Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Síða 53
„Við vorum kornungir og ferskir.
Þegar ég sé ljósmyndir af okkur
frá þessum tíma er „tærleiki“
fyrsta orðið sem kemur upp í hug-
ann. Við vorum allir tónlistarunn-
endur og vorum með allskyns
plaggöt á veggjunum: Iron Mai-
den, Michael Schenker, UFO, Ritc-
hie Blackmore. Allt snerist um
tónlist. Við hlustuðum á Deep
Purple, AC/DC, Motörhead og
alla hina. Lifðum og hrærðumst í
tónlist alla daga vikunnar og ekk-
ert annað komst að.“
Þannig kemst Lars Ulrich,
trommuleikari þrassbandsins Me-
tallica, að orði í samtali við tón-
listartímaritið Rolling Stone í til-
efni af því að þrjátíu ár eru liðin
frá útgáfu plötunnar Master of
Puppets, sem margir álíta bestu
málmplötu allra tíma.
Í viðtalinu rifjar Ulrich upp að
hlutirnir hafi gengið hratt fyrir sig
á þessum árum enda orkan
óþrjótandi hjá liðlega tvítugum
piltum.
„Við sömdum Master of Pup-
pets á líklega átta vikum sumarið
1985. Í dag tekur það mig átta vik-
ur að keyra yfir í hljóðverið. Hvað
þá meira. Hvað í andskotanum
varð til þess að við gátum eignast
afkvæmi af þessu tagi á átta vik-
um? Frá fyrstu nótu til þeirrar síð-
ustu. Það liðu örugglega átján
mánuðir frá því við byrjuðum að
semja efni fyrir Death Magnetic
[nýjustu plötu Metallica] þangað
til við byrjuðum að taka hana upp.
Hvernig í andskotanum fer maður
að því að semja plötu eins og
Master of Puppets á átta vikum?“
spyr Ulrich.
Enginn augnfarði
Þetta sama sumar spilaði Metal-
lica fyrst á Monsters of Rock-
hátíðinni í Donington á Englandi,
þar sem James Hetfield, gítarleik-
ari og söngvari, lét þessi fleygu
orð falla: „Ef þið komuð hingað til
að sjá spandex, andskotans augn-
farða og allt það drasl og heyra
orðin „rock & roll, baby“ í hverju
helvítis lagi er þetta ekki bandið.
Við komum hingað til að feykja
flösu!“
Áhrifin á Master of Puppets
komu víða að, meðal annars frá
Ennio Morricone og Johan Sebast-
ian Bach, eins undarlega og það
hljómar, og segja má að Metallica
hafi þar stigið fram sem fullskapað
band. Eins grenjandi sprækar og
Kill ’Em All og Ride the Lightning
voru kvað hér við nýjan tón.
Titillagið er að margra mati há-
punkturinn, alltént var bassaleik-
arinn Cliff Burton á því máli. Text-
ann samdi Hetfield um vald
fíknarinnar yfir manninum, eftir
að honum ofbauð að sjá jafnaldra
sína sprauta sig með hörðum
fíkniefnum í samkvæmi í San
Francisco. Og var bandið hans þó
þegar komið með gælunafnið Al-
coholica á þessum tíma.
Til allrar óhamingju fékk Bur-
ton ekki mörg tækifæri til að leika
lögin af Master of Puppets en
hann lést í rútuslysi meðan Metal-
lica var á tónleikaferðalagi í Sví-
þjóð 27. september 1986.
Blessuð sé minning hans!
Metallica anno 1986: Cliff Burton, Lars Ulrich, James Hetfield, Kirk Hammett.
MASTER OF PUPPETS ÞRJÁTÍU ÁRA
Samin á átta vikum
Lars Ulrich á tónleikum Metallica í
Egilshöllinni sumarið 2004.
Morgunblaðið/ÞÖK
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
TÓNLIST Rapparinn 50 Cent, sem óskaði eftir gjaldþrotaskipt-
um á síðasta ári, þurfti að koma fyrir dómara í Bandaríkjunum í
vikunni og gera grein fyrir máli sínu. Dómarinn vildi fá skýringu
á því hvers vegna rapparinn hefði laugað sig í peningaseðlum á
ljósmyndum eftir að hann lýsti sig gjaldþrota og hvort það
væri rétt, sem 50 Cent hefði látið í skína á samfélags-
miðlum, að hann væri að reisa sér hús í Afríku. Svör
rapparans voru á þá leið að seðlarnir á ljósmyndunum
væru óekta, bara leikmunir úr myndböndum og
einskis virði í raunheimum, og ekki væri um neitt
hús að ræða í Afríku. Þegar liggur fyrir að óháðir
matsaðilar meta eignir 50 Cents á 64 milljónir Banda-
ríkjadala en ekki 16 milljónir, eins og hann gerði sjálf-
ur.
Laugar sig í seðlum
50 Cent fer
greinilega
frjálslega með
staðreyndir.
Reuters
SJÓNVARP Ríkissjónvarpið sýnir beint frá
sænsku söngvakeppninni, Melodifestivalen, á
laugardagskvöldið. Þykir þessi söngva-
keppni sú besta í Evrópu, að því er fram kem-
ur á ruv.is, enda hafa Svíar margoft sigrað í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva,
Eurovision. Það gerðu þeir í fyrra og keppn-
in verður því haldin í Stokkhólmi í ár. „RÚV
hefur ákveðið að taka þátt í gleðinni með Sví-
um. Keppnin nýtur mikilla vinsælda og í und-
anúrslitum á laugardaginn voru sex milljónir
atkvæða greiddar í símakosningu,“ segir í
dagskrárkynningu RÚV. Útsendingin hefst
kl. 19:30 og lýkur kl. 21:40.
Melodifestivalen í beinni
Charlotte Nilsson sigraði fyrir hönd Svía árið
1999. Hafði betur gegn Selmu Björnsdóttur.
Reuters
Hvað ef þér, lesandi góður, yrði boðið að ferðast aft-
ur til ársins 1960? Myndir þú nota tækifærið og
freista þess að koma í veg fyrir morðið á John F.
Kennedy Bandaríkjaforseta? Þetta er einmitt verk-
efnið sem enskukennarinn Jake Epping tekst á hend-
ur í glænýjum sjónvarpsþáttum, 11.22.63, sem
Stöð 2 tekur til sýningar á þriðjudaginn
kemur. Þættirnir voru frumsýndir á
efnisveitunni Hula í Bandaríkjunum
fyrir skemmstu og hafa fallið í býsna
frjóa jörð.
Sagan er byggð á samnefndri skáld-
sögu eftir Stephen King. Hún hefst
þegar veitingamaðurinn Al Templeton
(Chris Cooper) finnur gátt í skáp á
kaffihúsi sínu sem gerir honum kleift að
stökkva inn í ákveðið augnablik árið
1960. Al er maður heilsuveill og telur því
félaga sinn, Jake Epping (James
Franco), á að ferðast aftur í tímann í
sinn stað. Markmiðið er skýrt: Að
koma í veg fyrir morðið á John F.
Kennedy. Ekki er um áhlaupaverk
að ræða því Epping þarf að búa í
þrjú ár í fortíðinni áður en morðið er
framið, 22. nóvember 1963.
Epping byrjar á því að gera tilraunir
með það að breyta fortíðinni og þegar
þær virka fer hann að sitja um Lee Har-
vey Oswald (Daniel Webber) og fjöl-
skyldu en morðingi Kennedys er þá ný-
fluttur heim frá Sovétríkjunum. En
verkefnið reynist flóknara en
Epping hugði, auk þess
sem hann binst fólki
tilfinningaböndum í
fortíðinni. Hvað er
þá til ráða?
Serían telur átta
þætti.
Reuters
11.22.63 Á STÖÐ 2
Reynir að
stöðva morðið
á Kennedy
John F. Kennedy
Bandaríkjaforseti.
Sarah Gadon og James Franco í hlutverkum sínum í
þáttunum 11.22.63 sem byggjast á sögu Stephens Kings.