Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 tilvalið til steikingar á laufabrauði Palmin Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 www.kemi.is - kemi@kemi.is Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn Samgöngustofa hefur afhent Isavia formlega tilnefningu um einkaleyfi til flugumferðarþjónustu í íslenska loftrýminu, auk efra loftrýmis Grænlands sem íslenska ríkið hefur gert um samning við það danska. Um er að ræða eitt stærsta loft- rými í heimi. „Með þessu er form- fest þjónusta Isavia og uppfylltar skuldbindingar íslenska ríkisins á þessum vettvangi, en um þær gilda strangar alþjóðlegar reglur og kvaðir,“ segir í frétt frá Samgöngu- stofu. Hjá Samgöngustofu sinna sér- fræðingar um flugleiðsögu daglegu eftirliti með starfsemi Isavia. Sam- vinna Samgöngustofu, Isavia og ís- lenska ríkisins í þessum málaflokki er í þágu flugöryggis á íslenska flugumferðarþjónustusvæðinu og þar með um 30 milljóna flug- farþega sem ferðast í þeim rúm- lega 130.000 flugvélum sem fara þar um á hverju ári, segir í frétt- inni. Fjölmörg störf tengjast verkefni flugleiðsöguþjónustu eða um 300 á Íslandi. Störfin eru fjölbreytt en nefna má flugumferðarstjóra, flug- fjarskiptafólk, fluggagnafræðinga, flugradíómenn, veðurfræðinga, verkfræðinga, tölvunarfræðinga og ýmsa tæknimenn, auk stoðþjónustu í fjármálum og rekstri. Tilnefningin sem Samgöngustofa afhenti Isavia sl. föstudag er liður í því að uppfylla alþjóðlega samn- inga um samevrópska loftrýmið. Bætist hún við þjónustusamning sem er í gildi milli innanríkisráðu- neytisins og Isavia sem nær m.a. til verkefna á sviði flugleiðsöguþjón- ustu, bæði á alþjóðlegu flugsvæði og í innanlandsloftrými. Meðfylgjandi er mynd sem tekin var við þetta tækifæri. Þar eru for- stjóri Samgöngustofu, Þórólfur Árnason, og forstjóri Isavia, Björn Óli Hauksson, ásamt starfsfólki Samgöngustofu, Isavia og innanrík- isráðuneytisins, f.v.: Páll S. Páls- son, Hlín Hólm, Þröstur Jónsson, Reynir Sigurðsson, Helgi Björns- son, Kristín Helga Markúsdóttir, Friðfinnur Skaftason, Halla Sigrún Sigurðardóttir, Þórhildur Elínar- dóttir og Helga R. Eyjólfsdóttir. Fá einkaleyfi til flugumferðarþjónustu  Isavia annast þjónustu í einu stærsta loftrými í heimi  Um 30 milljónir far- þega með rúmlega 130.000 flugvélum Einu stærsta fjáröflunarverkefni sem Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna hefur notið góðs af er lokið og er afraksturinn tæpar 10 milljónir króna. Fram kemur í tilkynningu að Páll V. Sigurðsson setti sig í sam- band við félagið og bauð því ágóða af sölu söngtextabókar sem hann hafði tekið saman og kallaði Lífsperlur. Að verkefninu stóð, auk Páls, prentsmiðjan Letur- prent. Bókin var boðin almenn- ingi til kaups í símasölu. Þegar upp var staðið hafði ágóðinn af sölu bókarinnar skilað félaginu tæpum 10 milljónum króna og er þetta með stærri fjáröflunarverkefnum sem efnt hefur verið til til styrktar félag- inu. Í tilkynningunni kemur fram að Páll tengist Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna í gegn- um dótturson sinn, sem greindist með krabbamein og gekk í gegn- um meðferð fyrir allnokkrum ár- um. Lífsperlur skiluðu 10 milljónum Söfnuðu með bókarsölu Páll V. Sigurðsson og Burkni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Leturprents, með eintök af textaheftinu Lífsperlum. Eygló Harðar- dóttir, félags- og húsnæðis- málaráðherra, hefur skipað Rúnar Helga Haraldsson for- stöðumann Fjöl- menningarseturs til fimm ára, frá 1. janúar næst- komandi. Rúnar Helgi hefur starf- að sem settur forstöðumaður stofnunarinnar frá 1. desember 2014. Rúnar Helgi er mannfræðingur og kennari að mennt. Hann lauk BA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 1993, árið 1994 lauk hann kennaraprófi frá Háskóla Ís- lands og árið 1995 útskrifaðist hann með meistaraprófsgráðu í heilbrigðismannfræði frá SOAS- háskólanum í London. Rúnar Helgi hefur stundað kennslu- og fræðastörf um árabil, segir í tilkynningu ráðuneytisins. Rúnar Helgi Haraldsson Rúnar yfir Fjöl- menningarsetrinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.