Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 eru komin . Vestfirsk jólabrauð . Ítölsk jólabrauð Jólabrauðin Verið velkomin Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ 565 8070 • okkarbakari.is Tækni í þína þágu hitataekni.is Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is Barna- og jólaóperan Amahl og næt- urgestirnir eftir Gian Carlo Menotti verður sýnd í Salnum í dag kl. 18 og fimmtudaginn 17. desember kl. 20. Leikstjóri uppfærslunnar er Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkennari Tónlistarskóla Kópavogs, og píanó- leikur er í höndum Selmu Guð- mundsdóttur. Hlutverk Amahls syngur Andri Páll Guðmundsson, en í öðrum hlutverkum eru Jón Pétur Friðriksson, Tinna Jóhanna Magn- usson, Gunnar Emil Ragnarsson, Sigurjón Örn Böðvarsson, Tore Skjenstad, Snæfríður María Björns- dóttir, Una Björg Jóhannsdóttir, Arna Björk Einarsdóttir og Heiðrún Ösp Hauksdóttir. Samkvæmt upplýsingum frá að- standendum samdi Menotti óperuna fyrir NBC-sjónvarpsstöðina þar sem hún var frumsýnd á aðfangadag 1951. „Sagan fjallar um fatlaða drenginn Amahl og fátæka móður hans. Vitringarnir þrír með fullt af gulli og gjöfum knýja dyra og biðja um húsaskjól á leið þeirra til Betle- hem. Þegar allir eru sofnaðir freist- ast móðirin til að taka smá gull en er staðin að verki. Vitringarnir segja henni frá Jesúbarninu. Móðirin vill skila gullinu aftur og Amahl ætlar að gefa Jesú hækjuna sína. Þegar hann réttir vitringunum hækjuna læknast hann og fær mátt í fótinn, getur hoppað, hlaupið og dansað. Allir gleðjast yfir þessu kraftaverki og vitringarnir taka Amahl með til Betlehem til að hitta Jesúbarnið.“ Uppfærslan tekur eina klukku- stund í flutningi og aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Næturgestir Amahl og næturgestirnir er fyrsta óperan sem samin var sér- staklega fyrir sjónvarp í Ameríku, en hún var frumsýnd árið 1951. Barnaópera sýnd tvisvar í Salnum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er mjög þakklát og glöð. Ég hef sjálf setið í fagurbókmenntadóm- nefnd Íslensku bókmenntaverð- launanna og veit því mæta vel hversu vandasamt er að velja úr fjölda góðra bóka þær fimm sem tilnefna á hverju sinni,“ segir Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur um tilnefn- inguna til Íslensku bókmenntaverð- launanna í flokki fræðibóka sem hún hlaut fyrir bók sína Bókabörn – Ís- lenskar barnabókmenntir verða til. Þetta er önnur tilnefning Dagnýjar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, en fyrri tilnefninguna hlaut hún árið 1996 fyrir bók sína Kona verður til sem byggði á doktorsritgerð hennar og fjallaði um Ragnheiði Jónsdóttur. Dagný hefur á umliðnum árum kennt barnabókmenntir við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. „Mér fannst nauðsynlegt að kafa of- an í sögu barnabókmennta og það hefur verið ótrúlega skemmtilegt ferðalag,“ segir Dagný um tilurð Bókabarna sem verið hefur níu ár í vinnslu með hléum. „Framan af fannst mér erfitt að gera upp við mig hvað ætti að fara inn í bókina, en end- aði á því að afmarka mig við eldri bækurnar. Líka vegna þess að það er svo margt í þeim sem kemur aftur fyrir í yngri bókum, þ.e. sömu hug- myndirnar og mynstrin. Sem dæmi birtist barátta góðs og ills skýrast í töfraævintýrum fyrir börn og núna í fantasíum eins og Harry Potter og Star Wars. Fjöldamenningin fær mikla orku úr þessum þemum sem eru algeng í barnabókum.“ Alltaf tvöfaldur lesandi Að sögn Dagnýjar vakti fyrir henni í bókinni að skoða hvernig hug- myndir um barnið hefðu þróast. „Tit- ill bókarinnar vísar til þess að hún fjallar um börn í bókum, en þau eru ekki raunveruleg börn heldur tilbúin börn. Mig langaði að skoða úr hverju þessi börn væru búin til og hvernig svokallaðir „feður“ íslenskra barna- bóka vildu lýsa börnum,“ segir Dagný og vísar þar til Jónasar Hall- grímssonar, Jóns Sveinssonar eða Nonna, Sigurbjörns Sveinssonar og Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar. „Allar barnabækur birta hug- myndir manna á hverjum tíma um börn og hvernig þau eiga eða eiga ekki að vera. Barnabækur eru allar skrifaðar af fullorðnum, nema í seinni tíð þar sem menn eru farnir að gefa út bækur eftir börn,“ segir Dagný og nefnir sem dæmi smásagnasafnið Eitthvað illt á leiðinni er sem geymi draugasögur eftir átta til tíu ára gömul börn. „Það er alltaf tvöfaldur lesandi til staðar í barnabókum, þ.e. barnið og hinn fullorðni, þó að ekki væri nema vegna þess að meðan fullorðnir skrifa bækurnar er alltaf innbyggð fullorðin rödd líka. Hinn fullorðni er alltaf til staðar, þó að hann sé misvel falinn. Í eldri bókum er vísifingurinn iðulega á lofti með móralíseringu. En yfirleitt reyna fullorðnir höfundar að fela sig í bókum sínum og reyna jafnvel að skrifa eins og lítil börn, en það verða stundum frekar kjánalegir textar.“ Ólíkar birtingarmyndir barna Aðspurð segir Dagný mikinn mun á birtingarmynd barna í barnabókum höfundanna fjögurra sem hún hefur rannsakað. „Þessir fjórir höfundar eru fjórir elstu höfundarnir, en þeir endurspegla líka mismunandi tímabíl í bókmenntunum. Jónas Hall- grímsson var okkar fyrsti rómantíski höfundur sem skrifaði fyrir börn og Grasaferð er klassískur texti um rómantísk börn. Bókin birtir okkur sakleysi barnanna og um leið visku, en þau standa næst guði uppi á fjall- inu. Nonni skrifaði drengjasögur og ævintýrasögur. Sigurbjörn Sveins- son tekur skrefið úr rómantíkinni og upphafningunni á barninu yfir í til- finningasemina og einhvers konar til- raun til að búa til samlíðan með barninu. Barnadauði var gríðarlegur og um miðja 19. öld gat hann farið yf- ir 40% þegar verst var. Það þurfti að fá fólk til að hugsa um börnin og vel- ferð þeirra og fá samúð og áhuga á börnum. Jóhann Magnús Bjarnason var Vestur-Íslendingur sem flutti níu ára til Nova Scotia og þaðan til Winnipeg og kom aldrei aftur til Íslands. Hann bjó í Kanada í 70 ár og var vinsæll barnakennari, en hann skrifaði allar sínar bækur á íslensku,“ segir Dagný og bendir á að Jóhann Magnús hafi skrifað ungmennabækur, þ.e. bækur fyrir óræðan aldur frá 15 til 45 ára. „Brasilíufaranir eftir hann er ævintýrasaga sem er á nokkuð skylt við bækur eins og Gulleyjuna eftir Stevenson. Hann var undir áhrifum frá erlendum höfundum, enda bjó hann og starfaði í útlöndum. Hér má benda á að Nonni bjó og starfaði í Þýskalandi, Frakklandi og Dan- mörku. Þeir voru því sjálfir al- þjóðabörn ef svo mætti að orði kom- ast. Þegar Jóhann Magnús lést árið 1945 var hann byrjaður að skrifa undir áhrifum frá nýrri fjöldamenn- ingu. Maður getur alveg séð að fyrstu kvikmyndirnar höfðu áhrif á hann. til dæmis Galdrakarlinn í Oz. Margt í ævintýrum hans er meira í anda alþjóðlegu barnabókanna sem síðan hafa flætt yfir allan heiminn sem klassíkerar. Hann brúar bilið inn í nútímann fyrir íslensk börn. Hann er sá sem stígur skrefið úr sveitasögunum yfir í nútímann. Nonni gerir það að sumu leyti líka. Þetta eru mjög merkilegir karlar og gaman að kafa ofan í verk þeirra.“ Bækur sem vaxa með manni Í lokakafla bókarinnar bendir Dagný á að á undan ofangreindum „feðrum“ íslenskra barnabóka hafi komið nafnlausar sagnakonur sem fóru með þjóðsögur og ævintýri fyrir börn sín og voru því „mæður“ ís- lenskra barnabókmennta. Spurð hvort hún hyggist skrifa um „mæð- urnar“ líka segir Dagný aldrei að vita. „Við erum að vinna að Nýju ís- lensku barnabókmenntasögunni sem nær frá upphafi og til dagsins í dag, en stefnt er að útgáfu 2017,“ segir Dagný sem ritstýrir bókinni í sam- vinnu við Silju Aðalsteinsdóttur, en auk þeirra skrifa bókina Helga Birg- isdóttir, Hildur Ýr Ísberg, Anna Þor- björg Ingólfsdóttir, Sigþrúður Gunn- arsdóttir, Laufey Einarsdóttir og Anna Heiða Pálsdóttir. Ekki er hægt að sleppa Dagnýju án þess að forvitnast um hvort hún eigi sér uppáhaldsbarnabók. „Já, þær eru margir. Sem kennari barnabókanámskeiða kennir maður af mikilli gleði góðar sígildar bækur sem bjóða sífellt upp á nýja nálgun. Það eru bestu barnabækurnar sem maður byrjar að lesa sem barn og vex og þroskast með fram á fullorð- insár. Margar af bókum Stefáns Jónssonar eru þess eðlis,“ segir Dagný og nefnir einnig höfunda á borð við Astrid Lindgren. „Mér finnst ég sjá skýr merki þess að barnabækur eru alltaf að verða betri og betri. Þær njóta líka meiri við- urkenningar, sem sést á því að þær eru komnar inn Íslensku bókmennta- verðlaunin sem sér flokkur,“ segir Dagný og bætir við: „Ég vona að okkur takist að fá börn til að lesa í samkeppni við myndmiðlana. Því bækurnar eru ævintýraheimur og börn sem lesa lesa sér til mikillar gleði.“ Þess má að lokum geta að Dagný ræðir um Bókabörn í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Morgunblaðið/Júlíus Gleði „Ég vona að okkur takist að fá börn til að lesa í samkeppni við myndmiðlana. Því bækurnar eru ævintýra- heimur og börn sem lesa lesa sér til mikillar gleði,“ segir Dagný Kristjánsdóttir, höfundur Bókabarna. „Hefur verið ótrúlega skemmtilegt ferðalag“  Bókabörn Dagnýjar Kristjánsdóttur níu ár í vinnslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.