Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjöldi erlendra hótelkeðja hefur sýnt því áhuga að reka fyrirhugað risahótel í Vatnsmýri í Reykjavík. Hótelið verður það stærsta á Íslandi með 400-450 herbergjum. Jóhann Hall- dórsson, fram- kvæmdastjóri S8 ehf., stýrir undir- búningi vegna uppbyggingar hótelsins. Hann segir áformað að hefja fram- kvæmdir eigi síð- ar en í júní næsta sumar, þannig að hótelið geti hafið starfsemi haustið 2017. „Síðustu tveir mánuðir hafa farið í viðræður við ýmsa aðila. Markmiðið hefur verið að fá erlendan aðila til að reka hótel í þessari byggingu sem búið er að forhanna. Þessar keðjur eru af þeirri stærðargráðu að hlut- irnir gerast ekki á íslenskum hraða. Svona verkefni eru hluti af margra mánaða ferli. Nánast hver einasta erlenda hótelkeðja sem dæmigerður Íslendingur kannast við hefur sýnt því áhuga að koma hingað. Það er síðan önnur saga hvort ég hef að bjóða lausnir sem henta þessum keðjum,“ segir Jóhann og víkur að sérstöðu íslenska markaðarins. Annað fyrirkomulag á Íslandi „Það hefur komið í ljós að íslensk- ur fjármálamarkaður býður ekki upp á þær lausnir sem þarf fyrir er- lenda aðila. Flestar erlendu hótel- keðjurnar leigja ekki hótelin heldur gera rekstrarsamninga. Á Íslandi er bankakerfið vant því að til staðar sé leigusamningur. Þetta er áhugaverð staðreynd og kann að skýra hvers vegna nánast engar erlendar keðjur reka hótel á Íslandi. Ástæðan er að erlendu keðjurnar gera ekki leigu- samninga og íslenska fjármálakerfið hefur ekki aðlagað sig að þeim veru- leika,“ segir Jóhann og tekur fram að samstarfið við þessa erlendu aðila gangi engu að síður vel. Þessi sér- staða íslenska markaðarins flæki hins vegar allan undirbúning. Spurður hvers vegna hann sé öðr- um þræði að horfa til erlendra aðila segist Jóhann telja að markaðurinn þurfi á því að halda. Þá bendir hann á að Bandaríkjamönnum sem komi til Íslands fjölgi. Sá hópur sé áhuga- samur um að gista á keðjum sem þeir þekkja. Almennt sé eftirspurnin eftir erlendum hótelkeðjum að aukast á Íslandi. Hótelið í Vatnsmýri verður 22.450 þúsund fermetrar og með 400-450 herbergjum. Kostnaður við bygg- inguna er áætlaður um 9 milljarðar króna. Til samanburðar kom fram á mbl.is í lok september að miðað væri við 300-400 herbergi á hótelinu, 8 milljarða fjárfestingu og að bygg- ingin yrði 18 þúsund fermetrar. Mun betri nýting á Íslandi „Það er slík eftirspurn núna – og raunar umframeftirspurn – að hótel- markaðurinn myndi þola það að vaxa ekki neitt og jafnvel að verða fyrir áföllum. Almennt er gert ráð fyrir í hótelrekstri að menn þurfi 65% eða meiri nýtingu til að geta verið á markaði. Íslensku hótelin eru að nálgast 90% nýtingu. Fram kem- ur í nýrri skýrslu Háskólans á Bif- röst að aðeins um 13% af 1.900 íbúð- um sem leigðar eru til ferðamanna í Reykjavík í gegnum vefinn Airbnb eru löglegar. Það kemur væntanlega að því að farið verður að þrengja að slíkri ólöglegri starfsemi.“ Fram kemur í umræddri skýrslu Háskólans á Bifröst að árið 2005 voru um 2.000 hótelherbergi í boði á höfuðborgarsvæðinu en um 3.400 herbergi árið 2014. Á sama tíma jókst meðalnýtingin úr um 60% í 85%. Frá síðustu áramótum hafa mörg hundruð herbergi bæst við markaðinn og má þar nefna 320 her- bergi í Fosshótelsturninum á Höfða- torgi í Reykjavík. Þá hafa Hótel Stormur (93 herbergi) og Hótel Skuggi (100 herbergi) tekið til starfa á árinu og Hótel Borg tekið í notkun nýja álmu (43 ný herbergi), líkt og Icelandair Hotel Reykjavík Marina (40 ný herbergi). Alls bættust við 596 herbergi á þessum fimm hótelum sem segir sitt um stærð hótelsins sem áformað er að reisa í Vatnsmýri næstu misseri. Risahótel í Vatnsmýri stækkar  Nú er miðað við að 400-450 herbergi verði á hótelinu  Fjöldi erlendra hótelkeðja sýnir áhuga  Framkvæmdastjóri félags að baki hótelinu segir íslenskan fjármálamarkað skorta réttar lausnir Tölvuteikning/ASK arkitektar/Birt með leyfi Á teikniborðinu Hér má sjá drög að fyrirhuguðu hóteli í Vatnsmýrinni. Með útsýni yfir borgina Á efstu hæð verður hægt að kaupa áfenga drykki. Götuhorn Nú er áætlað að byggingin verði yfir 22 þúsund fermetrar.Jóhann Halldórsson Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni Reykjavíkurborgar um flýtimeðferð vegna stefnu borgarinnar á hendur ríkinu. Tilefnið er meint- ar vanefndir á samningum Reykjavíkurborgar og ríkisins um lokun NA-SV flugbrautar Reykjavíkurflugvallar. Hefur ríkislögmaður fengið frest til 7. janúar nk. til að skila greinar- gerð ríkisins í málinu. Fram kom á fundi borgarráðs 19. nóvember að Reykjavíkurborg hefði „ítrekað farið fram á við innanríkisráðuneytið að það tilkynni um lokun NA-SV flugbrautarinnar og hlutist til um endurskoðun á skipulagsreglum um Reykjavíkurflugvöll í samræmi við skuldbindingar sem ríkið gekkst undir með samningum frá 19. apríl 2013 og 25. október 2013 sem kveða á um að flugbrautinni verði lokað“. Flýtimeðferð í flugvallarmáli RÍKISLÖGMAÐUR HEFUR FREST TIL 7. JANÚAR Ekkert samkomulag er á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um af- greiðslu fjárlagafrumvarps næsta árs og afgreiðslu annarra mála og frestun þingfunda fram yfir áramót. Önnur umræða um fjárlagafrum- varp næsta árs stóð allan daginn í gær og fram á nótt. Þingflokksformenn og forystu- menn flokkanna hafa undanfarna daga verið að ræða óformlega um af- greiðslu mála. Ragnheiður Rík- harðsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, segir að sam- komulag hafi ekki tekist. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti störfum haustþings að ljúka með þingfrestun síðastliðinn föstudag, 11. desember. Ekki er hægt að fresta fundum fyrr en fjárlög hafa verið af- greidd og tengd mál og nokkur svo- kölluð dagsetningamál. Ríkisstjórn- in hefur einnig lagt áherslu á að ljúka afgreiðslu frumvarps um breytingar á skipulagi þróunarsam- vinnumála. Um það mál eru skiptar skoðanir í þinginu og ljóst að stjórn- arandstaðan mun leggjast í miklar umræður ef málið verður sett á dag- skrá fyrir jól. Stjórnarandstaðan leggur einnig áherslu á tilteknar breytingar á fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Inn í stöðuna blandast frumvarp Illuga Gunnarssonar menntamála- ráðherra um að hækka aftur út- varpsgjald og láta hækkunina renna til Ríkisútvarpsins. Frumvarpið hef- ur ekki verið afgreitt frá ríkisstjórn- inni til stjórnarflokkanna og ljóst virðist að málið sé að renna út á tíma. helgi@mbl.is, agnes@mbl.is Ekki samkomulag um afgreiðslu mála  Önnur umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar stóð fram á nótt á Alþingi og er ekki lokið  Óformlegar viðræður stjórnar og stjórnarandstöðu um frestun þingfunda skila ekki árangri Morgunblaðið/Eggert Umræður Stjórnarandstaðan hefur rætt ítarlega um fjárlagafrumvarp og einstaka stjórnarliðar lagt orð í belg. Þingmenn settu í gær nýtt met í umræðum um fjárlagafrumvarp. Seint í gærkvöldi hafði önnur umræða staðið í um 56 klukku- stundir og ekki séð fyrir endann. Fyrra metið var frá 2012, þegar rætt var um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2013. Þá stóð 2. um- ræða yfir í 49 klukkustundir og 36 mínútur, samkvæmt upplýs- ingum frá skrifstofu Alþingis. Þá tóku umræðurnar þrjár og at- kvæðagreiðslur um 80 klukku- stundir en í gærkvöldi hafði um- ræðan þegar staðið í um 73 stundir. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, forsætisráðherra, spáði því í þinginu í gær að þetta Íslandsmet stjórnarandstöð- unnar í málþófi myndi standa lengi. Nýtt Íslands- met í „málþófi“ MARAÞONUMRÆÐUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.