Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 294. tölublað 103. árgangur
Gjafakort
Gjafakort í Borgarleikhúsið er
ávísun á einstaka kvöldstund
sem aldrei gleymist.
BORGARLEIKHÚSSINS
borgarleikhus.is
9
GLUGGAR TIL JÓLA
KÆRLEIKS-
KÚLAN ER
VIÐKVÆM
LÍTILL RAPP-
ARI VILL
STÓRA BÍLA
ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGT
FERÐALAG
LIL WAYNE BÍLAR BÓKABÖRN 38VINNUSTOFAN ÁS 10
Jólin voru í algleymingi í Hallgrímskirkju í gærkvöldi þegar Karlakór
Reykjavíkur hélt aukatónleika fyrir starfsmannafélag Landspítalans, eins
og hann hefur gert undanfarin ár. Árlegir aðventutónleikar kórsins, sem
báru heitið „Á herrans hátíð syngjum“, voru fernir talsins og voru tónleik-
arnir í gær þeir síðustu í ár. Heppnuðust tónleikarnir vel að vanda og
gengu gestir ánægðir sína leið þegar þeim lauk.
Í fyrsta sinn í tuttugu og fjögurra ára sögu aðventutónleikanna var hin
þjóðþekkta söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, aðalgestur þeirra.
Sungu starfsmenn Landspítalans í jólaskap
Morgunblaðið/Golli
Heimsmark-
aðsverð á olíu
lækkaði í gær og
bættist lækkunin
við verðlækkanir
í síðustu viku.
Verðið á Brent-
hráolíu hefur
lækkað um rúm
38% á einu ári.
Hallsteinn Arn-
arson, sérfræð-
ingur hjá IFS greiningu, segir
mikla óvissu ríkja um framhaldið
og hvenær olíuverðið nær við-
spyrnu að nýju.
„Það er í raun og veru ómögulegt
að segja til um hvar eða hvenær
það nákvæmlega gerist. Fyrsta vís-
bending um mögulegan botn og
umskipti í Brent-hráolíuverði væri
sannfærandi hækkun upp fyrir 47
dollara á tunnuna,“ segir Hall-
steinn. »20
Heimsmarkaðsverð
á olíu heldur áfram
að lækka og lækka
Verðlag Olíuverð
lækkar enn.
Ef áform hús-
næðissamvinnu-
félagsins Búseta
ganga eftir gæti
félagið verið
komið með tæp-
lega 1.300 íbúð-
ir árið 2020 og
3.000 íbúðir árið
2030. Félagið er
nú með milli
400 og 500 íbúðir í pípunum og
leitar að fleiri lóðum til uppbygg-
ingar.
Gísli Örn Bjarnhéðinsson,
framkvæmdastjóri Búseta, segir
nýtt frumvarp um húsnæðis-
samvinnufélag munu auðvelda fé-
laginu að sækja hagstæða láns-
fjármögnun.
Félagið hyggst fjárfesta fyrir
15 milljarða króna í nýjum íbúð-
um á næstu árum. » 12
Búseti fjárfestir
fyrir 15 milljarða
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfestar miða nú við að fyrirhugað
hótel í Vatnsmýri í Reykjavík verði
um 22.500 fermetrar og með 400-450
herbergjum. Það er um 25% fjölgun
fermetra síðan áformin voru fyrst
kynnt í lok september í haust. Var þá
rætt um 300-400 herbergi.
Jóhann Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins S8 ehf.,
undirbýr þessar framkvæmdir.
Hann segir fjölda erlendra hótel-
keðja hafa sýnt því áhuga að reka
hótel í fyrirhugaðri byggingu. Jafn-
framt hafi innlendir aðilar áhuga á
að taka að sér reksturinn.
Gerist ekki á íslenskum hraða
„Markmiðið hefur verið að fá er-
lendan aðila til að reka hótel í þessari
byggingu sem búið er að forhanna.
Þessar erlendu keðjur eru af þeirri
stærðargráðu að hlutirnir gerast
ekki á íslenskum hraða. Svona verk-
efni eru hluti af margra mánaða ferli.
Nánast hver einasta erlenda hótel-
keðja sem dæmigerður Íslendingur
kannast við hefur sýnt því áhuga að
koma hingað,“ segir Jóhann.
Hann segir íslenskan hótelmarkað
þurfa á erlendum keðjum að halda.
Það dýpki markaðinn og komi til
móts við óskir margra erlendra við-
skiptavina, t.d. sívaxandi fjölda
ferðamanna frá Bandaríkjunum. Það
flæki hins vegar samstarf við er-
lenda aðila að þeir vilji rekstrar-
samning en ekki leigusamning. Það
sé þvert á áherslu íslenskra fjár-
málastofnana á að fyrir hendi sé
leigusamningur.
Níu milljarða verkefni
Jóhann segir nú áætlað að bygg-
ing hússins kosti 9 milljarða króna.
Áformað sé að hefja framkvæmdir í
júní og að rekstur hótelsins geti haf-
ist með haustinu 2017.
„Það er slík eftirspurn núna – og
raunar umframeftirspurn – að hótel-
markaðurinn myndi þola það að vaxa
ekki neitt og jafnvel að verða fyrir
áföllum,“ segir Jóhann um eftir-
spurnina eftir svona hóteli.
Ef áformin ná fram að ganga verð-
ur þetta langstærsta hótel landsins
sem mun rúma um 900 gesti. Foss-
hótel á Höfðatorgi er nú stærsta hót-
elið með 320 herbergi en þar starfa
140 manns yfir hásumarið. Miðað við
svipað hlutfall herbergja og starfs-
manna og á hótelinu á Höfðatorgi
gætu vel á annað hundrað manns
starfað á hótelinu í Vatnsmýri.
Stefna nú á 400-
450 hótelherbergi
Fjárfestar áforma nú enn stærra risahótel í Vatnsmýrinni
MRisahótel í Vatnsmýri… »4
Teikning/ASK arkitektar
Götuhorn Nýtt hótel í Vatnsmýri
gæti farið í rekstur haustið 2017.
Fjórar ferðaskrifstofur undirbúa
nú pakkaferðir á Evrópukeppnina í
fótbolta sem fram fer í Frakklandi
næsta sumar. Forsvarsmenn ferða-
skrifstofanna svöruðu fjölda fyr-
irspurna í gær eftir að ljóst varð
hverjir leikdagar og leikstaðir
verða í Frakklandi. Alls verða 34
þúsund miðar í boði fyrir Íslend-
inga og því ætti framboð á miðum
að vera nægt. »16/Íþróttir
34 þúsund miðar
fyrir Íslendinga