Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 ✝ Oliver Krist-ófersson fædd- ist í Hjarðarholti í Sandgerði 26. sept- ember 1928. Hann lést á LSH 25. nóv- ember 2015. Foreldrar hans voru Kristófer Oli- versson skipstjóri og útgerðarmaður, f. 22.8. 1894, d. 21.3. 1983, og Þuríður Gísladóttir frá Sandgerði, f. 3.7. 1900, d. 21.8. 1983. Systkini Oli- vers eru Kristinn Sveinbjörn, f. 29.1. 1920, d. 4.6. 1943, Ólína Helga, f. 31.5. 1927, d. 12.11. 2004, Guðlaug, f. 28.1. 1930, og Helgi, f. 18.4. 1937, d. 29.11. 1963. Oliver kvæntist 17. júní 1953 Ingibjörgu Söru Jónsdóttur frá Hnífsdal, f. 27.10. 1931, d. 30.9. 1986. Hún var dóttir hjónanna Jóns Elíasar Ólafssonar og Stein- dóru Rebekku Steindórsdóttur frá Bæjum á Snæfjallaströnd. Börn þeirra eru 1) Steindór Kristinn Oliversson útgerðar- maður, f. 5.3. 1953, kvæntur Ingu Björgu Sigurðardóttur, f. 1953. Börn þeirra eru a) Birna, f. 1971. Börn hennar eru Sólon Kristinn, f. 1991, og Sara Re- kvæmdastjóri, f. 30.6. 1955, kvæntur Svanfríði Jónsdóttur, f. 1955. Börn þeirra eru a) Maron, f. 1975, kvæntur Unni Gyðu Magnúsdóttur, f. 1976. Börn Marons eru Kristófer Már, f. 1993, Thelma Kristín, f. 2001, El- ísa Björk, f. 2007, og Magnús Andri, f. 2009. b) Sara, f. 1979, gift David McGuinness, f. 1975. c) Anna Ólöf, f. 1984. Oliver ólst upp til sex ára ald- urs í Sandgerði en fluttist þá til föðursystur sinnar, Helgu Oli- versdóttur, og eiginmanns henn- ar, Ólafs Ásmundssonar frá Há- teigi á Akranesi. Þeim varð ekki barna auðið og ólst Oliver upp hjá þeim. Hann hóf ungur störf hjá Þórði Ásmundssyni útgerð- armanni, bróður Ólafs, og starf- aði við verslunarstörf o.fl. Þaðan lá leiðin í Verslunarskóla Íslands og útskrifaðist hann þaðan 1950. Oliver starfaði mestan sinn starfsaldur sem aðalbókari Akraneskaupstaðar en einnig starfaði hann um skeið á hafn- arvoginni á Akranesi og á Akra- borginni. Þá starfaði hann um nokkurra ára skeið á endurskoð- unarskrifstofu Ragnars Á. Magnússonar í Reykjavík. Eftir að Oliver komst á eftirlauna- aldur hóf hann störf sem nætur- vörður á Gistiheimilinu Flóka- götu 1 í Reykjavík og vann við það í tæpan áratug. Útför Olivers fer fram frá Akraneskirkju í dag, 15. desem- ber 2015, og hefst athöfnin klukkan 14. bekka Björg, f. 2003. b) Óli Valur, f. 1973, kvæntur Ragnheiði Þengils- dóttur, f. 1974. Börn Óla Vals eru Stein- dór Snær, f. 1995, Ísak, f. 1999, Oliver Snær, f. 2003, Stein- unn Eva, f. 2007, og Sunna, f. 2012. c) Tinna, f. 1983, unn- usti hennar er Valdimar Þór Guðmundsson, f. 1983. Börn Tinnu eru Anna Val- gerður, f. 2007, Arnór Dagur, f. 2010, og Guðmundur Hrafn, f. 2015. 2) Helga Ólöf Oliversdóttir sjúkraliði, f. 18.3. 1954, gift Pálma Pálmasyni, f. 1951. Börn þeirra eru a) Oliver, f. 1971, kvæntur Nönnu Guðbergsdóttur, f. 1974. Dætur Olivers eru Eva, f. 1991, Nadja, f. 2002, og Sonja, f. 2004. b) Pálmi Sveinn Pálmason, f. 1976, kvæntur Ana Maria Cha- con Pálmason, f. 1976. Synir þeirra eru Pálmi Sveinn, f. 2008, og Magnús Oliver, f. 2012. c) Matthildur Vala Pálmadóttir, f. 1980, gift Ingólfi Bjarna Sveins- syni, f. 1980. Dóttir þeirra er Helena Kristín, f. 2008. 3) Kristófer Oliversson fram- Elsku pabbi minn er farinn til Guðs. Ég samgleðst honum en sakna hans strax. Við höfum ver- ið virkir þátttakendur, hvort í annars lífi, í meira en sextíu ár. Pabbi og mamma gáfu mér og bræðrum mínum vandað og gott uppeldi. Fyrir það er ég afar þakklát. Þau voru heiðarleg og lítillát. Betra veganesti er ekki hægt að gefa börnum sínum. Pabbi fékk vandað uppeldi sjálfur og góða menntun í Versl- unarskóla Íslands. Mikið fannst mér gaman að skoða Verslunar- skólabókina hans þegar ég var lít- il. Þar höfðu samnemendur hans sett myndir af sér og skrifað ýmsa speki. Sumir skrifuðu um Bakkus, hver varð því miður förunautur pabba því hann var með sjúkdóm- inn alkóhólisma. Fjölskyldulíf okkar var oft undirlagt af þessum sjúkdóm og ég lærði snemma á hann. Ég var nefnilega pabbastelpa og stundum ef pabbi var einn að drekka, sat ég hjá honum og las Verslunarskóla- bókina. Ég erfði sjúkdóminn hans. Komin hátt á fertugsaldur fór ég að fikta við áfengi og missti fljótt tökin. Innst inni þekkti ég ein- kennin því ég hafði alist upp með þeim. Pabbi var óendanlega góð og ljúf manneskja og ég bar gæfu til að greina á milli, hver var hann og hver var Bakkus. Mamma var ung þegar hún fór til Guðs. Við vorum lömuð af sorg og grétum saman fyrstu jólin sem pabbi var einn. Síðan eru 29 ár. Mamma hafði verið kletturinn í lífi hans og stýrt heimilinu af alúð og ábyrgð. Mamma var húsmæðrraskóla- gengin eins og sagt var í gamla daga. Það þótti góð menntun fyrir ungar stúlkur. Hún var svo vel- virk. Pabbi hafði alltaf getað treyst á hana. Hann drekkti sorgum sínum í nokkur ár og missti tökin á tilver- unni. En kraftaverkin gerast og hann náði að snúa við blaðinu með hjálp SÁÁ. Hann eignaðist inni- haldsríkt líf síðustu 20 árin og ein- beitti sér að afahlutverkinu og öðl- aðist ást og virðingu barnahópsins síns. Hann varð mín fyrirmynd sem AA maður og við vorum nánir vin- ir til æviloka hans. Ég trúi því að foreldrar mínir séu í ljósinu fagra hjá Guði og njóti jólanna saman. Helga Ólöf Oliversdóttir. Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Að lifa einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig, … (Reinhold Niebuhr) Það má segja að þegar Oliver kúventi sínu lífi samfara röð tilvilj- ana, þá hafi þessi hluti æðruleys- isbænarinnar orðið honum vegvísir það sem eftir var ævi. Oliver var miklum hæfileikum gæddur sem sneri að stærðfræði, með mikið og gott talnaminni sem nýttist afar vel sem aðalbókari Akranesbæjar um áratugaskeið. Þá ekki síður sem bridge-spilari allt til hinsta dags þar sem Oliver var jafnan vikulega með verðlaunasæti þar sem hann spilaði á þrem stöðum vikulega á höfuðborgarsvæðinu við góðan orðstír. Framan af langri ævi var Bakkus meðreiðarsveinn. Er það dapur allt of stór kafli þar sem allt það vænsta fór forgörðum, hin glæsilega eiginkona, veraldlegar eignir og tiltrú barnanna sem og annarra. Öllu þessu tvístraði Bakk- us og eirði engu fyrr en auðnin sjálf var framundan. Það var þá sem ekki varð lengra haldið og það góða í manninum náði yfirhöndinni og yfirbugaði óvættinn í sálinni. Skyndilega eignuðust barnabörnin sinn afa sem var ávallt til í að gera greiða þegar á þurfti að halda. Oli- ver var ferðaglaður og sjálfstæður þótt einmanakenndin gerði oft vart við sig í daglega lífinu þar sem hann var oftast einn á ferð eða í íbúðinni á Dalbraut. Hans besti vinur var Gulla systir hans sem vakti yfir velferð Olivers svo eftir vara tekið af mikilli einlægni. Sjálf- ur kynntist ég Oliver fyrst þegar við dóttir hans gengum í hjónaband og þakka ég þau kynni sem alltaf héldust þrátt fyrir margháttaðar breytingar, þá ekki síst að þakka fyrir þann góða afa og langafa sem hann að lokum gaf af sér til fjöl- skyldunnar og mun lifa í minning- unni. Pálmi Pálmason. Elsku afi Olli. Nú ertu farinn frá okkur og þegar ég hugsa til baka er svo margs að minnast og margt til að vera þakklát fyrir. Þó að ég hefði eytt barnsárun- um í Svíþjóð þá koma upp yndis- legar minningar um þig úr sumar- fríunum á Íslandi þegar þú varst að basla við að kenna mér stærð- fræði fjögurra ára gamalli svo að ég væri með smá forskot þegar ég byrjaði í skóla. Rúntarnir á bögglaberanum á svarta hjólinu með þér og rabarbarauppskeran við Háteiginn svo amma Inga gæti gert rabarbarasultuna sína góðu, allt eru þetta ljúfar minningar sem ég hef hugsað mikið til undanfarið. Fyrir rúmum 20 árum fluttirðu frá Akranesi til Reykjavíkur og málin æxluðust þannig að þú varðst næturvörður á gistiheim- ilinu á Flókagötu 1 og það átti heldur betur eftir að hafa áhrif á æviskeið okkar allra. Um ári eftir að þú byrjaðir á Flókagötunni lét Kristín þig vita að hún væri komin á þann aldur að hún vildi hætta í rekstrinum og úr varð að mamma og pabbi tóku við þeim rekstri af henni og þar upphófst fjölskyldu- ævintýrið okkar. Þú varst án efa skemmtilegasti maðurinn sem hefur tekið við vakt af mér á nokkrum vinnustað og aldrei hef ég hangið tímunum saman með vinnufélaga á vakt eft- ir vaktaskipti. Það var nú bara nokkuð reglulegt hjá okkur að fá okkur einn sjálfstæðan Íslending saman í kvöldmat og sitja svo bara og spjalla þangað til allir gestir voru mættir í hús. Þarna á ég svo endalaust margar góðar minning- ar um þig að það fyllir í heila bók. Þú varst mikill fjölskyldumaður og fannst gaman að segja sögur af fjölskyldunni og hélst allri stór- fjölskyldunni alveg ótrúlega vel upplýstri um stöðuna hjá öllum al- veg fram á síðasta dag. Þú varst alveg einstaklega hjartahlýr og svo duglegur að hugsa um þína. Ég man alltaf eftir því þegar Olli og Pálmi voru í Þýskalandi, þá var það regluleg venja að þú mættir með kort og dagblaðabúnt og jafn- vel íslenskt súkkulaði inn í gler- skála og svo föndruðum við það saman í pakka og skrifuðum á kortið svo þú gætir sent þeim smá glaðning frá Íslandi. Ég er alveg viss um að þeim hafi þótt jafn óendanlega vænt um það og mér þótti að fá glaðningana og kortin frá þér þegar ég var flutt til Ír- lands. Það voru alltaf bestu send- ingarnar. Bestu minningarnar tengjast nú samt sem áður flottasta bíl í heimi, E-10. Þú hafðir alveg ein- stakt lag á að finna það á þér ef einhverju okkar leið eitthvað illa og varst fljótt mættur á E-10 í smá afarúnt þar sem keypt var pulsa og kók, alltaf bara ein kók í gleri og svo sagðir þú alltaf „þú drekk- ur fyrri helminginn og ég seinni“. Svona varstu ljúfur og deildir allt- af svo fallega með okkur. Það fór bara eftir tímanum hvert rúntað var, Grindavík, Garður og Sand- gerði var vinsæll rúntur hjá okkur og mikið spjallað um gamla tíma í leiðinni. Takk, afi, fyrir samveruna og að hafa kennt mér verðmætustu lexíu í heiminum. Það skiptir engu máli hversu slæm staðan er, ef þú vaknar á morgnana og heldur áfram að vinna í öllum þínum mál- um þá endarðu sem sigurvegari. Hvíl í friði, elsku vinur og afi. Ástarkveðja, þín Sara. Það er komið að því, elsku afi Olli. Þriðjudaginn 15. desember verður nafnið þitt líkast til ritað eitt hinsta sinni á síður Morgun- blaðsins. Þú varst alltaf duglegur að benda okkur, sposkur á svip, á nafnið þitt í Mogganum, sem oftar en ekki skipaði efsta sætið í brids eða „spilamennskunni“ eins og þú kallaðir það. Þú varst alltaf svo hress, kátur og sagðir gamansögur milli kon- fektmola í fjölskylduboðum. Ég man þegar ég sat á spítalan- um daginn sem þú veiktist, hinn 16. nóvember síðastliðinn, og hlustaði á starfsfólkið ræða sín á milli. Aldur þinn bar á góma og ég hugsaði með mér: „Já, afi er orð- inn 87 ára gamall.“ Það er skrítið hvað aldur getur verið afstæður, ekki síst þegar maður er eins ung- ur í anda og þú, afi Olli. Ég fann hvernig öryggið sem ég bar með mér inn á Landspít- alann í Fossvogi um að þú myndir mæta þessum skyndilegu veikind- um með hnefanum og hafa ótví- ræðan sigur minnkaði og raun- veruleikinn og hræðslan við að þurfa að kveðja þig tók völdin. Eitt var þó rétt og næsta víst þegar þú áttir í hlut. Þú mættir veikindunum galvaskur og barðist hetjulega gegn ofjörlum þínum til þess að koma aftur til okkar. Lífs- löngunin leyndi sér ekki og bar- áttan fordæmi sem er okkur öllum til eftirbreytni í framtíðinni. Kveðjustundin þín, afi, endur- speglaði svo sannarlega þann sterka mann og karakter sem þú hafðir að geyma. Þú barðist fyrir því sem mestu skipti og nýttir þinn tíma vel. Í veikindunum gerðir þú akk- úrat nóg. Þú komst í gegnum miklar ógöngur sem flestir sögðu ómögulegt. En þú hélst áfram og með þinni eljusemi veittir þú okk- ur, sem eftir sitjum, ómetanlegan tíma með þér. Sá tími er haldreip- ið í dag og fleytir okkur áfram í sorginni. Fyrir það verð ég æv- inlega þakklát. Söknuðurinn er sár, en minn- ingarnar eru lifandi ljós í hjartanu og varðveitast þar um ókomna tíð. Takk, elsku afi, fyrir allt sem þú varst. Guð geymi þig og varðveiti um alla tíð og tíma. Það eru for- réttindi að hafa þig vakandi yfir sér og fjölskyldunni sinni. Góða ferð áfram. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. Dásöm það er, dýrð handa mér, dýrð handa mér, dýrð handa mér, er ég skal fá Jesú auglit að sjá, það verður dýrð, verður dýrð handa mér. Og þegar hann, er mig elskar svo heitt, indælan stað mér á himni’ hefur veitt, svo að hans ásjónu’ ég augum fæ leitt – það verður dásamleg dýrð handa mér. Ástvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér, blessaði frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson) Matthildur Vala Pálmadóttir. Oliver Kristófersson SKÚLI GUÐJÓNSSON, Dælengi 1, Selfossi, lést mánudaginn 30. nóvember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 16. desember klukkan 14. . Magnús Skúlason, Sigríður Sigurjónsdóttir, Kolbrún Skúladóttir, Sigurbergur Brynjólfsson, Aðalbjörg Skúladóttir, Bárður Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, ÞÓRIR JÓHANN AXELSSON, Vættaborgum 1, 112 Reykjavík, lést miðvikudaginn 9. desember á Landspítalanum í Reykjavík. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 17. desember klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samhjálp. Fyrir hönd aðstandenda, . Guðbjörg Þórisdóttir, Ingólfur Guðjónsson, O. Ragnheiður Þórisdóttir, Aleksandar Knezevic, Þórdís Rún Þórisdóttir, Axel Þórir Þórisson, Vera Dögg Antonsdóttir, barnabörn og Arnar Axelsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALTÝR GUÐMUNDSSON, frá Króki, Ásahreppi, til heimilis að Strýtuseli 12, Reykjavík, lést á Landakoti sunnudaginn 29. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Sigmunda Hákonardóttir, Guðrún Valtýsdóttir, Þórir Karl Jónasson, Anna María Valtýsdóttir, Jón Bjarni Hermannsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Ágústa Rósa Finnlaugsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis að Gullsmára 7, Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 10. desember. Jarðsett verður frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 30. desember klukkan 13. . Ómar Örn Þorbjörnsson, Sigríður Sturlaugsdóttir, Hrefna Þorbjarnardóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Tómas Filippusson, Valborg Bjarnadóttir, Karl Óskarsson, Ísleifur Þorbjörnsson, Hafdís Sigurðardóttir, Sigurður Þorbjörnsson, Björg Lárusdóttir, Hallbjörn Þorbjörnsson, Sigríður Einarsdóttir, Þráinn Þorbjörnsson, Kristjana Óladóttir, Heiðdís Þorbjarnardóttir, Kristjana Þorbjörnsdóttir, Kristján Ásmundsson, Heiðrún Þorbjörnsdóttir, Þröstur Þorbjörnsson, Ingunn Hauksdóttir, Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ERLINGUR BJARTMAR INGVARSSON skógarbóndi, Hamri, Húnavatnshreppi, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 3. desember. Útförin fór fram í kyrrþey frá Svínavatnskirkju laugardaginn 12. desember. . Bjartmar Freyr Erlingsson, Nanna María Elfarsdóttir, Atli Örlygsson, María Ingibjörg Kristinsdóttir, Íris Kristinsdóttir, Grettir Adolf Haraldsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.