Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Golli Pökkun Hér er bundinn hnútur á óróann, Skyrgám hennar Steinunnar. Ás vinnustofa er verndaður vinnu- staður fyrir fatlaða sem hóf starf- semi sína árið 1981. Á vinnustof- unni er lögð áhersla á að skapa fólki með skerta starfsgetu vinnu- aðstöðu sem sniðin er að þörfum og getu hvers og eins. Áhersla er lögð á að efla sjálfsöryggi einstaklings- ins og starfshæfni með það að markmiði að starfa á almennum vinnumarkaði. Á vinnustofunni er starfrækt saumastofa, en þar eru framleiddar ýmsar gerðir heimilisklúta, ásamt hárklæðum, handklæðum, bleium og gömlu góðu diskaþurrkunum. Saumastofan er m.a. í samstarfi við hönnuðinn Jónsdóttir og co, og saumar fyrir hana sængurverasett og margskonar koddaver sem og poka utan um ungbarnasamfellur með myndum af Stubbi. Á vinnustofunni eru einnig unnin margskonar pökkunarverkefni og plöstun fyrir fyrirtæki, til dæmis fjölmörg verkefni fyrir fyrirtækið Umslag. Einnig tekur starfsfólk vinnustofunnar að sér að merkja vörur, og helsta verkefnið á því sviði felst í að líma miða um hættu tóbaks á neftóbaksdósir og tóbaks- horn. Starfsmönnum í Ási eru greidd laun samkvæmt samningum við Eflingu stéttarfélag að und- angengnu starfsmati og með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. Vinnustofan Ás starfar allan árs- ins hring og á hverjum degi koma 27 til 30 manns til að starfa, alls- staðar að af höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn eru 21 til 65 ára og eru þeir í mismikilli vinnu, sumir eru í 30 prósenta starfi en enginn í meira en 80 prósenta starfi. Vinnutíminn er frá kl. 08.30 til 16.30. Yfir vetrarmánuðina gefst starfsfólki kostur á að fara í heim- sóknir á aðra vinnustaði. Vefsíðan www.styrktarfelag.is Morgunblaðið/Golli Saumakona Á saumastofunni, hér saumar Hildur Davíðsdóttir bleiur. Fjölmörg verkefni á vinnustofunni 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 Morgunblaðið/Golli Vandaverk Hildur Hauksdóttir fer varlega og passar að brjóta ekki kúlurnar og engin fingraför mega vera á þeim. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ að var heldur betur að- ventustemning þegar blaðamaður kíkti í heim- sókn á vinnustofuna Ás í Kópavogi, þar var allt á fullu við árleg jólastörf sem felast í því að pakka kærleikskúlunni og jólaóróanum sem Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra lætur hanna í nýrri mynd á hverju ári og selur til styrktar því mikilvæga starfi sem fram fer í Reykjadal og á Æfinga- stöðinni. Þetta er íslensk hönnun og myndlist, safngripir sem vekja áhuga fólks á öllum aldri. „Hér er sannarlega beðið eftir þessu skemmtilega verkefni sem hringir inn jólin hjá okkur. Við byrjuðum fyrir tveimur vikum að pakka, en kúlan kom óvenjuseint til okkar þetta árið svo við reynum að vinna þetta eins hratt og við getum. Þetta eru 3.500 kúlur sem við þurfum að pakka og það er mikil vinna á bak við það,“ segir Valdís Erlendsdóttir, forstöðumaður vinnustofunnar. „Við þurfum að grandskoða hverja einustu kúlu áður en hún fer í kassa, athuga hvort hún sé í lagi og hvort nafn hönnuðarins sé í sínum stað. Síðan þarf að þræða rauðan borða í hana og setja tvo bæklinga með í hvern kassa, einn á ensku og annan á íslensku. Við brjótum líka að saman kassana sem eru utan um hverja kúlu, þeir koma ekki tilbúnir, og við brjótm líka saman lokin á kassana. Við höfum tekið þessa pökkun að okkar undanfarin ár og það er mikil gleði sem fylgir því þegar kúlan og óróinn koma í hús til okkar hér á vinnustofunni.“ Mikill sprettur Valdís segir að tveir hópar starfi við pökkunina á hverjum degi, fjórir starfsmenn séu í hvorum hópi og leiðbeinandi með báðum hóp- unum. „Þau sitja við allan starfsdag- inn, en við fáum kassana alltaf fyrr, um miðjan september og getum unnið okkur í haginn, sem veitir ekki af, því þetta er mikill sprettur Kúlan er viðkvæm líkt og lítið barn Gleðin og jólaskapið voru allsráðandi á vinnustofunni Ási í liðinni viku, en þar á bæ er mikið að gera í desember við að pakka 3.500 kærleikskúlum og 2.500 jóla- óróum. Þau eru mörg handtökin sem liggja að baki hverri öskju sem brjóta þarf saman, klippa borða og bönd, setja kúlu eða óróa ofan í og tvo bæklinga. Sigurður Pálsson orti þetta árið eftir- farandi ljóð um Skyrgám sem fylgir með óróa Steinunnar: Hvítt allt er hvítt Alhvít jörð hungrið alhvítt Ég og bræður mínir og foreldrarnir furðulegu öll jafn svöng á leið til byggða Dreymir um alls konar mat Mig dreymir bara um skyr alltaf bara skyr skyr skyr Hvítt allt er hvítt Ég geng svangur áfram og áfram Hugsa ekki um neitt nema hvítt og meira hvítt skyr Alhvít jörð hungrið alhvítt Vil ekki þennan snjó vil ekki þetta hungur vil bara skyr Samvinna rithöfundar og hönnuðar Ljóð Sigurðar um Skyrgám Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2015 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki 40 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.