Morgunblaðið - 15.12.2015, Side 10
Morgunblaðið/Golli
Pökkun Hér er bundinn hnútur á óróann, Skyrgám hennar Steinunnar.
Ás vinnustofa er verndaður vinnu-
staður fyrir fatlaða sem hóf starf-
semi sína árið 1981. Á vinnustof-
unni er lögð áhersla á að skapa
fólki með skerta starfsgetu vinnu-
aðstöðu sem sniðin er að þörfum og
getu hvers og eins. Áhersla er lögð
á að efla sjálfsöryggi einstaklings-
ins og starfshæfni með það að
markmiði að starfa á almennum
vinnumarkaði.
Á vinnustofunni er starfrækt
saumastofa, en þar eru framleiddar
ýmsar gerðir heimilisklúta, ásamt
hárklæðum, handklæðum, bleium
og gömlu góðu diskaþurrkunum.
Saumastofan er m.a. í samstarfi
við hönnuðinn Jónsdóttir og co, og
saumar fyrir hana sængurverasett
og margskonar koddaver sem og
poka utan um ungbarnasamfellur
með myndum af Stubbi.
Á vinnustofunni eru einnig unnin
margskonar pökkunarverkefni og
plöstun fyrir fyrirtæki, til dæmis
fjölmörg verkefni fyrir fyrirtækið
Umslag. Einnig tekur starfsfólk
vinnustofunnar að sér að merkja
vörur, og helsta verkefnið á því
sviði felst í að líma miða um hættu
tóbaks á neftóbaksdósir og tóbaks-
horn.
Starfsmönnum í Ási eru greidd
laun samkvæmt samningum við
Eflingu stéttarfélag að und-
angengnu starfsmati og með öllum
þeim réttindum og skyldum sem
því fylgja.
Vinnustofan Ás starfar allan árs-
ins hring og á hverjum degi koma
27 til 30 manns til að starfa, alls-
staðar að af höfuðborgarsvæðinu.
Starfsmenn eru 21 til 65 ára og eru
þeir í mismikilli vinnu, sumir eru í
30 prósenta starfi en enginn í
meira en 80 prósenta starfi.
Vinnutíminn er frá kl. 08.30 til
16.30. Yfir vetrarmánuðina gefst
starfsfólki kostur á að fara í heim-
sóknir á aðra vinnustaði.
Vefsíðan www.styrktarfelag.is
Morgunblaðið/Golli
Saumakona Á saumastofunni, hér saumar Hildur Davíðsdóttir bleiur.
Fjölmörg verkefni
á vinnustofunni
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Morgunblaðið/Golli
Vandaverk Hildur Hauksdóttir fer varlega og passar að brjóta ekki kúlurnar og engin fingraför mega vera á þeim.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
að var heldur betur að-
ventustemning þegar
blaðamaður kíkti í heim-
sókn á vinnustofuna Ás í
Kópavogi, þar var allt á
fullu við árleg jólastörf sem felast í
því að pakka kærleikskúlunni og
jólaóróanum sem Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra lætur hanna í nýrri
mynd á hverju ári og selur til
styrktar því mikilvæga starfi sem
fram fer í Reykjadal og á Æfinga-
stöðinni. Þetta er íslensk hönnun og
myndlist, safngripir sem vekja
áhuga fólks á öllum aldri. „Hér er
sannarlega beðið eftir þessu
skemmtilega verkefni sem hringir
inn jólin hjá okkur. Við byrjuðum
fyrir tveimur vikum að pakka, en
kúlan kom óvenjuseint til okkar
þetta árið svo við reynum að vinna
þetta eins hratt og við getum. Þetta
eru 3.500 kúlur sem við þurfum að
pakka og það er mikil vinna á bak
við það,“ segir Valdís Erlendsdóttir,
forstöðumaður vinnustofunnar.
„Við þurfum að grandskoða
hverja einustu kúlu áður en hún fer
í kassa, athuga hvort hún sé í lagi og
hvort nafn hönnuðarins sé í sínum
stað. Síðan þarf að þræða rauðan
borða í hana og setja tvo bæklinga
með í hvern kassa, einn á ensku og
annan á íslensku. Við brjótum líka
að saman kassana sem eru utan um
hverja kúlu, þeir koma ekki tilbúnir,
og við brjótm líka saman lokin á
kassana. Við höfum tekið þessa
pökkun að okkar undanfarin ár og
það er mikil gleði sem fylgir því
þegar kúlan og óróinn koma í hús til
okkar hér á vinnustofunni.“
Mikill sprettur
Valdís segir að tveir hópar
starfi við pökkunina á hverjum degi,
fjórir starfsmenn séu í hvorum hópi
og leiðbeinandi með báðum hóp-
unum.
„Þau sitja við allan starfsdag-
inn, en við fáum kassana alltaf fyrr,
um miðjan september og getum
unnið okkur í haginn, sem veitir
ekki af, því þetta er mikill sprettur
Kúlan er viðkvæm
líkt og lítið barn
Gleðin og jólaskapið voru allsráðandi á vinnustofunni Ási í liðinni viku, en þar á
bæ er mikið að gera í desember við að pakka 3.500 kærleikskúlum og 2.500 jóla-
óróum. Þau eru mörg handtökin sem liggja að baki hverri öskju sem brjóta þarf
saman, klippa borða og bönd, setja kúlu eða óróa ofan í og tvo bæklinga.
Sigurður Pálsson orti þetta árið eftir-
farandi ljóð um Skyrgám sem fylgir
með óróa Steinunnar:
Hvítt allt er hvítt
Alhvít jörð
hungrið alhvítt
Ég og bræður mínir
og foreldrarnir furðulegu
öll jafn svöng á leið til byggða
Dreymir um alls konar mat
Mig dreymir bara um skyr
alltaf bara skyr skyr skyr
Hvítt allt er hvítt
Ég geng svangur
áfram og áfram
Hugsa ekki um neitt
nema hvítt og meira hvítt skyr
Alhvít jörð
hungrið alhvítt
Vil ekki þennan snjó
vil ekki þetta hungur
vil bara skyr
Samvinna rithöfundar og
hönnuðar
Ljóð Sigurðar
um Skyrgám
Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is
1975-2015
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við
leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
40 ára