Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016 Talmeinafræðinám í óvissu Blikur eru á lofti um kennslu ítalmeinafræði hérlendis.Reyndar er meistaranám í fag- inu tryggt næstu tvö ár í Háskóla Ís- lands, en framhaldið óljóst vegna fjár- skorts. Fagfólk segir afleitt leggist námið af enda eru allt of fáir tal- meinafræðingar við störf á Íslandi miðað við þörfina, um 75 manns. Bið eftir því að komast að hjá talmeina- fræðingi á stofu er eitt til eitt og hálft ár. Lengi vel urðu Íslendingar að fara utan til að mennta sig í talmeinafræði en frá 2010 hefur verið boðið upp á nám við HÍ. Nemendur eru teknir inn annað hvert ár, fimmtán í senn, en umsóknir hafa verið á milli 30 og 40 í hvert skipti. Áður en kennsla hófst fékkst fjár- veiting frá tveimur ráðuneytum, heil- brigðis- og menntamála, alls 18 millj- ónir króna. „Síðan höfum við fengið greiðslu fyrir þreyttar einingar, sem svo eru kallaðar; fáum sem sagt greitt fyrir hvern þann sem lýkur nám- skeiði,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, dósent í talmeinafræði við læknadeild HÍ og frumkvöðull í þessum efnum, í samtali við blaðamann. Sigríður segir að því sé ekkert til fyrirstöðu að vera með mun fleiri nemendur í fyrirlestrum, flöskuháls- inn sé hins vegar starfsnám og meist- araverkefni nemenda. „Þetta er klín- ískt nám svo allir fara í starfsnám og starfandi talmeinafræðingar eru það fáir að erfitt hefur verið að koma nemum að. Við höfum reyndar út- skrifað tvo hópa þannig að staðan er aðeins að breytast.“ Vandamálið er líka að aðeins tveir starfsmenn eru við námsbrautina, í 50% dósentsstöðu hvor, en auk þess styrkir Heyrnar- og talmeinastöð námsbrautina með því að leggja til kennslu, og sinna þessir þrír kenn- arar öllum meistaraverkefnum nem- endanna fimmtán. „Þetta hefur gengið með gríð- arlegri sjálfboðavinnu okkar, virka daga og um helgar, allt árið! Vinnan er miklu meiri en gert er ráð fyrir en öðruvísi gengur þetta ekki upp og auðvitað viljum við ekki sjá námið lognast út af fyrst það komst af stað,“ segir Sigríður. Magnús Karl Magnússon, prófess- or og deildarforseti læknadeildar HÍ, segir engin áform um að leggja námið af en engin launung sé á að það standi ekki undir sér vegna þess í hve lágum reikniflokki það sé; hve lágar greiðslur HÍ fær frá hinu opinbera með hverjum nemanda. „Búið er að taka ákvörðun um að auglýsa námið aftur og nemendur verða teknir inn í haust, en lækna- deildin hefur lýst því yfir að fjár- mögnun verði að vera tryggð þegar kemur að því að taka næsta hóp inn að tveimur árum liðnum,“ segir Magnús Karl. Morgunblaðið veit að í ráðuneyti menntamála er til umfjöllunar bréf frá Háskólanum þar sem farið er fram á hærri fjárhæð vegna um- rædds náms en ekki liggur fyrir hve- nær niðurstaða fæst. Nám í talmeinafræði er þverfag- legt en heyrir undir læknadeild. „Þetta er áhugavert og mikilvægt nám. Samvinna er á milli ólíkra deilda, læknadeildar, sálfræðideildar, menntavísindasviðs og íslensku- og menningardeildar. Þegar námið hófst var ljóst að skortur væri á talmeina- fræðingum og því er okkur mjög um- hugað um að kennsla haldi áfram,“ sagði Magnús Karl Magnússon við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Talmeinafræðingar vinna með fólki á öllum aldri. „Við hjálpum fyrirburum, börnum með skarð í vör og góm, svo vinnum við með börnum á leikskólum og grunnskólum, með unglingum, full- orðnu fólki og öldruðum,“ segir Sigríður Magnúsdóttir. „Námið er mjög metn- aðarfullt og frábærir einstaklingar hafa útskrifast hjá okkur en þrátt fyrir að fjölgað hafi í stéttinni sér ekki högg á vatni; enn eru mörg hundruð börn á bið- listum,“ segir Sigríður. Hún hætti störf- um á Landspítalann um síðustu áramót og hættir formlega kennslu í haust fyrir aldurs sakir en segist þrátt fyrir það reikna með að kenna eitthvað áfram. „Við leggjum mikla áherslu á loka- verkefni og nemarnir okkar hafa m.a. unnið að gerð íslenskra málþroska- prófa og framburðarprófa til notkunar við greiningu og meðferð barna,“ segir Sigríður. „Þetta er gríðarlega skemmtileg vinna og mjög gefandi en það horfir ekki vel, því miður. Kennslan stendur ekki undir sér þrátt fyrir heim- anmundinn. Nýliðun er lítil í stéttinni og stefnir í mikil vandræði. Margir tal- meinafræðingar eru á milli sextugs og sjötugs og fara að hætta.“ Sigríður nefnir að dýrt sé að fara ut- an til náms og bendir á, af töluverðum þunga, að mjög mikilvægt sé að tal- meinafræðingar læri í íslensku mál- umhverfi. Mikill skortur er á talmeinafræðingum á Íslandi og hundruð barna á biðlista. Meistaranám í talmeinafræði er tryggt næstu tvö ár en framhaldið í mikilli óvissu vegna fjárskorts. Mikilvægt að lært sé í íslensku málumhverfi, segir helsti sérfræðingur landsins. Talmeinafræðingar koma lík- lega að margvíslegri verk- efnum en marga grunar og á Landspítalanum hefur verið byggð upp mjög fjölbreytt þjónusta, að sögn Sigríðar Magnúsdóttur, eftir að farið var að útskrifa talmeinafræð- inga hér heima. „Þegar ég hætti störfum, um síðustu ára- mót, vorum við farin að þjón- usta allar deildir spítalans; vor- um með viðveru á öldrunardeildinni á Landakoti, á Barnaspítalanum þar sem við vinnum bæði með fyrirbura og krakka með skarð í vör og góm og viðvera er á Barna- og ung- lingageðdeildinni, en þar vant- ar mjög tilfinnanlega talmeina- fræðinga. Þá vinnum við á tauga- og lungnadeildum, með kyngingarvandamál, talörð- ugleika og óskýrmæli; í raun allt sem viðkemur munninum. Við vinnum til dæmis með MND-sjúklingum en hreyfigeta þeirra skerðist í munni og koki vegna þess að vöðvar slakna.“ Þá er starfandi á spítalanum transteymi sem Sigríður var hluti af. „Þegar fólk skiptir um kyn verður mikil breyting á röddinni.“ Fjölbreytt verkefni Sigríður Magnúsdóttir segir algengt að fólk sem fær heila- blóðfall og málstol eigi erfitt með að kyngja vegna þess að vöðvar í munni og koki slapp- ast. „Eftir að við fórum að vinna á Landspítalanum og fylgjast mjög vel með kyngi- getu sjúklinga, erum við nán- ast búin að útrýma lungna- bólgu sem fólk með kyngingarörðugleika fékk vegna þess hve oft því svelgd- ist á. Þetta sparar mikla pen- inga fyrir utan hvað lífsgæði sjúklinganna eru miklu meiri,“ segir Sigríður Magn- úsdóttir. Hún segir þetta ágætt dæmi um það hve talmeina- fræðingar koma víða við sögu í starfi sínu. Sigríður Magnúsdóttir talmeina- fræðingur og dósent við HÍ. Mjög aukin lífsgæði ’ Í Félagi talmeinafræðinga eru 105, þar af 75 að störfum á Íslandi, hinir hættir störfum vegna aldurs, eru nemar eða horfnir til annarra starfa. Talmeinafræðingur þyrftu líklega að vera 150 til 200 til að hægt væri að sinna öllum verkefnum sem að stéttinni snúa. INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.