Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 Íupphafi sögunnar Leiðin út íheim vaknar maður í rúmisínu. „Við skulum kalla hannPál,“ segir höfundurinn les- endum og bætir við: „Páll er ástríðu- sál. Hann veit að hann dreymdi eitt- hvað en man aðeins óljós svipleiftur draumsins“ (5). Og Páll er einn og í kringum hann er undarlega kyrrt og hljótt. Þarna hefst saga ævintýralegs en um leið martraðarkennds ferða- lags manns gegnum daginn í breytt- um heimi, heimi sem alráður höfund- urinn hnoðar og mótar hugvits- samlega og hefur fjarlægt aðra menn úr. Skiljanlega verður Páll – sem stundum virðist vera drengur, stundum fullorðinn – blúsaður við þess- ar aðstæður en hann „fóðrar stund- um sína eigin þögn með gömlum blúslögum. Blúslög hefjast á því að einhver vaknar um morgun. Sá ný- vaknaði í blúsunum er jafnan ein- mana og blár. En Páll er hvorki ein- mana né blár“, segir höfundurinn okkur og bætir við að Páli líði prýði- lega og bætir við: „og það er víst ég sem hef það verkefni með höndum að lýsa því“ (7). Þessi knappa nóvella Hermanns Stefánssonar er byggð á kunnri sögu Jens Sigsgaard, Palli var einn í heim- inum. Sú myrka einsemdarsaga kitl- aði hugarflug þessa rýnis í æsku, eins og hún hefur fangað hug ótal lesenda síðan. Hermann hefur á sín- um höfundarferli orðið einn helsti fulltrúi meta-skáldskapar hér á landi, póstmódernískur kyndilberi sem vinnur iðulega á snjallan hátt með persónulegt net vísana og til- vitnana í önnur bókmenntaverk og skapar úr þeim vefnaði persónulegar frásagnir. Og er oft á tíðum líka ískrandi írónískur í frásögn sem af- stöðu. Hér endurgerir Hermann söguna um Palla á athyglisverðan hátt en þótt svarthvít barnasaga Sigsgaard sé grunnlagið í verkinu getur hver og einn lesandi séð eða frekar skynjað þéttriðið net vísana og hugmynda sem sóttar eru í önnur listaverk og hugmyndakerfi. Eins og til að mynda endurteknar hugleiðingarnar um einsemdina. Einn af fyrstu köfl- unum, þegar Palli er enn að átta sig á breyttum veruleika, hefst svona: „Staðreyndin er þessi: ÞAÐ ER ENGINN TIL Í ÖLLUM HEIM- INUM NEMA PALLI.“ Og sögu- maður spyr: „Hvernig má skilja þessa staðreynd?“ Bætir svo við: „Einu sinni var sett fram merkileg kenning sem lagði áherslu á einsemd mannsins og sagði: Maðurinn er allt- af einn“ (17). Þar dregur höfund- urinn fram hugmyndir tilvistar- heimspekinnar, Camus kemur í hugann, líka Thor Vilhjálmsson, Hlutskipti manns; höfundum og verkum er brugðið upp í höfði les- enda en sögumaðurinn heldur sig við Palla og segir að af þeirri staðreynd að maðurinn sé einn með sjálfum sér spretti ábyrgð; hann sé niðurstaðan af eigin ákvörðunum og gjörðum. Og hann hafnar kenningum um stað- reyndir málsins: það sé ekki nokkur maður til í heiminum nema Palli, ekkert samfélag og engin félagsleg samskipti. „Engin kenning getur skákað þeirri staðreynd“ (19) Og á hvaða ferðalagi er þessi drengur eða maður, hann Palli? Er þetta draumur? Þessi lesandi þóttist stundum finna fyrir vísunum í skáld- sögur og tveggja-heima-sýn Gyrðis Elíassonar, eins og í drenginn Sig- mar í Gangandi íkorna sem vaknar líka í breyttum heimi. Og í sögu Gyrðis Svefnhjól, eða aðrar um aft- urgöngur sem sjást ekki í speglum en Palli fær á einum stað þá hug- dettu að hann muni ekki sjást í spegli, eins og þekkist úr slíkum frá- sögnum. Og vissulega má finna fyrir bergmáli úr þessum söguheimum sem mörgum öðrum. En Palli fer út í daginn og rekst á tómar verslanir og getur gert hvað sem honum sýnist, rétt eins og Palli hans Sigsgaard. Hann stelur súkkulaði, tæmir hrað- banka, hugsar um misskiptingu auðs í heiminum og um eftirlætisljóð, „Berjum fátæklingana“, eftir Baude- laire. Ýmiskonar heimspekilegar hugleiðingar kallast á við athafnir Palla og hugsanir hans, þar sem minnið um tvífarann fer til dæmis að koma við sögu; hann leitar á ráfinu skugga síns, eftirmyndar, og líka að stúlku og beitir við leitina galdra- korti sem virðist sótt beint til Harrys Potter. Og sífellt er lesandinn minnt- ur á að hann er að lesa skáldskap, þegar sögumaðurinn, í anda æðsta- prests slíkra meta-frásagna, Italos Calvino, minnir á að við séum að lesa og að höfundurinn kunni að hafa eitt- hvað að segja okkur, og sjálfum sér um leið, því sá „sem skrifar bók á er- indi við sjálfan sig ekki síður en heiminn“ (56). Þannig er lesandinn iðulega minntur á uppsprettu frá- sagnarinnar í ímyndunarafli og reynslubanka höfundarins, og að sá hugur geti gert hvað sem er við per- sónurnar og aðstæður þeirra. Palli er sendur í bíó þar sem ólíkar skáldaðar senur og gamlar fréttamyndir birt- ast á tjaldinu; hann dottar og í mar- traðarkenndri senu á hann samfarir við spörfugl; þegar hann upplifir fljúgandi peningaseðla er hann „líkt og nýkominn af fundi hjá félagi ímyndunarveikra“ (32); og í einsemd- inni prófar hann að ganga nakinn um og leitað er skýringa á hvarfi ann- arra: „Kannski eru allir fluttir yfir í sýndarveruleikann nema hann.“ (34). Og Palli fær líka að takast á við sköpun heims, eins og höfundurinn sem býr hann sjálfan til, þegar hann mótar heim úr hrísgrjónum, klunna- legt sköpunarverk sem hann er samt stoltur af en borðar síðan upp til agna áður en höfundurinn heldur áfram að ráðskast með hann og heiminn í sköpunarleik sínum. Hermann Stefánsson er flinkur höfundur sem kann vel þá list að skapa áhugaverðan söguheim og tengja hann við hitt og þetta. Þessi knappa saga, Leiðin út í heim, er þannig býsna hugvitssamlega sögð. Undirrituðum finnst hún þó á köflum full írónísk og köld, og sögumaðurinn látinn vera of meðvitaður um sköp- unarferlið, möguleikana sem í því fel- ast – og fá full mikið að stöðva það sem kalla mætti lestrarupplifun eða flæði við lesturinn. Fastur í snyrti- legu og vissulega áhugaverðu og þéttriðnu neti vísana og allrahanda hugleiðinga, um skáldskap, líf og heimspeki, fór þessi lesandi að velta fyrir sér hvort formið útilokaði ein- lægni, og hvort engin leið væri að fanga merkinguna, eitthvað sem kalla mætti kjarna verksins. Afstöð- una. Kannski er það ætlunin með þessari aðferð, hinni póstmódern- ísku, þar sem allt snýst um endur- vinnslu. Nýtt púsl með gömlum stykkjum. En að þeim hugleiðingum slepptum er þetta býsna haganlega mótuð, vel skrifuð og forvitnileg saga. Vert er að hrósa umbroti og kápu- hönnun Leiðarinnar út í heim og því hvernig form- og myndhugsun hönn- uðarins kallast á við heim sögunnar. Ragnar Helgi Ólafsson hefur á und- anförnum árum náð afar athyglis- verðum tökum á útlitshönnun bóka, er bæði fjölhæfur og frumlegur um leið og hann þekkir lögmálin, til að mynda hvernig letur á að sitja á síðu. Á kápu er söguhetjan í frjálsu falli, annaðhvort í draumi eða martraðar- kenndum veruleika. Rétt eins og í sögunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimssmiðurinn Hermann Stefánsson endurskapar á hugvitssamlegan hátt söguna um Palla sem var einn í heim- inum með þéttriðnu neti „vísana og hugmynda sem sóttar eru í önnur listaverk og hugmyndakerfi“. Það er enginn til í öllum heiminum nema Palli Skáldsaga Leiðin út í heim bbbmn Eftir Hermann Stefánsson. Sæmundur, 2015. Innbundin, 89 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 19/12 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 26/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar Njála (Stóra sviðið) Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00 Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00 Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið) Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas. Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k Margverðlaunað meistarastykki Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00 Sýningum lýkur í janúar Sókrates (Litla sviðið) Lau 19/12 kl. 20:00 Sun 27/12 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 17/12 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 21:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 18/12 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 19/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð. Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Lau 26/12 kl. 19:30 Frumsýning Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn Lau 23/1 kl. 16:00 2.sýn Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Um það bil (Kassinn) Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 10/1 kl. 14:00 21.sýn Sun 17/1 kl. 14:00 23.sýn Sun 10/1 kl. 16:00 22.sýn Sun 17/1 kl. 16:00 24.sýn Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu Gagnrýnendur eru hikandi í umfjöll- un sinni um söngleikinn Lazarus, sem tekinn hefur verið til sýninga á „off-Broadway“ í New York og vek- ur mikinn áhuga fyrir að vera byggður kringum lög eftir David Bo- wie og söguþráð sem hann hefur sagt vera einskonar framhald kvik- myndarinnar The Man Who Fell to Earth sem hann lék sjálfur í á sínum tíma. Bowie og Enda Walsh eru höf- undar leiktextans. Rýnar segir flestir erfitt að lýsa söguþræðinum, að ná á honum taki, en tónlistin sé áhrifamikil. „Þetta ætti í raun að vera hræði- leg sýning,“ segir gagnrýnandi The Guardian. „Það er ólíklegt að útkom- an sé eins og höfundarnir sáu fyrir sér og það er lítið vit í því sem þeir hafa skapað. En þessir höfundar eru bara svo gríðarlega hæfileikaríkir og leikararnir í sýningunni takast á við verkið af slíkri einbeitni og djörf- ung að það er ekki hægt annað en að hrífast með og njóta verksins, að minnsta kosti svolítið.“ Hikandi gagnvart söngleik Bowies Fjölhæfur Bowie í kvikmynd Nicolas Roeg, The Man Who Fell to Earth.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.