Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 ✝ Jónína Mar-teinsdóttir fæddist 11. apríl 1974. Hún lést 13. nóvember 2015. Foreldrar henn- ar eru Marteinn Jónsson og Ólöf Þóra Steinólfs- dóttir. Jónína átti þrjá hálfbræður, samfeðra var Jón Björn, látinn, en sammæðra eru þeir Stefán Sölvi og Úlfur Orri. Synir Jónínu eru Daði Mánason, f. 1. ágúst 1992, og Gabríel Sigurðar- son, f. 16. október 1998. Útför Jónínu fer fram frá Laugar- neskirkju í dag, 15. desember 2015, og hefst athöfnin klukkan 11. Elskuleg dóttir mín Nína, eins og hún var alltaf kölluð, lést á Vogi 13. nóvember sl. Hún átti þrjá hálfbræður, samfeðra var Jón Björn, sem lést eftir erfiða bar- áttu við krabbamein 2012, og sam- mæðra eru Stefán Sölvi og Úlfur Orri. Það var Nínu og okkur öllum erfitt að missa Jón Björn og sam- band þeirra var ágætt og þau voru góðir vinir. Strákarnir hennar sakna nú sárt mömmu sem var þeim góð, þrátt fyrir að lífið hafi ekki alltaf verið einfalt og auðvelt hjá henni. Samband okkar Nínu var ekki mikið seinni árin en þeg- ar Jón Björn kvæntist og í kring- um veikindi hans áttum við ágæt- ar stundir sem ekki gleymast. Hvíldu í friði, elsku Nína mín. Þegar raunir þjaka mig, þróttur andans dvínar, þegar ég á aðeins þig, einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni, láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum.) Þinn pabbi, Marteinn Jónsson. Nína var ársgömul þegar ég sá hana fyrst, þá var ég á Reykja- lundi með móður hennar og hún kom þangað í heimsókn. Nína var fallegt barn og ég heimsótti þær mæðgur í Fagradal, þar sem Nína var alin upp. Seinna kynntist ég pabba hennar og við giftum okkur og eignuðumst Jón Björn, en þau Nína voru góðir vinir og hann vildi allt fyrir hana gera til að betur gengi hjá henni og strákunum hennar, sem honum þótti mjög vænt um. Nína kom stundum í heimsókn til okkar Matta þegar við bjuggum saman og um stund vorum við með Daða son hennar hjá okkur í Kópavoginum. Þó að við Matti skildum héldum við Nína sambandi og þegar allt lék í lyndi var gaman að spjalla við hana um strákana hennar, þá Daða og Gabríel, og þá var hún kát og lífsglöð. Hún hafði smitandi hlátur og mér þótti gott að spjalla við hana um tímann þegar Jón Björn bróðir hennar var á lífi. Nína átti erfitt með að fara beinu brautina í lífinu og baráttan var oft hörð og óvægin. Þakka þér, Nína mín, fyrir stundirnar sem við áttum saman og nú hafið þið systkinin sameinast í sumarland- inu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Aðstandendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Guðbjörg Halla Björnsdóttir. Allsnakinn kemurðu í heiminn allsnakinn ferðu burt frá þessum dauðu hlutum sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt og eftir lífsins vegi fer það sem hann fer og veistu á miðjum degi dauðinn tekur mál af þér ofmetnastu ekki af lífsins móður mjólk kirkjugarðar heimsins geyma ómissandi fólk (KK) Þessi texti kemur alltaf upp í hugann þegar eitt lauf fölnar af vina- og ættartrénu. Ekki óraði mig fyrir því, að fyrir rétt rúmu ári síðan yrðu okkar síðustu sam- verustundir er þú komst austur til okkar, Nína litla frænka mín. Þú vars dugleg að heimsækja okkur gegnum árin. Það er margs að minnast heima úr sveitinni, þú varst mikill dýravinur og undir þér vel úti í náttúrunni hjá ömmu og afa. Leið þín lá til borgarinnar, þar fetaðir þú þinn veg. Alltaf var gott að koma á þitt heimili, hlýja, velvild og kátur hlátur. Með þessum fáu orðum vil ég þakka þér samfylgdina, kæra frænka mín, og minning þín lifir með mér. Ég bið allt gott í þessum heimi að styrkja drengina þína í sorginni, þá Daða og Gabríel. Sesselja (Sessa) frænka. Nína, systir mín af eldi reynslu og innsýnar, er fallin frá og hefð- um við þó átt að þekkjast mun lengur. En auðna ræður hvaða verkefni okkur falla í skaut og einnig hvenær þeim lýkur. Nínu kynntist ég fyrir rétt um fimmtán árum, við urðum nánar vinkonur er við samhæfðum styrk okkar og vonir í löngum og oft skemmtileg- um samtölum þar sem mikið var hlegið. Nína hafði hlýja og kraft- mikla nærveru, var skörp og snögg og tjáði sig skýrt. Hún var heillandi félagi, hláturmild og hnyttin, hafði til að bera mikinn styrk og réttlætiskennd. Mér þótti vænt um Nínu frá fyrsta degi og vildi reynast henni góður vinur, þannig kom hún að mér – það gera ekki allir. Síðar skildi leiðir okkar, en auðnan fól henni verkefni sem voru ólík mínum og þá fórum við um ólíka stigu. Stundum er eins og hending ein valdi örlögum manna, lítill blæ- brigðamunur eða fáeinar gráður geta leitt langt af stefnu þegar upp er staðið. Það getur verið erf- itt að skilja hvaða öfl ráða vali manneskjunnar á vegum lífsins, eða hvort það er í reynd hún sjálf sem velur. Nína hafði nýlega samband við mig aftur og vildi taka upp þráð- inn þar sem frá var horfið. Var það auðsótt mál af minni hálfu og þótti mér mjög vænt um að heyra í henni. Auðvitað hafði ég oft hugsað til hennar og hún til mín, því tímalaus er vinátta þeirra sem verða systur af eldi reynslunnar. Ég hlakkaði til að vefa aftur þá þræði með Nínu sem leiddu okkur saman í upphafi, við myndum reyna að feta aftur saman þann mjóa veg sem vekur hvað dýpst þakklæti og mesta gæfu. En auðna ræður og enginn skilur hana. Strákunum hennar tveim votta ég mína innilegustu samúð, það er erfitt að setja sig í þeirra spor og reyna að skilja hvað þeir eru að upplifa. Ég á lítið til nema hlýleg orð í þeirra garð og hryggð yfir örlögum Nínu. Öðrum ná- komnum votta ég hluttekningu mína. Mig langar til að skilja eftir vísu til þín Nína mín, sem hann Sveinbjörn heitinn Beinteinsson skrifaði eitt sinn til mín, það er eins og mig langi mest að minnast þín með henni: Líkt og einstök undrasýn orðið skín hvað glaðast þegar milli mín og þín mál og hugsun raðast. Minning þín lifir, Nína, og þú í henni. Hallgerður Hauksdóttir. Við vorum stútfullar af lífi og gleði. Sum hlátursköstin ætluðu aldrei að taka enda og fátt skemmti okkur betur en vand- ræðalegar uppákomur fólks. Við urðum báðar þeirrar gæfu aðnjót- andi að alast upp í dalnum fagra hjá ömmum okkar og öfum. Með frelsið, víðáttuna og vindinn í hárinu. Það eru ekki margir af okkar kynslóð sem fengu að kynn- ast þeim gömlu gersemum sem við ólumst upp við. Mjólkur- brúsanum úti í læk, sveita- símanum, olíueldavélinni og súrheysturninum. Það var endalaust hægt að elta fiðrildin, hlaupa undan gæsunum, fara í feluleik, leika í gilinu og krúsin var heill ævintýraheimur þar sem m.a. dýrindis kökur voru framleiddar skreyttar fíflum og sóleyjum. Ölvir bróðir var oft með í för og urðum við aldrei uppi- skroppa með viðfangsefni. Við áttum leyniskúta uppi í fjalli. Hann skreyttum við með fallegum steinum og spýtum. Þar sungum við mikið og vorum vissar um að fólkið í bílunum sem keyrði framhjá héldi að við værum huldufólk. Þú sagðir mér að einn daginn hefði Skafti farið þarna upp og furðað sig á þessari steina- söfnun, þarna hefði hrafninn örugglega verið að verki. Þú varst grallari af Guðs náð og náðir mér með einu blikki á þitt band. Eitt sinn langaði okkur að gista saman en fengum ekki leyfi. Þá datt þér í hug að fela mig aftur í jeppanum hans afa þíns og koma mér þannig heim til þín. Áætlunin heppnaðist en ekki fékk ég að gista þá nótt. Eins þótti okkur gaman að fela fjársjóði. Þetta þurftu auðvitað að vera alvöru fjársjóðir. Það er ekki langt síðan amma spurði mig hvort ég gæti munað hvar við földum hringinn hans afa. Einhver önnur misheppnuð prakkarastrik gerðum við líka. Við bjuggum í blokk úti á Granda eftir að hafa flutt suður. Mamma þín kynntist Pétri, hann átti styttu sem hann stillti upp í stofunni. Þetta var hræðileg stytta að okk- ar mati. Við skiptum henni út fyrir aðra. Hann skipti henni aftur og svona gekk þetta þar til hann límdi styttuna sína fasta í hilluna. Okkur datt líka í hug að krafsa á veggina á klósettinu í sameigninni í minni blokk, þá viku var mamma með sameignina, það lenti því á mér að þrífa þetta allt af. Bernskubrekin hurfu og við tók alvara lífsins. Svo komu ljósin í lífi þínu, fyrst yndislegi Daði sem mamma fékk að passa og það var svo gaman. Svo engillinn Gabríel. Allar þessar minningar er ég svo þakklát fyrir og svo margar fleiri. Sólbaðið kalda, Gay pride, bréfin okkar sem skiptu tugum, kassetturnar þegar bréfin dugðu ekki til. Síðustu skilaboðin okkar sem voru svo falleg og ég mun alltaf geyma. Þú varst mikil tilfinningavera og ávallt einlæg. Hlóst mest og best og sjaldan hittumst við á seinni árum án þess að gráta að- eins saman líka. Þú elskaðir drengina þína og fólkið þitt mest, fjöllin, dalinn og lömbin. Þú kenndir mér svo margt um lífið. Umburðarlyndi og virðingu fyrir litlu blómunum sem berjast fyrir tilveru sinni á stóra túninu. Um þig á ég mikið af góðum og fal- legum minningum um sterka vin- áttu, ást og kærleika. Ég elska þig alltaf. Elsku Daði og Gabríel, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Barbara Ösp Ómarsdóttir. Það eru orðin nokkur ár síðan ég hitti Nínu síðast, ég heyrði stundum af henni fréttir en þær voru sjaldnast góðar. Hún var sambland af stórborgarkonu og bóndakonu vestan úr Dölum þar sem hún var uppalin að hluta hjá afa sínum og ömmu. Oft sagði hún mér sögur af Steinólfi afa sínum sem var klettur í hennar lífi. Að hans sögn var Dalafólk svo kraft- mikið að ef það fékk lýs þá stækk- uðu þær svo mikið af blóði þess að þær gátu horft aftur fyrir sig. Þeg- ar hann kom í bæjarferð átti hann til að birtast allt í einu í heimsókn án þess að hafa gert boð á undan sér, sagði hún mér einu sinni, og svo gat hann staðið upp og farið jafn skyndilega og hann kom. Þannig var hún sjálf. Það var gam- an að tala við hana og hún hafði mikinn húmor. Hún átti lengi risastóran frosk. Hann var af tegund stærstu frosk- dýra í heimi skildist mér. Hann hreyfði sig næstum aldrei og aldr- ei heyrðist neitt í honum nema á tveggja vikna fresti eða svo þegar hann át. Þá heyrðist eins og eitt rophljóð. Hann gat auðvitað ekki heitið neitt annað en Kátur. Strákarnir hennar, Daði og Gabríel, voru henni allt og hún tal- aði mikið um þá. Hugur minn er hjá þeim í dag. Eitt sinn man ég að hún steig næstum út úr bíl á ferð þegar hún hélt að Daði, eldri strákurinn hennar, væri að fara sér að voða í umferðinni, rétt eftir að við höfðum hleypt honum út. Leiðir okkar lágu saman víða og meðal annars unnum við sam- an um nokkurra mánaða skeið á heimili fyrir einhverfa unglinga á Tjaldanesi og þar sá ég mannkosti hennar vel en hún lét sér verulega annt um vistmennina. Mörgu fólki hjálpaði hún með hluttekningu sinni og sterkri réttlætiskennd og þar á meðal mér oftar en einu sinni. Hún vann mikið í sjálfri sér og þau ár sem hún átti edrú sáu allir sterku og góðu hliðarnar á henni sem voru svo margar. Og þótt hún næði ekki alltaf að vera sú manneskja sem hún innst inni var og vildi vera, þá mun ég alltaf muna hana þannig. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. Jónína Marteinsdóttir ✝ Þóra Viktors-dóttir versl- unarmaður fæddist á Akranesi 30. apríl 1929. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 5. desember 2015. Foreldrar hennar voru Friðmey Jóns- dóttir húsmóðir, f. 14. september 1904, d. 15. maí 1986, og Viktor Björnsson verksmiðjustóri, f. 4. nóvember 1901, d. 4. október 1997. Systkini Þóru eru Jóna Ágústa, f. 6.6. 1924, gift Ólafi Elí- assyni, f. 27.11. 1925, d. 23.4. 1913, Björn, f. 25.6. 1925, d. 11.8. 1990, kvæntur Sigríði Pétursdóttur, f. 26.10. 1928, Alfreð, f. 10.9. 1932, kvæntur Erlu Karlsdóttur, f. 10.10. 1932, Lilja, f. 23.5. 1936, d. 11.4. 1997, gift Guðmundi Ein- arssyni, f. 22.8. 1922, d. 24.4. 1907. Inga, f. 10.1. 2013. Úlfar Þór, f. 29.3. 1987, í sambúð með Örnu Dögg Gunnlaugsdóttur, f. 24.12. 1988. Þau eiga saman tvær dæt- ur; Angelu Dögg, f. 5.10. 2013, og Aþenu Ingu, f. 8.9. 2015. Fyrir átti Úlfar Þór soninn Björn Óm- ar, f. 15.10. 2006. 2) Þóra, f. 22.6. 1960, gift Ásgeiri Magnússyni, f. 20.12. 1957. Þau eiga þrjú börn; Magnús, f. 22.12. 1985, Þóru Björgu, f. 30.6. 1988, og Erlu, f. 27.1. 1994. Þóra og Úlfar giftu sig 24. mars 1951. Mestan hluta ævinnar rak Þóra heildverslunina Sat- úrnus með eiginmanni sínum. Satúrnus var heildsala með hannyrðavörur og prjónagarn. Síðustu árin vann Þóra í mötu- neyti hjá Lögreglustjóraembætt- inu við Hverfisgötu. Þau hjónin voru mikið í hestamennsku og síðan skiptu þau yfir í skíðin. Með skíðunum seinni árin fóru þau einnig að spila golf. Útför Þóru fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 15. desember 2015, klukkan 13. Eiginmaður Þóru var Úlfar Einar Kristmundsson kennari, f. 30.8. 1929, d. 11.10. 1901. Foreldar Halldóra Nikólína Björns- dóttir, f. 10.12. 1905, d. 22.1. 1951, og Kristmundur Guð- mundsson, f. 18.2. 1903, d. 5.1. 1961. Úlfar á einn bróður, Björn Kristmundsson, f. 8.12. 1937, kvæntur Sigríði Kjart- ansdóttur, f. 21.3. 1939. Þóra og Úlfar eignuðust tvö börn: 1) Halldór, f. 13.4. 1952, kvæntur Ingu Jóhönnu Birgis- dóttur, f. 17.6. 1957, d. 1.6. 1911. Þau eiga tvö börn; Ásdísi, f. 5.11. 1979, í sambúð með Guðmundi Finnbogasyni, f. 4.5. 1978. Þau eiga saman tvö börn; Viktor Matta, f. 5.4. 2006, og Jóhann Kæra Þóra mín. Mín fyrstu kynni af þér voru þegar ég kom til ykkar hjóna og við Þóra vorum ákveðin í því að flytja norður og trúlofa okkur. Og hvað sagði Úlfar þegar hann áttaði sig á að dóttir hans væri að fara til Akureyrar um stund með dreng sem hann þekkti lítið sem ekkert? Hann sagði við mig: „Dóttur minni þykir greinilega vænt um þig, það sé ég, en farðu vel með hana, ann- ars er mér að mæta.“ Hann var pabbi sem passaði sitt og við hlið hans var kona sem var hreint ómetanleg. Hún tengdamóðir mín var ekki margmál en hún var traust, svakalega traust og góð við okk- ur og barnabörnin sín og pass- aði upp á þau með natni og nær- gætni. Ég gleymi aldrei tímanum sem við áttum saman og hennar hljóðu ráðum og dáðum og hvern- ig hún fór fram með hæglæti og hógværð og skapaði virðingu og gleði þegar það átti við. Einnig eru skemmtilegar minningar með ykkur hjónum í sumar- bústaðnum við Apavatn þar sem börnin voru frjáls úti og við spil með þér og Úlfari. Hvernig verður lífið án þín, ekkert samtal um tilveruna eða þjóðmálin hvað þá augna- ráðið sem sagði það sem segja þurfti. Nú er hvíldin þín, mín kæra. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Fátækleg orð skrifuð til þín, kæra tengdamóðir, far í friði. Ég og fjölskyldan kveðjum þig með söknuði, virðingu og ást. Ásgeir, Þóra, Magnús, Þóra Björg og Erla. Fallin er frá hún Þóra. Þóra Viktorsdóttir, eða Stóra-Þóra, eins og ég kallaði hana sem barn til aðgreiningar frá dóttur hennar, Litlu-Þóru, var konan hans Úlfars föðurbróður míns og mágkona hans pabba. Hún var reyndar miklu meira en það! Við tímamót sem þessi koma minningarnar á fleygiferð, minningarnar um það sem einu sinni var. Ég er Þóru svo þakklát fyrir margt, veit varla hvar bera skal niður fæti í upptalningunni. Þeg- ar hún giftist honum Úlfari föð- urbróður mínum rétt tvítug að aldri tók hún við heimilinu á Víði- melnum en þar fylgdu með sorg- mæddir feðgar, tengdafaðir og ungur mágur. Tengdamóðirin hafði fallið frá skömmu áður, langt fyrir aldur fram. Öllum þótti sjálfsagt að Þóra tæki að sér heimilið og engar sérstakar þakkir fékk hún fyrir. Aldrei tal- aði hún um að þetta hafi verið erf- itt en pabbi segir að þeir feðgar hafi ekki verið henni auðveldir. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort þetta hafi ekki reynt á ungu hjón- in, sérstaklega Þóru, í upphafi síns búskapar. Á þessum tíma voru tilfinningarnar ekki til um- ræðu, og Þóra bar sínar heldur aldrei á torg. Síðar áttu Þóra og pabbi eftir að vinna saman í mörg ár í heild- versluninni Satúrnus sem Þóra rak um árabil. Þar fékk ég líka vinnu innan um garn og stramma og ýmislegt fleira. Þegar ég var barn var heimili Þóru og Úlfars að mörgu leyti mitt annað heim- ili, fyrst á Víðimelnum og síðar í Huldulandinu. Við frænkurnar, Litla-Þóra og ég, vorum nánast jafnöldrur og tengslin mikil. Þeg- ar Þóra eldri fór vegna vinnu sinnar til Danmerkur þá keypti hún t.d. alltaf föt og gjafir handa mér eins og Þóru dóttur sinni. Það er þeim hjónum að þakka að ég hóf að stunda skíðaíþrótt- ina af miklum móð. Úlfar og Þór- urnar tvær fóru í Kerlingarfjöll og lærðu að skíða og urðu alveg forfallnir skíðaunnendur. Næst var mér boðið með og síðan ótal sinnum eftir það, jafnvel alla leið til Geilo í Noregi til að skíða. Það var gott að eiga öruggt bílfar upp í Bláfjöll á þessum árum þegar við frænkurnar æfðum skíðin af kappi, Þóra og Úlfar létu sig ekki vanta í fjöllin. Löngu síðar tóku þau hjónin upp á því að spila golf af sama áhuga og þau stunduðu skíðaíþróttina. Þá stunduðu þau hjónin einnig hestamennsku í mörg ár áður en skíðin og síðar golfið tóku við. Jóhanna langamma var mikil hestakona og Þóra og Úlfar vildu fylgjast með gömlu konunni svo hún færi sér ekki að voða og tóku því þátt í áhugamáli hennar. Alltaf jafn samhent og tilbúin að hafa gaman saman. Þóra var mjög skemmtileg kona með frábæran húmor, mikill fagurkeri og lífskúnstner. Þau hjónin voru sem fyrr segir afar samhent. Það var því Þóru þung- bært þegar Úlfar féll frá allt of snemma. Við fráfall hans missti hún kraftinn sem hafði einkennt hana alla tíð. Nú hafa þau sam- einast á ný. Ég þakka Þóru fyrir samfylgdina, allan stuðninginn í gegnum árin og fyrir það sem hún var föður mínum, Birni Kristmundssyni, unga mági sín- um. Elsku Þóra, Halldór og fjöl- skyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð en minning um skemmtilega og góða konu lifir. Halldóra Björnsdóttir. Þóra Viktorsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.