Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Side 47
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Hinn árlegi HönnunarMars, árleg
uppskeruhátíð hönnuða af öllu tagi,
stendur fram á sunnudag. Af því til-
efni hafa allskyns sýningar verið
opnaðar og alls um eitt hundrað
viðburðir – margt er að sjá.
Á sunnudag kl. 16 heldur Stein-
unn Arnbjörg Stefánsdóttir
sellóleikari tónleika í Álfagerði í
Vogum sunnudaginn
13. mars kl. 16.00
Aðgangur er
ókeypis en tón-
leikarnir eru liður í
Safnahelgi á Suð-
urnesj-
um.
Þýskir kvikmyndadagar standa
nú yfir í Bíó Paradís í 6. sinn. Sex
kvikmyndir eru sýndar og óhætt að
fullyrða að allar séu þær áhuga-
verðar, eftir suma reyndustu leik-
stjóra Þjóðverja í dag auk nýliða.
Björg Erlingsdóttir, deildarstjóri
fræðsludeildar Listasafns Íslands,
mun á sunnudag kl. 14 leiða gesti
um hina áhugaverðu sýningu
„Upphaf kynningar á íslenskri
myndlist í Kaupmannahöfn“.
Skrímslasmiðja verður fyrir alla
fjölskylduna í Gerðarsafni í dag,
laugardag, klukkan 13 til 15. Smiðj-
an byrjar á rannsóknarleiðangri um
safneignarsýninguna „Blint stefnu-
mót“ í leit að furðuverum.
September 2013 kalla myndlist-armennirnir Bjarni Sigur-björnsson og Jón Óskar sýn-
inguna sem þeir opna í dag, laugar-
dag kl. 15, í sýningarsalnum Anarkíu
í Hamraborg 3 í Kópavogi. Á sýning-
unni gefur að líta málverk sem þeir
hafa málað saman, í raun flennistóra
innsetningu sem fyllir rýmið; verk
sem er alls um þrjátíu metra langt
og þriggja metra hátt.
Bjarni segir verkin fyrst hafa
birst á sýningu sem þeir Jón Óskar
héldu í Ketilhúsinu á Akureyri í um-
ræddum mánuði, september 2013,
en þeir höfðu þá málað þau saman í
gömlu refabúi í Eyjafirði.
„Við unnum líka aðra sýningu
saman nokkru áður, í nóvember
2011, fyrir Reykjavík Art Gallery við
Skúlagötu. Nú tókum við nýjan
snúning á þetta og höfum í raun bet-
rekkt sýningarsali Anarkíu,“ segir
Bjarni.
„Það eru heilmikil graffití-
element í þessu hjá okkur, við erum
vel grófir í vinnslunni á verkunum.“
Og hann segir hlæjandi að jafnvel
megi kalla verkin „pínulítið rudda-
leg“. Ekki séu mikil fínlegheit í þess-
um vinnubrögðum.
„En það mætist í verkunum að ég
má kallast flæðandi málari en hann
teiknari og kommenter; við splæsum
þessu saman og okkur gengur mjög
vel að vinna saman.
Myndlistarmennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og Jón Óskar á spjalli við eitt verk-
anna á sýningunni. Verkin máluðu þeir á gömlu refabúi í Eyjafirði.
„Vöðum hvor inn
í annars verk“
Myndlistarmennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og
Jón Óskar opna sýningu í Anarkíu í Hamraborg á
flennistórum verkum sem þeir unnu saman.
Bjarni segir verkin „pínulítið ruddaleg“.
Við Jón Óskar erum báðir mennt-
aðir í Ameríku og þótt ég sé yngri
má segja að ég sé meira af gamla
skólanum en hann hinsvegar meiri
poppari.“
Sögur og sprengingar
Verkin á sýningunni máluðu Bjarni
og Jón Óskar á krossviðarplötur.
„Þetta eru margir fletir og sumum
kann að þykja þetta pínu súrt en
þetta er skemmtilegt,“ segir Bjarni
um þau. Þegar spurt er hvernig
samstarfið hafi gengið segir hann að
þeim Jóni Óskari gangi alltaf vel að
vinna saman.
„Hann er sögumaður og ég kem
með sprengingar í samstarfið og við
vöðum hvor inn í annars verk, hægri
og vinstri. Og njótum þess að spjalla
saman.
Ef rýnt er í þessi verk með fína
estetík að leiðarljósi þá er ekki víst
að fólk verði hrifið, þetta er alveg
hin höndin,“ segir hann, hlær, og
bætir við að þeir Jón Óskar leyfi sér
að leika sér. „Með allri okkar þekk-
ingu og reynslu, og allrahanda tilvís-
unum. Við erum ekkert of alvarlegir
gagnvart þessum verkum.“
Þeir Bjarni og Jón Óskar hafa
komið víða við á sýningarvettvangi á
síðustu áratugum. Jón Óskar nam á
sínum tíma við School of Visual Arts
í New York en Bjarni við San Fran-
cisco Art Institute. efi@mbl.is
MÆLT MEÐ
:
Stórglæsilegt páskablað
fylgirMorgunblaðinu
föstudaginn 18.mars
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 14. mars.
–– Meira fyrir lesendur
Matur, ferðalög, skreytingar
og viðburðir um páskana
verða meðal efnis í blaðinu
SÉRBLAÐ
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr.
2.000 kr.*
FYRIR AÐEINS
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Umhverfisvænt
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í
tengslum við allar komur & brottfarir
flugvéla um Keflavíkurflugvöll.