Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Miklar umræður standa nú yfir á Al- þingi um afgreiðslu fjárlagafrum- varps ríkisstjórnar og hafa af því til- efni fjölmargir þingmenn stigið í pontu og tjáð sig um frumvarpið. Einn þeirra er Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en síðastliðinn fimmtudag setti hann gerð fjárlaga næsta árs í samhengi við þann veruleika sem Íslendingar stæðu nú frammi fyrir hefði Alþingi þess tíma samþykkt niðurstöðu samninganefndar Íslands, sem leidd var af Svavari Gestssyni sendiherra, í viðræðum við Breta og Hollendinga um Icesave-reikningana árið 2009. En samkvæmt þeirri samningsnið- urstöðu hefði fyrsta greiðsla Íslend- inga, upp á 36 milljarða króna, átt að greiðast á næsta ári. „Hver væri staða okkar við fjár- lagagerðina núna ef háttvirtur þing- maður Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir, hæstvirtur forsætisráðherra þess tíma, hefðu komið sínum málum í gegn?“ spurði Jón þingheim í ræðu sinni og hélt áfram: „Þetta myndi þýða það að við værum að horfast í augu við að þurfa að greiða 36 milljarða á næsta ári, þ.e. 25 milljarða í afborganir og 11 milljarða í vexti. Síðan kæmu sex ár þar sem við værum að borga sem nemur að jafnaði byggingu eins Landspítala á ári.“ 60 til 70 milljarðar kr. árlega Vitnaði þingmaðurinn því næst í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármála- ráðuneytisins um frumvarp til laga um heimild til handa fjármálaráð- herra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs inn- stæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til inni- stæðueigenda hjá Landsbanka Ís- lands. Eru þar greiðslur sagðar geta orð- ið 69,3 milljarðar árið 2017, 66,5 milljarðar 2018, 63,8 milljarðar 2019, 61 milljarður 2020, 58,3 milljarðar 2021, 55,5 milljarðar 2022, 52,8 millj- arðar 2023 og loks 26,4 milljarðar ár- ið 2024. „Verði frumvarpið óbreytt að lögum má gera ráð fyrir […] að greiðslur úr ríkissjóði gætu orðið á bilinu 60 til 70 milljarðar kr. árlega á tímabilinu 2017 til 2023, en helming- ur þeirrar upphæðar árin 2016 og 2024,“ segir í áðurnefndri umsögn. Fyrrverandi ráðherra mótmælti Ræða Jóns virðist hafa snert nokk- uð við Steingrími J., fyrrverandi fjár- málaráðherra, því að þegar þingmað- urinn taldi upp boðaðar greiðslur Svavarssamningsins svonefnda greip Steingrímur J. fram í fyrir honum með því að kalla „fjarstæða“ úr þing- sal. Jón var fljótur til andsvars og sagði: „Hér segir fyrrverandi fjár- málaráðherra „fjarstæða“, en þetta er nú bara tekið upp úr gögnum úr hans eigin frumvarpi sem hann lagði fram á sínum tíma.“ Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Vinstri grænna, veitti ræðu Jóns andsvar og sagði m.a. Jón vera kominn í „þann hóp þingmanna sem engin rök á lengur eftir í sínu vopna- búri önnur en Icesave-grýluna“ og kallaði Jón „smámenni“ í máli sínu. Steig Jón því næst aftur í ræðustól og sagðist ekki kippa sér upp við orðaval ráðherrans fyrrverandi. „Það hentar höfðingja að tala til smá- menna með þeim hætti sem háttvirt- ur þingmaður gerði en þetta er hans vani og maður kippir sér ekki upp við það,“ sagði Jón. Nemur að jafnaði ein- um Landspítala á ári  Svavarssamningur dreginn fram í umræðu um fjárlög 2016 Morgunblaðið/Ómar Afgreitt Svavarssamningurinn kallaði á 36 milljarða greiðslu á næsta ári. Jón Gunnarsson Steingrímur J. Sigfússon Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í Barnaskólanum á Borðeyri þriðjudaginn 15. desem- ber kl. 20.30 og í Félagsheimilinu Hvammstanga miðvikudaginn 16. desember kl. 20.30 Stjórnandi kórs- ins er Daníel Geir Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirs- dóttir. Einsöngvarar eru Friðrik Már Sigurðsson og Guðmundur Þor- bergsson. Kynnir er Daníel Geir Sigurðsson. Hugvekju flytur Guð- rún Ósk Steinbjörnsdóttir. Á söng- skránni eru jóla- og aðventulög, ís- lensk og erlend. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum. Á tónleikunum á Hvammstanga munu einnig syngja nemendur 3. og 4. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra við undirleik Aðalsteins Grétars Guðmundssonar. Heitt súkkulaði og smákökur verða í boði að loknum tónleikum. Tónleikarnir eru í boði Lands- bankans á Hvammstanga og styrkt- ir af Uppbyggingarsjóði Norður- lands vestra. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borðeyri Tónleikar Lóuþrælanna í dag verða haldnir í barnaskólanum. Lóuþrælar syngja á Borðeyri í dag mbl.is alltaf - allstaðar Lengri tíma hefur tekið líbönsk stjórnvöld en áætlað var að ganga frá nauðsynlegum formsatriðum vegna útgáfu útgönguvegabréfa fyr- ir flóttafólk frá Líbanon, að því kem- ur fram í tilkynningu frá velferðar- ráðuneytinu. Ráðuneytið gerir nú ráð fyrir að fólkið komi til Íslands seinni part janúarmánaðar. Í gær hófst námskeið í Líbanon á vegum alþjóða fólksflutningastofn- unarinnar, IOM, fyrir flótta- mannahópinn sem tekið verður á móti hér á landi, segir jafnframt í til- kynningu ráðuneytisins. Markmið þess er að undirbúa fólkið fyrir þær breytingar sem eru framundan við komu þess til Íslands. Á námskeið- inu eru bæði veittar almennar upp- lýsingar um það hvernig líf er hafið í nýju landi en einnig er sérstaklega litið til íslenskra aðstæðna. Morgunblaðið/Golli Töf Flóttafólkið kemur í janúar. Koma flótta- fólks tefst Framleiðsla mjólkur eykst mun meira en sala. Síðustu tólf mánuði var innvegin mjólk 145 milljónir lítra sem er 9,6% aukning. Salan á fitugrunni var 122 milljónir lítra en það er 1,3% aukning. Sala á fitu- grunni var 133,5 milljónir lítra sem er 4,2% aukning. Á vef Lands- sambands kúabænda kemur fram að aukning í sölu á fituríkum afurð- um skýrist af því að í nóvember voru tilboð á smjöri og rjóma. Varð- andi próteinríku afurðirnar kemur fram að sala á skyri hafi gengið mjög vel undanfarna mánuði, með- al annars vegna áhugaverðrar vöruþróunar. Framleiðsla mjólkur eykst meira en sala Leðurjakkar Loðskinnsvesti Tryggvagötu 18 - 552 0160 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Jólakjólar Verð 14.900 Litir: fjólublátt,svart, rautt Str. 40-56 Gjöfin hennar Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 www.selena.is • Næg bílastæði Selena undirfataverslun Undirföt Náttföt Sloppar - Nýtt kortatímabil - Opið alla daga til jóla Gjafakort Laugavegi 63 • S: 551 4422 Vandaðar jólagjafir konunnar Vertu vinur á Peysuúrval - Blússuúrval Sparibolir - Loðskinnskragar Kasmírtreflar - Hanskar Gjafakort o.m.fl. Gjafainnpökkun Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.