Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
✝ Oliver Krist-ófersson fædd-
ist í Hjarðarholti í
Sandgerði 26. sept-
ember 1928. Hann
lést á LSH 25. nóv-
ember 2015.
Foreldrar hans
voru Kristófer Oli-
versson skipstjóri
og útgerðarmaður,
f. 22.8. 1894, d. 21.3.
1983, og Þuríður
Gísladóttir frá Sandgerði, f. 3.7.
1900, d. 21.8. 1983. Systkini Oli-
vers eru Kristinn Sveinbjörn, f.
29.1. 1920, d. 4.6. 1943, Ólína
Helga, f. 31.5. 1927, d. 12.11.
2004, Guðlaug, f. 28.1. 1930, og
Helgi, f. 18.4. 1937, d. 29.11.
1963.
Oliver kvæntist 17. júní 1953
Ingibjörgu Söru Jónsdóttur frá
Hnífsdal, f. 27.10. 1931, d. 30.9.
1986. Hún var dóttir hjónanna
Jóns Elíasar Ólafssonar og Stein-
dóru Rebekku Steindórsdóttur
frá Bæjum á Snæfjallaströnd.
Börn þeirra eru 1) Steindór
Kristinn Oliversson útgerðar-
maður, f. 5.3. 1953, kvæntur
Ingu Björgu Sigurðardóttur, f.
1953. Börn þeirra eru a) Birna, f.
1971. Börn hennar eru Sólon
Kristinn, f. 1991, og Sara Re-
kvæmdastjóri, f. 30.6. 1955,
kvæntur Svanfríði Jónsdóttur, f.
1955. Börn þeirra eru a) Maron,
f. 1975, kvæntur Unni Gyðu
Magnúsdóttur, f. 1976. Börn
Marons eru Kristófer Már, f.
1993, Thelma Kristín, f. 2001, El-
ísa Björk, f. 2007, og Magnús
Andri, f. 2009. b) Sara, f. 1979,
gift David McGuinness, f. 1975.
c) Anna Ólöf, f. 1984.
Oliver ólst upp til sex ára ald-
urs í Sandgerði en fluttist þá til
föðursystur sinnar, Helgu Oli-
versdóttur, og eiginmanns henn-
ar, Ólafs Ásmundssonar frá Há-
teigi á Akranesi. Þeim varð ekki
barna auðið og ólst Oliver upp
hjá þeim. Hann hóf ungur störf
hjá Þórði Ásmundssyni útgerð-
armanni, bróður Ólafs, og starf-
aði við verslunarstörf o.fl. Þaðan
lá leiðin í Verslunarskóla Íslands
og útskrifaðist hann þaðan 1950.
Oliver starfaði mestan sinn
starfsaldur sem aðalbókari
Akraneskaupstaðar en einnig
starfaði hann um skeið á hafn-
arvoginni á Akranesi og á Akra-
borginni. Þá starfaði hann um
nokkurra ára skeið á endurskoð-
unarskrifstofu Ragnars Á.
Magnússonar í Reykjavík. Eftir
að Oliver komst á eftirlauna-
aldur hóf hann störf sem nætur-
vörður á Gistiheimilinu Flóka-
götu 1 í Reykjavík og vann við
það í tæpan áratug.
Útför Olivers fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 15. desem-
ber 2015, og hefst athöfnin
klukkan 14.
bekka Björg, f.
2003. b) Óli Valur, f.
1973, kvæntur
Ragnheiði Þengils-
dóttur, f. 1974. Börn
Óla Vals eru Stein-
dór Snær, f. 1995,
Ísak, f. 1999, Oliver
Snær, f. 2003, Stein-
unn Eva, f. 2007, og
Sunna, f. 2012. c)
Tinna, f. 1983, unn-
usti hennar er
Valdimar Þór Guðmundsson, f.
1983. Börn Tinnu eru Anna Val-
gerður, f. 2007, Arnór Dagur, f.
2010, og Guðmundur Hrafn, f.
2015.
2) Helga Ólöf Oliversdóttir
sjúkraliði, f. 18.3. 1954, gift
Pálma Pálmasyni, f. 1951. Börn
þeirra eru a) Oliver, f. 1971,
kvæntur Nönnu Guðbergsdóttur,
f. 1974. Dætur Olivers eru Eva, f.
1991, Nadja, f. 2002, og Sonja, f.
2004. b) Pálmi Sveinn Pálmason,
f. 1976, kvæntur Ana Maria Cha-
con Pálmason, f. 1976. Synir
þeirra eru Pálmi Sveinn, f. 2008,
og Magnús Oliver, f. 2012. c)
Matthildur Vala Pálmadóttir, f.
1980, gift Ingólfi Bjarna Sveins-
syni, f. 1980. Dóttir þeirra er
Helena Kristín, f. 2008.
3) Kristófer Oliversson fram-
Elsku pabbi minn er farinn til
Guðs. Ég samgleðst honum en
sakna hans strax. Við höfum ver-
ið virkir þátttakendur, hvort í
annars lífi, í meira en sextíu ár.
Pabbi og mamma gáfu mér og
bræðrum mínum vandað og gott
uppeldi.
Fyrir það er ég afar þakklát.
Þau voru heiðarleg og lítillát.
Betra veganesti er ekki hægt að
gefa börnum sínum.
Pabbi fékk vandað uppeldi
sjálfur og góða menntun í Versl-
unarskóla Íslands. Mikið fannst
mér gaman að skoða Verslunar-
skólabókina hans þegar ég var lít-
il. Þar höfðu samnemendur hans
sett myndir af sér og skrifað ýmsa
speki. Sumir skrifuðu um Bakkus,
hver varð því miður förunautur
pabba því hann var með sjúkdóm-
inn alkóhólisma.
Fjölskyldulíf okkar var oft
undirlagt af þessum sjúkdóm og
ég lærði snemma á hann. Ég var
nefnilega pabbastelpa og stundum
ef pabbi var einn að drekka, sat ég
hjá honum og las Verslunarskóla-
bókina.
Ég erfði sjúkdóminn hans.
Komin hátt á fertugsaldur fór ég
að fikta við áfengi og missti fljótt
tökin. Innst inni þekkti ég ein-
kennin því ég hafði alist upp með
þeim.
Pabbi var óendanlega góð og
ljúf manneskja og ég bar gæfu til
að greina á milli, hver var hann og
hver var Bakkus.
Mamma var ung þegar hún fór
til Guðs. Við vorum lömuð af sorg
og grétum saman fyrstu jólin sem
pabbi var einn. Síðan eru 29 ár.
Mamma hafði verið kletturinn í
lífi hans og stýrt heimilinu af alúð
og ábyrgð.
Mamma var húsmæðrraskóla-
gengin eins og sagt var í gamla
daga. Það þótti góð menntun fyrir
ungar stúlkur. Hún var svo vel-
virk. Pabbi hafði alltaf getað
treyst á hana.
Hann drekkti sorgum sínum í
nokkur ár og missti tökin á tilver-
unni. En kraftaverkin gerast og
hann náði að snúa við blaðinu með
hjálp SÁÁ. Hann eignaðist inni-
haldsríkt líf síðustu 20 árin og ein-
beitti sér að afahlutverkinu og öðl-
aðist ást og virðingu barnahópsins
síns.
Hann varð mín fyrirmynd sem
AA maður og við vorum nánir vin-
ir til æviloka hans.
Ég trúi því að foreldrar mínir
séu í ljósinu fagra hjá Guði og njóti
jólanna saman.
Helga Ólöf Oliversdóttir.
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Að lifa einn dag í einu,
njóta hvers andartaks fyrir sig,
…
(Reinhold Niebuhr)
Það má segja að þegar Oliver
kúventi sínu lífi samfara röð tilvilj-
ana, þá hafi þessi hluti æðruleys-
isbænarinnar orðið honum vegvísir
það sem eftir var ævi. Oliver var
miklum hæfileikum gæddur sem
sneri að stærðfræði, með mikið og
gott talnaminni sem nýttist afar vel
sem aðalbókari Akranesbæjar um
áratugaskeið. Þá ekki síður sem
bridge-spilari allt til hinsta dags
þar sem Oliver var jafnan vikulega
með verðlaunasæti þar sem hann
spilaði á þrem stöðum vikulega á
höfuðborgarsvæðinu við góðan
orðstír. Framan af langri ævi var
Bakkus meðreiðarsveinn. Er það
dapur allt of stór kafli þar sem allt
það vænsta fór forgörðum, hin
glæsilega eiginkona, veraldlegar
eignir og tiltrú barnanna sem og
annarra. Öllu þessu tvístraði Bakk-
us og eirði engu fyrr en auðnin sjálf
var framundan. Það var þá sem
ekki varð lengra haldið og það góða
í manninum náði yfirhöndinni og
yfirbugaði óvættinn í sálinni.
Skyndilega eignuðust barnabörnin
sinn afa sem var ávallt til í að gera
greiða þegar á þurfti að halda. Oli-
ver var ferðaglaður og sjálfstæður
þótt einmanakenndin gerði oft vart
við sig í daglega lífinu þar sem
hann var oftast einn á ferð eða í
íbúðinni á Dalbraut. Hans besti
vinur var Gulla systir hans sem
vakti yfir velferð Olivers svo eftir
vara tekið af mikilli einlægni. Sjálf-
ur kynntist ég Oliver fyrst þegar
við dóttir hans gengum í hjónaband
og þakka ég þau kynni sem alltaf
héldust þrátt fyrir margháttaðar
breytingar, þá ekki síst að þakka
fyrir þann góða afa og langafa sem
hann að lokum gaf af sér til fjöl-
skyldunnar og mun lifa í minning-
unni.
Pálmi Pálmason.
Elsku afi Olli.
Nú ertu farinn frá okkur og
þegar ég hugsa til baka er svo
margs að minnast og margt til að
vera þakklát fyrir.
Þó að ég hefði eytt barnsárun-
um í Svíþjóð þá koma upp yndis-
legar minningar um þig úr sumar-
fríunum á Íslandi þegar þú varst
að basla við að kenna mér stærð-
fræði fjögurra ára gamalli svo að
ég væri með smá forskot þegar ég
byrjaði í skóla. Rúntarnir á
bögglaberanum á svarta hjólinu
með þér og rabarbarauppskeran
við Háteiginn svo amma Inga gæti
gert rabarbarasultuna sína góðu,
allt eru þetta ljúfar minningar
sem ég hef hugsað mikið til
undanfarið.
Fyrir rúmum 20 árum fluttirðu
frá Akranesi til Reykjavíkur og
málin æxluðust þannig að þú
varðst næturvörður á gistiheim-
ilinu á Flókagötu 1 og það átti
heldur betur eftir að hafa áhrif á
æviskeið okkar allra. Um ári eftir
að þú byrjaðir á Flókagötunni lét
Kristín þig vita að hún væri komin
á þann aldur að hún vildi hætta í
rekstrinum og úr varð að mamma
og pabbi tóku við þeim rekstri af
henni og þar upphófst fjölskyldu-
ævintýrið okkar.
Þú varst án efa skemmtilegasti
maðurinn sem hefur tekið við vakt
af mér á nokkrum vinnustað og
aldrei hef ég hangið tímunum
saman með vinnufélaga á vakt eft-
ir vaktaskipti. Það var nú bara
nokkuð reglulegt hjá okkur að fá
okkur einn sjálfstæðan Íslending
saman í kvöldmat og sitja svo bara
og spjalla þangað til allir gestir
voru mættir í hús. Þarna á ég svo
endalaust margar góðar minning-
ar um þig að það fyllir í heila bók.
Þú varst mikill fjölskyldumaður
og fannst gaman að segja sögur af
fjölskyldunni og hélst allri stór-
fjölskyldunni alveg ótrúlega vel
upplýstri um stöðuna hjá öllum al-
veg fram á síðasta dag. Þú varst
alveg einstaklega hjartahlýr og
svo duglegur að hugsa um þína.
Ég man alltaf eftir því þegar Olli
og Pálmi voru í Þýskalandi, þá var
það regluleg venja að þú mættir
með kort og dagblaðabúnt og jafn-
vel íslenskt súkkulaði inn í gler-
skála og svo föndruðum við það
saman í pakka og skrifuðum á
kortið svo þú gætir sent þeim smá
glaðning frá Íslandi. Ég er alveg
viss um að þeim hafi þótt jafn
óendanlega vænt um það og mér
þótti að fá glaðningana og kortin
frá þér þegar ég var flutt til Ír-
lands. Það voru alltaf bestu send-
ingarnar.
Bestu minningarnar tengjast
nú samt sem áður flottasta bíl í
heimi, E-10. Þú hafðir alveg ein-
stakt lag á að finna það á þér ef
einhverju okkar leið eitthvað illa
og varst fljótt mættur á E-10 í smá
afarúnt þar sem keypt var pulsa
og kók, alltaf bara ein kók í gleri
og svo sagðir þú alltaf „þú drekk-
ur fyrri helminginn og ég seinni“.
Svona varstu ljúfur og deildir allt-
af svo fallega með okkur. Það fór
bara eftir tímanum hvert rúntað
var, Grindavík, Garður og Sand-
gerði var vinsæll rúntur hjá okkur
og mikið spjallað um gamla tíma í
leiðinni.
Takk, afi, fyrir samveruna og
að hafa kennt mér verðmætustu
lexíu í heiminum. Það skiptir engu
máli hversu slæm staðan er, ef þú
vaknar á morgnana og heldur
áfram að vinna í öllum þínum mál-
um þá endarðu sem sigurvegari.
Hvíl í friði, elsku vinur og afi.
Ástarkveðja, þín
Sara.
Það er komið að því, elsku afi
Olli. Þriðjudaginn 15. desember
verður nafnið þitt líkast til ritað
eitt hinsta sinni á síður Morgun-
blaðsins. Þú varst alltaf duglegur
að benda okkur, sposkur á svip, á
nafnið þitt í Mogganum, sem oftar
en ekki skipaði efsta sætið í brids
eða „spilamennskunni“ eins og þú
kallaðir það.
Þú varst alltaf svo hress, kátur
og sagðir gamansögur milli kon-
fektmola í fjölskylduboðum.
Ég man þegar ég sat á spítalan-
um daginn sem þú veiktist, hinn
16. nóvember síðastliðinn, og
hlustaði á starfsfólkið ræða sín á
milli. Aldur þinn bar á góma og ég
hugsaði með mér: „Já, afi er orð-
inn 87 ára gamall.“ Það er skrítið
hvað aldur getur verið afstæður,
ekki síst þegar maður er eins ung-
ur í anda og þú, afi Olli.
Ég fann hvernig öryggið sem
ég bar með mér inn á Landspít-
alann í Fossvogi um að þú myndir
mæta þessum skyndilegu veikind-
um með hnefanum og hafa ótví-
ræðan sigur minnkaði og raun-
veruleikinn og hræðslan við að
þurfa að kveðja þig tók völdin.
Eitt var þó rétt og næsta víst
þegar þú áttir í hlut. Þú mættir
veikindunum galvaskur og barðist
hetjulega gegn ofjörlum þínum til
þess að koma aftur til okkar. Lífs-
löngunin leyndi sér ekki og bar-
áttan fordæmi sem er okkur öllum
til eftirbreytni í framtíðinni.
Kveðjustundin þín, afi, endur-
speglaði svo sannarlega þann
sterka mann og karakter sem þú
hafðir að geyma. Þú barðist fyrir
því sem mestu skipti og nýttir
þinn tíma vel.
Í veikindunum gerðir þú akk-
úrat nóg. Þú komst í gegnum
miklar ógöngur sem flestir sögðu
ómögulegt. En þú hélst áfram og
með þinni eljusemi veittir þú okk-
ur, sem eftir sitjum, ómetanlegan
tíma með þér. Sá tími er haldreip-
ið í dag og fleytir okkur áfram í
sorginni. Fyrir það verð ég æv-
inlega þakklát.
Söknuðurinn er sár, en minn-
ingarnar eru lifandi ljós í hjartanu
og varðveitast þar um ókomna tíð.
Takk, elsku afi, fyrir allt sem þú
varst. Guð geymi þig og varðveiti
um alla tíð og tíma. Það eru for-
réttindi að hafa þig vakandi yfir
sér og fjölskyldunni sinni. Góða
ferð áfram.
Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á
lifi og verð mínum lausnara hjá –
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Dásöm það er, dýrð handa mér,
dýrð handa mér, dýrð handa mér,
er ég skal fá Jesú auglit að sjá,
það verður dýrð, verður dýrð handa
mér.
Og þegar hann, er mig elskar svo
heitt,
indælan stað mér á himni’ hefur veitt,
svo að hans ásjónu’ ég augum fæ leitt –
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Ástvini sé ég, sem unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér,
blessaði frelsari, brosið frá þér,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
(Þýð. Lárus Halldórsson)
Matthildur Vala Pálmadóttir.
Oliver
Kristófersson
SKÚLI GUÐJÓNSSON,
Dælengi 1, Selfossi,
lést mánudaginn 30. nóvember. Útförin fer
fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn
16. desember klukkan 14.
.
Magnús Skúlason, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Kolbrún Skúladóttir, Sigurbergur Brynjólfsson,
Aðalbjörg Skúladóttir, Bárður Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
ÞÓRIR JÓHANN AXELSSON,
Vættaborgum 1, 112 Reykjavík,
lést miðvikudaginn 9. desember á
Landspítalanum í Reykjavík.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 17. desember klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samhjálp.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Guðbjörg Þórisdóttir, Ingólfur Guðjónsson,
O. Ragnheiður Þórisdóttir, Aleksandar Knezevic,
Þórdís Rún Þórisdóttir,
Axel Þórir Þórisson, Vera Dögg Antonsdóttir,
barnabörn
og Arnar Axelsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VALTÝR GUÐMUNDSSON,
frá Króki, Ásahreppi,
til heimilis að Strýtuseli 12, Reykjavík,
lést á Landakoti sunnudaginn 29. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
.
Sigmunda Hákonardóttir,
Guðrún Valtýsdóttir, Þórir Karl Jónasson,
Anna María Valtýsdóttir, Jón Bjarni Hermannsson,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Ágústa Rósa Finnlaugsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
áður til heimilis að Gullsmára 7,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
fimmtudaginn 10. desember. Jarðsett verður frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 30. desember klukkan 13.
.
Ómar Örn Þorbjörnsson, Sigríður Sturlaugsdóttir,
Hrefna Þorbjarnardóttir,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Tómas Filippusson,
Valborg Bjarnadóttir, Karl Óskarsson,
Ísleifur Þorbjörnsson, Hafdís Sigurðardóttir,
Sigurður Þorbjörnsson, Björg Lárusdóttir,
Hallbjörn Þorbjörnsson, Sigríður Einarsdóttir,
Þráinn Þorbjörnsson, Kristjana Óladóttir,
Heiðdís Þorbjarnardóttir,
Kristjana Þorbjörnsdóttir, Kristján Ásmundsson,
Heiðrún Þorbjörnsdóttir,
Þröstur Þorbjörnsson, Ingunn Hauksdóttir,
Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ERLINGUR BJARTMAR INGVARSSON
skógarbóndi,
Hamri,
Húnavatnshreppi,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Blönduósi fimmtudaginn 3. desember.
Útförin fór fram í kyrrþey frá Svínavatnskirkju
laugardaginn 12. desember.
.
Bjartmar Freyr Erlingsson,
Nanna María Elfarsdóttir,
Atli Örlygsson,
María Ingibjörg Kristinsdóttir,
Íris Kristinsdóttir,
Grettir Adolf Haraldsson
og barnabörn.