Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 32
HEILSA Rannsókn vísindamanna við háskólann í Alabama hefur sýnt fram á, skv. breska blaðinu DailyMail, að eitt húðflúr geti veikt ónæmiskerfið, a.m.k. tímabundið. Aftur á móti þykjast þeir sjá,skv. fréttinni, að með því að fá sér nokkur flúr geti ónæmiskerfið styrkst! Þeir sem séu vel
skreyttir geti því verið betur í stakk búnir en aðrir í baráttu við kvef og aðra slíka leiðindakvilla.
Húðflúr vörn gegn kvillum?
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
fyrirbyggt heilabilun?María K. Jónsdóttir,
taugasálfræðingur og dósent í sálfræði við HR,
flytur erindið Heilahreysti og forvarnir og Ax-
el F. Sigurðsson hjartalæknir kallar sinn fyrir-
lestur Næring og heilahreysti.
Á miðvikudagur verður aftur fyrirlestur
sem öllum er opinn, kl. 12 til 13.30 í stofu
M101.
Yfirskriftin þá er Höfuðhús – Ný lausn fyrir
fólk með ákominn heilaskaða?
Fyrirlesturinn er á vegum Hugarfars, félags
fólks með ákominn heilaskaða, þar sem
Stefán Stefánsson, ritari og varaformaður
Sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík stendur í
næstu viku að kynningum og fyrirlestrum um
heilann, í samstarfi við námsbraut í heilbrigð-
isverkfræði og íþróttafræðisvið. Markmiðið er
að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi
heilarannsókna og fræða almenning um heil-
ann og heilahreysti.
Tilefnið er alþjóðleg heilavika sem haldin er
að tilstuðlan Dana Foundation í Banda-
ríkjunum. Á morgun verða tveir fyrirlestrar
opnir almenningi (og er aðgangur ókeypis) í
stofu M325 kl. 12 til 13.15, undir yfirskriftinni
Er heilahreysti í okkar höndum? Getum við
Hugarfars, deilir reynslu sinni af að hljóta
heilaskaða og þeim áskorunum sem hann
stendur frammi fyrir að endurhæfingu lokinni.
Dís Gylfadóttir, verkefnastjóri Hugarfars,
kynnir hugmyndafræði Höfuðhúss - endurhæf-
ingar- og fræðslumiðstöðvar fyrir fólk með
heilaskaða sem stendur til að opna á árinu.
Á fimmtudaginn munu svo nemendur í sál-
fræði, heilbrigðisverkfræði og íþróttafræði
kynna rannsóknir sínar og ýmsan annan fróð-
leik um heilann, í Sólinni kl. 15 til 17.
Sérstakt barnahorn verður með föndri og
fræðslu um heilann.
HEILAVIKA Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
Vilja vekja fólk til umhugsunar um heilann
Mannsheilinn er merkilegt og marg-
rannsakað fyrirbæri.
Það er ekki um það deilt að óhóflegurkvíði og streita er ekki holl fyrir heils-una. Til eru ýmis ráð til að draga úr
þessum óæskilegu áhrifum á heilsuna. Dá-
leiðslumeðferðarfræðingurinn Esther Helga
Guðmundsdóttir býður upp á námskeið í
sjálfsdáleiðslu til að ná tökum á streitu og
kvíða.
„Þetta er viðurkennd tækni sem hefur verið
notuð í gegnum tíðina af mörgum helstu dá-
leiðslumeisturum og -fræðingum og þetta er
aðferð sem virkar. Á námskeiðinu eru kenndar
einfaldar sjálfsdáleiðsluæfingar til að nýta í
eigin þágu. Fólki er t.d. kennt að taka sjálft sig
út úr aðstæðunum og fara inn í og finna ákveð-
inn griðastað innra með sér til að næra sig og
styrkja svo það geti tekist á við raunveruleik-
ann,“ segir Esther Helga Guðmundsdóttir
sem heldur námskeið í sjálfsdáleiðslu til að ná
tökum á streitu og kvíða í fjölskyldumiðstöð-
inni Lausninni en námskeiðið er 6 klst. langt.
Esther er dáleiðslumeðferðarfræðingur,
matarfíknisérfræðingur og er einnig með
meistaragráðu í stjórnun í heilbrigðisþjónustu.
Hún hefur áratuga langa reynslu af því að
hjálpa fólki að ná tökum á matarfíkn og át-
röskun. Fyrir rúmum fjórum árum lærði hún
dáleiðslu sem hún hefur notað í starfi sínu til
að hjálpa fólki að ná slökun, skoða og vinna úr
undirliggjandi vanda.
Óttast að verða svæfðir
Esther segir aðferðina virka hratt og fólk
kemst fljótt og vel inn í ástand sem það getur
slakað á í. „Ég hef fundið fyrir því að margir
eru hræddir við að fara inn í svona námskeið af
ótta við að verða svæfðir,“ segir hún og hlær
og heldur áfram: „Vissulega getum við svæft
okkur sjálf með þessari tækni og stundum er
það það sem við þurfum, að geta svæft okkur.
Fólk vaknar oft upp um miðja nætur með
streitukvíða og þá er gott að geta notað þessa
tækni til að ná sér aftur inn í svefninn.“
Esther tekur þó fram að streita og kvíði eru
eðlilegar tilfinningar sem við höfum og þurfum
á að halda í lífinu. „Við ætlum ekki að losna al-
veg við þessar tilfinningar á námskeiðinu. Við
þurfum að skoða hvað veldur þeim hjá okkur.
Hugsanlega gætum við þurft að gera breyt-
ingar á lífsstílnum okkar þannig að við þurfum
að taka á því sem veldur okkur kvíða,“ segir
Esther. Á námskeiðinu verður rýnt ofan í
þessa þætti og fólk frætt frekar um streitu og
kvíða. „Ef ég ætla að fá einhverja nýja útkomu
í mínu lífi þá þarf ég að gera nýja hluti. Ég get
ekki haldið áfram að gera allt eins en samt ætl-
ast til að það komi ný útgáfa af lífi mínu,“ segir
Esther og bendir á mikilvægi þess að rjúfa
vítahringinn ef fólk vill breytingar á annað
borð.
Endurraða í undirmeðvitundinni
Esther segir mun vera á dáleiðslu og hug-
leiðslu þó sá munur sé í raun ekki ýkja mikill.
„Helsti munurinn á slökun og hugleiðslu eða
núvitundarvinnu og dáleiðslu er að í dáleiðslu
lærir maður ákveðna tækni og þá er hægt að
fara meðvitað dýpra,“ segir Esther, spurð
hver munurinn sé á hugleiðslu og dáleiðslu.
Hún segir að dáleiðslutæknin hjálpi ein-
staklingnum til að endurraða í „undirmeðvit-
undartölvunni“. Hins vegar bendir Esther á að
allar þessar aðferðir: slökun, hugleiðsla, núvit-
undarvinna, gjörhyglivinna, dáleiðsla, sjálfsdá-
leiðsla og fleiri leiðir geta hjálpað fólki að
glíma við aðstæður sínar og gefa meiri lífs-
gæði.
Stór munur er hins vegar á stuttu sjálfsdá-
leiðslunámskeiði og frekari dáleiðsluvinnu með
meðferðarfræðingi. Á sjálfsdáleiðslunámskeiði
er fólki hjálpað að læra sjálft ákveðna tækni til
að ná tökum á streitu og kvíða. „Þegar unnið
er með dáleiðslu hjá dáleiðslumeðferðarfræð-
ingum, eins og ég hef unnið með hana, þá fáum
við einstaklinginn til að skoða hverjar ræt-
urnar gætu verið að vandanum. Við förum ofan
í dáleiðsluna og leyfum undirmeðvitundinni að
fara inn í minningabankann því við getum náð í
minningu úr fortíðinni og unnið úr henni. Segj-
um sem svo að einstaklingur hafi lent í áfalli,
t.d. slasað sig sem barn og líði illa. Hann er
huggaður með mjólk og kexi og þá allt í einu
verður til skipun innra með einstaklingnum
sem segir að þegar mér líður svona þá er
lausnin þessi: að fara inn í eldhús og fá mér
mjólk og kex. Í dáleiðsluvinnunni er hægt að
fara inn í minninguna og leiðrétta hana. Þegar
einstaklingnum líður svona þá þarf hann að
læra að fást við tilfinninguna á annan hátt en
að fá sér kex. Þetta er eitt af mörgu sem mað-
ur getur unnið með í undirmeðvitundarvinnu í
dáleiðslu undir handleiðslu meðferðarfræð-
ings,“ segir Esther.
Hún bendir á að innra með okkur eru ótrú-
lega margar skipanir sem maður fylgir en hef-
ur ekki hugmynd um og hefur engin not fyrir
lengur. „Það verður ótrúlegt frelsi fyrir ein-
staklinginn þegar hann nær að leiðrétta innri
tölvuna sína.“
Fólk finnur innri styrk
Hún segir brýnt að fólk læri að sinna sjálfu sér
andlega líka, rétt eins og líkamlega. Sjálfsdá-
leiðsla sé ein aðferð af mörgum sem hægt er að
nota í þeim tilgangi.
„Við hljótum alltaf að vera að reyna að ná
sambandi við okkur sjálf, finna innri styrk og
líða vel í eigin skinni. Þegar við dettum út úr
þeirri vellíðan þá leitum við leiða til að finna
það aftur. Það sem við gerum oft er að við
ávinnum okkur hegðanir og jafnvel neyslu, t.d.
á mat og áfengi í því skyni því það lokar fyrir
það hvernig okkur raunverulega líður. Þá
verður ákveðinn vítahringur í okkar lífi sem
versnar stöðugt þar til við tökum á vandanum.
Það sama á við ef fólk glímir við fjárhagsvanda
og tekur ekki á vandanum sínum á þann hátt
sem það þarf að gera. Alls kyns sam-
skiptavandamál hafa áhrif á streitu og kvíða.
Það eru svo margar ástæður fyrir því að við
lendum í vítahring streitu og kvíða. Fyrsta
skrefið hlýtur alltaf að vera að taka sjálfan sig
út úr skaðlegum aðstæðum, átta sig á hvað
veldur og byrja að horfast í augu við það og
vinna með það. Það er gríðarlega áriðandi.“
Svæfa sig sjálf í sjálfsdáleiðslu
Esther Helga Guðmunds-
dóttir kennir einfaldar
sjálfsdáleiðsluæfingar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Það er ekki um það deilt að
óhóflegur kvíði og streita er
ekki holl fyrir heilsuna. Til eru
ýmis ráð til að draga úr þess-
um óæskilegu áhrifum og dá-
leiðslumeðferðarfræðingurinn
Esther Helga Guðmundsdóttir
býður upp á námskeið í
sjálfsdáleiðslu til að ná tökum
á streitu og kvíða.
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is