réttast að nefna bækur úr ólíkum flokkum, svona upp á fjölbreytnina. Fyrst nefni ég þá barnabókina Af hverju eru jöklar og ís á jörðinni? sem ég sá í bókabúð um daginn. Bók- in svarar ýmsum spurningum um efnið fyrir forvitna krakka – og fullorðna – og er eftir Helga Björnsson, jökla- fræðing og prófessor em- eritus við HÍ. Þá langar mig að komast í ljóðabók Guðrúnar Hannesdóttur, Humátt, en ég er yfirleitt hrifin af tökum hennar á máli og viðfangsefnum. Svo er Geirmundar saga heljar- skinns á borðinu hérna, höf- undurinn Bergsveinn Birgis- son býr í Noregi en er sennilega manna íslenskastur. Mig grunar að sú bók fjalli um fleira en fortíðina. Sigurbjörg Þrastardóttir HVAÐ LANGAR HÖFUNDANA AÐ LESA? Alma blaðamaður birtist lesendumfyrst í bókinni Beinahúsið sem Guð-rún Guðlaugsdóttir sendi frá sér í fyrra. Höfundurinn segir afar líklegt að Alma eigi eftir að lenda í fleiri ævintýrum í framtíðinni. Hún sé uppfull af hugmyndum til að halda áfram með Ölmu. Er það rökrétt framhald á löngum blaða- mannsferli þínum, Guðrún, að blaðamaður sé í aðalhlutverki í nýjustu bókunum? „Ég held mikilvægt að þekkja vel til þess sem maður skrifar um, svo ekki sé hægt að reka mann á stampinn með það. Ég velti ýmsum atvinnugreinum fyrir mér og komst að þeirri niðurstöðu að drepa niður fæti þar sem maður hefur mesta yfirsýn. Ég hef ekki stundað nein löggæslustörf og fékk satt að segja lögreglumann til að lesa yfir kafla þar sem lögreglan kemur við sögu í bókinni en blaðamennskan veitir manni aðgang að svo mörgu; Alma lendir í ýmsum ævintýrum og hittir alls konar fólk, sem gerist einmitt í blaðamennskunni. Maður þarf að takast á við ýmislegt; ég hef til dæmis sjálf tekið viðtöl við miðla, eins og koma við sögu í bókinni.“ Gaman að búa til persónur Getur það verið rétt upplifun hjá mér að þykjast þekkja einhverjar af persónum bók- arinnar úr blaðamennskunni? „Fannst þér þú þekkja einhverja? Persón- urnar eru tilbúningur þótt sumir eigi sér færri fyrirmyndir en aðrir fleiri! Það má að minnsta kosti segja að ég hafi kynnst flest- um þessum manngerðum í starfi og svipuð atvik eiga sér stað í bókinni og ég hef upp- lifað sjálf eða heyrt frá öðrum blaðamönnum. Og mér finnst voðalega gaman að búa til fólk! Blaðamenn geta ekki leyft sér það en ég gat það þó einu sinni, 1. apríl. Bjó til sköllóttan mann sem fann upp meðal við skalla og margir komu þangað sem meðalið átti að fást. Mér fannst það mjög skemmti- legt, en reyndar ekki fólkinu sem kom ...“ Þú hefur fengist við skriftir í áratugi, ekki satt? „Jú. Ég er menntaður leikari og það fyrsta sem birtist opinberlega eftir mig var útvarpsleikrit fyrir krakka. Ég skrifaði það í í eldhúsinu heima þegar ég var með pínulítil börn; það var mjög skemmtilegt. Svo hef ég alltaf verið að yrkja; skrifaði ljóð á tilfallandi umslög. Tók mig svo til einhvern tíma og gaf út tvær ljóðabækur. Ég á safn af ljóðum sem ég gef kannski einhvern tíma út, en það er reyndar ekki brjáluð eftirspurn eftir ljóðum núna; ljóðskáld eru ekki poppstjörnur eins og þegar Davíð Stefánsson var og hét! Ljóð- in mín bíða síns tíma í rólegheitum.“ Þú skrifar hér sakamálasögu, sem er þó BLAÐAMAÐUR DEYR Fólk speglar sig í samtímasögum BLAÐAMAÐURINN ALMA SNÝR AFTUR Í GLÆPASÖGU GUÐRÚNAR GUÐ- LAUGSDÓTTUR, BLAÐAMAÐUR DEYR. STARFSBRÓÐIR HENNAR HVERFUR Á VIT FEÐRA SINNA OG ÞAÐ HEFUR AFGERANDI ÁHRIF Á ÖLMU SJÁLFA. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Í bókinni Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn sagðifrá því er sex börn flúðu úr Fagradal og settust að á dularfulluskeri. Áfram var sagt frá þeim í Draugagangi á Skuggaskeri og nú lýkur þríleiknum með Leyniturninum á Skuggaskeri. „Þetta er heilmikið ævintýri. Börnin eiga heima í Fagradal þar sem allt leikur í lyndi í upphafi; tvö þorp eru sitt hvorum megin við á, fólkið í þorpunum er vinir þangað til farið er að deila um hver á dýrmætan málm sem mun vera í jörðu í hólma úti í miðri ánni. Deilan þróast út í stríð, börnin gleymast og það endar með því að þau yfirgefa svæðið; strjúka að heiman og setjast að á Skuggaskeri,“ segir Sigrún í samtali við Sunnudagsblað Morgun- blaðsins. Einhver kann að telja söguþráðinn falla vel að samtímanum: Krakkarnir ákveða að þegja yfir því að dýrmæti málmurinn, sem tal- að var um, er á Skuggaskeri en ekki þar sem haldið var. Þeim finnst það ekki vera neinum til góðs að vinna hann úr jörðinni núna. Þau vilja heldur láta hann liggja þar sem hann er þar til mennirnir eru orðnir nógu þroskaðir til að nota hann í annað en vígbúnað. „Ef boð- skapur er í sögunni er hann sá að allir geta gert eitthvað til að bæta heiminn,“ segir Sigrún Eldjárn. Hún hefur í gegnum tíðina sent frá sér fjölda bóka fyrir börn. Sú fyrsta, Allt í plati, kom út 1980. „Ég byrjaði á því að myndskreyta bækur fyrir aðra og fór svo að skrifa sögurnar sjálf. Fyrsta bókin var mjög viðburðarík; ég þurfti að koma svo mörgu að vegna þess að ég hélt það yrði jafnvel eina bókin mín! Nú er ég löngu hætt að telja hvað þær eru orðnar margar …“ Bækur Sigrúnar eru jafnan mjög myndríkar. „Í þeim öllum eru mun fleiri myndir en venjulega í svona miklum textabókum, en margir hafa sagt mér að það hafi orðið til þess að þeir krakkar, sem áður höfðu ekki náð alveg nógu góðum tökum á því að lesa sjálf komist yfir hjallann í þessum bókum. Myndirnar brjóta upp textann og það gerir lesturinn léttari,“ segir höfundurinn. „Þegar ég skrifa hugsa ég ekkert um fyrir hvaða aldur það er en oft er gerð krafa um að nefndur sé einhver sérstakur aldur, aðallega til að afgreiðslufólk í bókaverslunum geti leiðbeint kaupendum. Talað hefur verið um að þessar bækur séu fyrir 8 til 12 ára en ég held satt að segja að allir geti notið þeirra. Krakkarnir eru að minnsta kosti ánægðir!“ Persónurnar Kuggur, Málfríður og mamma hennar hafa fylgt Sig- rúnu lengi og verða á RÚV-skjánum um jólin. Leikritið Kuggur og leikhúsvélin var sett á svið fyrr á árinu og tekið upp. Og þó verkin séu orðin mörg heldur Sigrún vitaskuld ótrauð áfram: „Ég er með ýmislegt á prjónunum. Skilaði nýjustu bókinni af mér einhvern tíma í vor og hef verið að vinna í ýmsu síðan. Ég er alltaf með nokkrar hugmyndir í vinnslu, ein þeirra tekur svo yfir og maður klárar það verkefni. Ég er ekkert hætt!“ skapti@mbl.is LEYNITURNINN Á SKUGGASKERI Myndirnar hjálpa mörgum ÞRÍLEIK SIGRÚNAR ELDJÁRN UM BÖRNIN Á SKUGGA- SKERI ER LOKIÐ. ÞESSI VINSÆLI MYND- OG RITHÖF- UNDUR ER MEÐ MARGT Á PRJÓNUNUM SEM ÁÐUR. „Allir geta gert eitthvað til að bæta heiminn,“ segir Sigrún Eldjárn. Morgunblaðið/Styrmir Kári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.