Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Page 37
fínasta þorpið og jafnframt það
dýrasta.
Jón og Gunna sjást ekki
mikið á ferli í þorpinu enda
verðlagið ekki á allra færi.
Beckham-hjónin, Geri
Halliwell, Roman
Abramovich, George
Clooney og Christina
Aguilera venja hins vegar
komur sínar þangað þegar
þau vilja komast á skíði.
Nóttin í tveggja manna her-
bergi á Hotel le Palace des
Neiges sem er í Courchevel
1850, hæsta og dýrasta þorp-
inu, kostar á bilinu tvö til
þrjú hundruð þúsund krónur.
Þegar konungborið fólkbregður sér í skíðaferðer það að sjálfsögðu
fréttaefni. Á dögunum
fóru Vilhjálmur Breta-
prins og Katrín her-
togaynja ásamt börnum
sínum Georg og Karl-
ottu á skíði í frönsku
ölpunum. Skíðastað-
urinn sem þau heim-
sóttu, Courchevel, er ekk-
ert venjulegt skíðasvæði.
Raunar er um að
ræða fjögur ná-
tengd þorp sem
öll bera sama
nafn en ólíka
endingu. Þorpið sem hertoga-
hjónin gistu í gengur undir
nafninu Courchevel 1850, en
nafnið vísar einfaldlega í þá
staðreynd að það er í 1.850
metra hæð. Öll fjögur þorpin
hafa raunar verið endurnefnd,
því númeraða endingin þótti
ekki nógu fín. En í dag-
legu dali munu þorpin þó
ganga undir nöfnunum
Courchevel 1850,
1650, 1550 og 1300.
Efsta þorpið, sem
hertogahjónin
gistu í, er
Vilhjálmur og Katrín ásamt
Georgi og Karlottu í Co-
urchevel. Þau heimsóttu
skíðaþorpið líka áður en
börnin komu til sögunnar.
George og
Amal Clooney.
Konungleg skíðaferð
Vilhjálmur og Katrín, hertogahjón af Cambrigde, nutu sín í skíðafríi
með börnin tvö á dögunum. Breskir miðlar segja þau hafa gist í
glæsivillu sem metin er á yfir 12 milljarða íslenskra króna. Skíða-
staðurinn Courchevel er enda ekki beint fyrir meðalmanninn.
David Beckham
og fjölskylda fara
stundum á skíði.
Roman Abramovich er
ekki í miklum vandræðum
með að reiða fram seðla til
að greiða fyrir dvöl sína á
skíðastað fína fólksins.
Geri Halliwell.
Karlotta virðist
njóta þess að vera
útivið í snjónum.
Tónlistarkonan
Christina Aguilera
fer á sama stað og
hertogahjónin til
að komast á skíði.
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is
Blaðamaður breska dagblaðsins
Guardian á vart orð til að lýsa
hrifningu sinni á því framtaki Ice-
landair að starfsmenn fyrirtæk-
isins séu til taks og sýni ferða-
mönnum landið í tvo
daga sé þess óskað.
Hún á reyndar heldur
varla orð yfir fegurð
landsins.
Carole Cadwalladr
kom til landsins á dög-
unum í boði flugfélags-
ins til að kynna sér
þennan óvenjulega
möguleika. Valdi sér
„ævintýrafélaga“ og sá
reyndist Björn Ingi Haf-
liðason flugmaður, sem
sótti þær Carole og vin-
konu hennar á hótel að
morgni, klæddur skíða-
buxum og lopapeysu, klár í slag-
inn. Farið var í heita laug, hlustað á
Björk og Sigur Rós í bílnum, borð-
aður guðdómlegur matur og
gengið á skíðum úti í náttúrunni,
sem var „spennandi,
eins og reyndar allt á Ís-
landi virðist vera“.
Og eins og ekki væri
komið nóg, skrifar Ca-
role, buðu máttar-
völdin upp á undur-
fagra norðurljósa-
sýningu. „Við tókum
ástfóstri við Ísland á að-
eins einum degi,“ segir
Carole í Guardian. Hún
nefnir að ólíku sé sam-
an að jafna að fá slíka
leiðsögn eða sitja einn
á kaffihúsi og glugga í
bók frá Lonely Planet!
BRESK BLAÐAKONA DÁIST AÐ ÍSLANDI
Erlendir gestir eru oft nánast orðlausir vegna fegurðar norðurljósa yfir Íslandi.
Morgunblaðið/hag
Frábært framtak