Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Blaðsíða 35
13.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Sérstök jóladagskrá Árbæjarsafns verður sunnudagana 13. og
20. desember á milli kl. 13 og 17. Ungir sem aldnir geta rölt á
milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann
var í gamla daga og verður margt á dagskrá.
Árbæjarsafn á aðventunni*Það er betra að kveikja á kerti enbölva myrkrinu.
Peter Benenson
Fjölskyldumeðlimir eru: Karl Ei-
ríksson pabbi, Valentína Björns-
dóttir mamma, Kristín Shurui Karls-
dóttir ellefu ára og kötturinn Felix
eins árs.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Föstudagskvöldin eru vinsæl sjón-
varpskvöld, þá finnst okkur gott að
kúra saman í sófanum og horfa á
Gísla Martein, Frímann og Útsvar.
Við mæðgurnar bíðum spenntar eftir
annarri þáttaröðinni af Poldark.
Pabbinn og barnið elska Simpsons
og Finnboga og Felix.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum? Grillað lambakjöt béarnaise
á góðum sumardegi í sveitinni er
mest í uppáhaldi hjá okkur öllum.
Heimalöguð pítsa a la pabbi er líka í
miklu uppáhaldi. Reyndar er allt sem
pabbi eldar æðislega gott, hann er
meistarakokkur og dekrar við stelp-
urnar sínar.
Skemmtilegast að gera saman?
Okkur finnst alltaf gott að fara í sund
saman, við eigum margar gæða-
stundir í eldhúsinu og höfum gaman
af að vera úti í náttúrunni, fara í fjall-
göngur og rækta garðinn okkar í
sveitinni. Nýjasta áhugamálið eru
útilegur, svo elskum við að fara í sól-
ina á Tenerife á veturna, þar göngum
við mikið, leikum okkur á ströndinni,
leigjum bíl og keyrum út um allar
sveitir og skoðum áhugaverða staði.
Borðið þið morgunmat saman?
Um helgar finnst okkur notalegt að
borða saman góðan morgunmat, en á
virkum dögum fer pabbi svo snemma
í vinnuna að við mæðgurnar borðum
saman morgunmat þá. Oftast er það
linsoðið egg og AB-mjólk með múslí
og epli sem við borðum.
Hvað gerið þið saman heima ykk-
ur til dægrastyttingar? Okkur
finnst öllum notalegt að lesa góða
bók, við spilum mikið eins og t.d.
yatzy og þriggja manna vist. Nýjasta
æðið á heimilinu er Monopoly. Svo
finnst okkur gaman að púsla erfið
púsl, sérstaklega þegar úti er dimmt
og kalt.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Alltaf gott að fara í sund
Karl, Kristín
Shurui og
Valentína.
Sagan Bjössi bolla – órabelgur og
prakkari sem kom út á bók í fyrra er
nú líka komin út sem hljóðbók.
Magnús Ólafsson, leikari og höf-
undur bókarinnar, les sjálfur inn á
hljóðbókina. Söguna lífgar hann upp
með hljóðum, söng, gríni og gleði.
Hægt er að fá bókina og hljóðbókina
saman og fylgjast þannig með á síð-
unum um leið og hlustað er. Bjössi
bolla er mörgum foreldrum kunnur
enda kom hann fyrst fram á sjón-
arsviðið fyrir yfir 30 árum. Ein-
hverjir munu eflaust taka því fegins
hendi að geta kynnt þennan grallara
fyrir sínum eigin börnum.
Bjössi bolla og Magnús Ólafsson
skapari hans eru hinir mestu mátar.
Hljóðbók
með glensi
BJÖSSI BOLLA