Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 41
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Undirbúningur stendur nú sem
hæst fyrir tæknisýninguna CeBIT
sem fram fer í Hannover í Þýska-
landi dagana 14.-16. mars næst-
komandi. Fyrirtæki víðs vegar að í
heiminum sýna þar nýjar vörur og
nýjungar í þjónustu í tækniheim-
inum. Að þessu sinni er það Sviss
sem verður sérstaklega í sviðsljós-
inu á sýningunni.
Þetta er stærsta tæknisýning í
heimi og er hún haldin árlega.
Verður gaman að fylgjast með
hvaða nýjungar í upplýsingatækni
koma fram nú.
CEBIT Í HANNOVER
Verið að stilla upp einum af
básunum á sýningunni.
Væntanlegar
nýjungar
Ef þú ert einn af þeim sem loka
öllum öppum sérstaklega til
þess að kreista smávegis auka-
orku út úr rafhlöðunni í iPhone-
símanum þínum ættirðu bara
að hætta því núna. Yfirmaður
hjá Apple, Craig Federighi, blæs
á þá mýtu að það að „drepa“
öpp sem ekki er verið að nota
hjálpi til við að auka rafhlöðu-
endinguna.
Hann segist sjálfur ekki gera
þetta og ítrekar að það sé ekki
nauðsynlegt. Þetta kemur fram
í svari Federighi, sem er yfir
iOS og OS X, við tölvupósti
sem barst Tim Cook, forstjóra
Apple. Federighi fékk tölvu-
póstinn áframsendan og tók sér
dag í að svara og var svarið
afdráttarlaust.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem reynt er að varpa ljósi á
þetta en á stuðningssíðu Apple
kemur fram að engin þörf sé á
að loka appi nema það sé fros-
ið. Öppin sem birtast þegar tví-
smellt er á heimahnappinn eru
ekki í raun og veru í gangi í
bakgrunninum.
Það sem fólk þarf þó að var-
ast ef það vill spara batterí er
að öpp séu ekki að nota stað-
setningu að óþörfu því stað-
setningarþjónusta er frek á raf-
hlöðuna.
LÍFSEIG MÝTA VARÐANDI IPHONE
Óþarfi að drepa til að spara rafhlöðuna
Það getur hinsvegar sparað rafhlöðu að nota ekki staðsetningarþjónustu að
óþörfu en ekki er nauðsynlegt að loka öppum sem ekki er verið að nota.
AFP
Apple stendur fyrir stórum við-
burði hinn 21. mars en boðskortin
til útvalinna bárust loks fyrir helgi.
Fólk þykist vita að þar verði
kynntar til sögunnar að minnsta
kosti tvær áhugaverðar nýjungar.
Nýr iPhone SE, sem verður minni
en iPhone 6 og minnir meira á
iPhone 5s, og ný útgáfa af iPad
Pro, sem verður líka minni en
fyrsta gerðin.
Ekki er vitað hvort ný Apple-úr
verði kynnt en margir bíða
spenntir eftir nýjungum á því sviði.
APPLE-KYNNING Í MARS
Ekki er staðfest hvort ný Apple-úr
verði kynnt til sögunnar.
Nýr iPhone
og iPad Pro
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verslunin lokar
á Laugavegi
30-50% afsláttur
Úr – demantar
gull – silfur
giftingahringir